Síður undir "umraedan"

Barónessan

Fréttablaðið Fastir pennar 03. mars 2010 06:00
Einar Már Jónsson
Einar Már Jónsson
Einar Már Jónsson skrifar:

Ekki var laust við að Frakkar móðguðust fyrir sína hönd og Zapateros, forsætisráðherra Spánar, þegar tilkynnt var að Barack Obama Bandaríkjaforseti ætlaði að heiðra einhverja mikla Evrópumessu í Madrid í vor með fjarveru sinni. Þessi samkunda átti að vera fundur æðstu ráðamanna Bandaríkjamanna og Evrópusambandsins til að ræða brýnustu heimsmál, og hafði Zapatero lagt allt kapp á að búa sig undir að taka á móti stórmenninu, en nú verður hann væntanlega að láta sér lynda að fá einhverjar undirtyllur í staðinn. Til að reyna að bera höfuðið hátt lýsti hann því yfir að Obama hefði mikið að gera og væri þess vegna bundinn annars staðar. En þetta er ekki í fyrsta skipti sem forsetinn sniðgengur Evrópumenn; er mönnum í fersku minni að hann þáði ekki boð Angelu Merkel í haust að vera viðstaddur þegar þess var minnst að tuttugu ár voru liðin síðan Berlínarmúrinn féll.

Þetta er reyndar gömul hefð í Bandaríkjunum, og minnast menn stundum orða Kissingers, þegar hann var utanríkisráðherra: „Evrópa, hvað er það? Það er ekki einu sinni símanúmer." Þetta hafa menn gjarnan útskýrt með því að Evrópa hafi þá ekki verið nógu sameinuð, það hafi sárlega vantað einhvern „utanríkisráðherra" sem gæti komið fram fyrir hönd sambandsríkjanna, tvíhent símtólið og sagt meiningu sína umbúðalaust svo aðrir yrðu að beygja sig. Hefði það ekki verið munur ef stjórnarskrá Evrópu hefði verið komin í gildi þegar Íraksstríðið hófst? spyrja menn stundum, þá hefði utanríkisráðherrann heldur en ekki staðið uppi í hárinu á skúrkinum Bush og látið hann fá það óþvegið. Að vísu hugsa menn þessa hugsun aldrei til enda, því eins og staðan var þá í álfunni er langlíklegast að sá utanríkisráðherra hefði auðmjúklegast gengið til stuðnings við Bandaríkjamenn, kannske boðist til að senda einhverjar „Evrópuhersveitir" til Íraks, og því hefði franskur almenningur naumast tekið þegjandi og hljóðalaust.

Nú var „stjórnarskrá" Evrópu að vísu felld í þjóðaratkvæðagreiðslum, en í staðinn kom hinn svokallaði „Lissabonn-samningur" sem er alveg eins, og því er nú loksins búið að stofna embætti „utanríkisráðherra" sambandsins. Þegar það var í undirbúningi veltu menn því fyrir sér hvaða stórmenni gæti skipað þennan virðulega sess, og voru ýmsir nefndir, en svo var það bresk barónessa sem varð fyrir valinu, öllum að óvörum og sennilega fyrst og fremst henni sjálfri; hún varð víst alveg steini lostin. Þessi kona, sem nefnist Cathrine Ashton af Upphollandi, var þá alveg óþekkt og nú þegar nokkrir mánuðir eru liðin frá því að hún var útnefnd er hún það enn. Samkvæmt enskri bókmenntahefð væri hægt að kalla hana „ósýnilegu konuna".

Reyndar vantar ekki að um hana sé skrifað í frönskum blöðum, en þar er einkum rakið hvað hún hafi ekki gert, ekki hvað hún kunni að hafa afrekað. Hún hefur t.d. ekki tekið í mál að flytja til Brussel, heldur býr þar í hótelherbergjum og er jafnan með annan fótinn í London. Þegar jarðskjálftinn mikli varð í Haítí og Hillary Clinton var fljót á vettvang til að kynna sér ástandið og hughreysta hrjáða landsmenn fór barónessan beint heim í helgarfrí til fjölskyldunnar í Englandi, og sagði að svona túrismi, sem sé til landa sem eru hjálpar þurfi, væri óþarfi. Og þó er aðstoð Evrópumanna við Haítíbúa mun meiri en það sem Bandaríkjamenn leggja af mörkunum. Um síðir varð barónessan þó að halda blaðamannafund um málið, en vegna vanþekkingar var hún svo ruglingsleg í tali að utanríkisráðherra Spánar varð að taka orðið af henni. Og hann útskýrði stöðuna á þremur tungumálum, en barónessan er hins vegar einungis mælt á ensku. Hún svarar hins vegar í síma, að því leyti er hún yfir alla gagnrýni hafin, en ekki eftir kl. átta á kvöldin, né heldur á helgidögum, og hún mun hafa lýst því yfir að hún ætli ekki að leggjast í ferðalög.

Barack Obama mun ekki hafa tjáð sig um það hvers vegna hann ætli ekki að koma til Madrid í vor. En einhverjir samstarfsmenn hans, sem vilja ekki láta nafns síns getið, hafa hins vegar sagt að þessar Evrópumessur séu tímaeyðsla, þar sé ekki talað um neitt sem máli skipti heldur einungis um „klór-kjúklinga" og annað álíka, Evrópumenn séu auk þess fáfróðir um helstu vandamál heims, og í staðinn fyrir að koma fram sameinaðir reyni hver að ota sínum tota og mynda einhver prívat og persónuleg tengsl við Bandaríkjaforseta, utan við allt Evrópusamband. Kannske er þetta skýringin á því að þegar velja átti „utanríkisráðherra" skuli þeir hafa leitað uppi þá litlausustu persónu sem völ var á, einhverja sem tryggt var að myndi aldrei skyggja á neina ráðherra hinna einstöku þjóða sambandsins og aldrei láta neitt til sín taka.




Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Forréttir / Barónessan