Sáttin og snjórinn

Fréttablaðið Aðsendar greinar 03. mars 2010 06:00
árni svanur daníelsson
árni svanur daníelsson

Árni Svanur Daníelsson og Kristín Þórunn Tómasdóttir skrifa um samfélagsmál.

Þegar byrjaði að snjóa í Reykjavík í síðustu viku, breytti borgin um svip. Hús og garðar fengu á sig dulúðlegan blæ, götur og ljósastaurar voru eins og klippt út úr Narníu. Umferðarniðurinn og borgarhávaðinn sem fylgir íbúunum frá morgni til kvölds kæfðist undir þykkri snjóbreiðunni. Áætlanir og tímamörk riðluðust því enginn komst almennilega leiðar sinnar. Snjórinn fékk okkur til að staldra við.

Nýfallinn snjór sem breiðir yfir allt kallar fram þrána í brjóstum okkar eftir því sem er hreint og óspillt. Snjórinn fellur á skítugar götur og ruslahauga og leyfir okkur að halda augnablik að umhverfið okkar sé einmitt þannig: hreint og óspillt. Snjónum fylgir þannig huggun og hugheysting.

Þessa daga og misseri líður okkur á Íslandi eins og við sitjum á stórum haug þar sem ýmislegt leynist. Hruninn trúverðugleiki nær frá viðskiptaheiminum inn í embættismannakerfið, stjórnmálin og samfélagið allt. Við bíðum eftir aðgerðum sem miða að því að reisa við réttlæti þeim til handa sem nú líða fyrir ábyrgðarleysi og skeytingarleysi annarra.

Aðgerðir sem miða að réttlæti eru forsenda þess að sátt náist í samfélaginu. Án sáttar fær kreppan að lifa í huga og hjarta ungra sem aldinna. Aðgerðir sem miða að réttlæti í samfélaginu, nefna hlutina sínu rétta nafni og kryfja málin til mergjar. Þær ganga jafnt yfir alla. Réttlæti snýst hvorki um hefnd né offors. Það miðar að jafnvægi og jafnrétti.

Góðverk og góður ásetningur koma aldrei í stað réttlætis. Á það benti Ágústínus kirkjufaðir á sinni tíð og á það minnum við núna. Við þurfum að vinna saman að réttlæti í samfélaginu. Þráin í hjarta okkar er til samfélags þar sem ríkir sátt og náungakærleikur, til náungasamfélags. Þangað skulum við stefna.

Höfundar eru prestar.


Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Nýtt er orðið til

Í hinni helgu bók, Biblíunni, segir á einum stað: „…hið liðna varð að engu, ný...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Til Landspítalamanna

Félagar mínir á Landspítalanum, Jóhannes Gunnarsson og Björn Zoëga, svöruðu nýlega grein u...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Að fórna góðum árangri

Starfsemi sérdeildar fyrir einhverfa í Hamraskóla hefur byggst upp frá árinu 1996 og átti ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Ætlar þú að þrýsta á hnappinn?

Fyrir Alþingi liggur rammaáætlun um nýtingu vatnsafls til raforkuframleiðslu í landinu. Ma...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 11:28

Að viðurkenna vandann

Ég hef áður lýst því hvernig 5 afborganir af litlu láni sem ég var að semja um við Arionba...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Fögnum fjölbreytileikanum - einnig meðal lögmanna

Jón Egilsson hæstaréttarlögmaður hefur verið dæmdur til greiðslu sektar til ríkissjóðs á g...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Ég óska þeim öllum til hamingju

Ég vil óska þeim öllum til hamingju sem láta sig velferð dýra varða. Frá og með fyrsta deg...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Landsbyggðin og Landspítalinn

Í skýrslu nefndar um uppbyggingu Landspítala – háskólasjúkrahúss (LSH) við Hringbrau...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Ég ætla að lesa

Það er mér mikils virði að fá að vera þátttakandi í vinnunni sem fram undan er við að glæð...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Erum við undirbúin fyrir hamfarir?

Þórir Guðmundsson, sviðsstjóri hjálparsviðs Rauða kross Íslands, skrifaði grein í Fréttabl...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Orkunýting og ferðaþjónusta

Víða getur ferðaþjónusta og orkuvinnsla farið vel saman.“ Svo segir m.a. í umsögn Sa...  

Meira
Aðsendar greinar 01. feb. 2012 06:00

Kirkjan þarf séra Gunnar Sigurjónsson

Eftir samræður mínar við fólk á förnum vegi síðustu vikuna um val á nýjum biskup fyrir Ísl...  

Meira
Aðsendar greinar 01. feb. 2012 06:00

Magnafsláttur skilar sér til viðskiptavina Bónus

Á árinu 1988, ári fyrir stofnun Bónus, fóru um 22% af ráðstöfunartekjum heimilanna til kau...  

Meira
Aðsendar greinar 01. feb. 2012 06:00

Moska, mannréttindi og kristin trú

Fyrir 14 árum bjó ég um tíma í landi þar sem fjöldi trúarbragða er sýnilegur á kröftugan o...  

Meira
Aðsendar greinar 01. feb. 2012 06:00

Barnasáttmáli SÞ er lykill að stuðningi við börn sem eru þolendur mansals

Ef til vill hljómar þetta eins og klisja, en er þó staðreynd sem aldrei má gleymast. Þetta...  

Meira
Aðsendar greinar 01. feb. 2012 06:00

Betra samfélag

Í dag eru rétt þrjú ár liðin frá því minnihlutastjórn Samfylkingarinnar og VG tók við völd...  

Meira
Aðsendar greinar 31. jan. 2012 13:38

Versti dagur Samfylkingarinnar

Það hefur ekki alltaf verið auðvelt að vera stuðningsmaður Samfylkingarinnar síðustu fimm ...  

Meira
Aðsendar greinar 31. jan. 2012 10:00

Við sníðum norræna velferðarsamfélagið að framtíðinni

Í dag hefst ársfundur SAMAK (samtaka norrænna jafnaðarmanna og verkalýðshreyfinga) í Stokk...  

Meira
Aðsendar greinar 31. jan. 2012 06:00

Okkur blæðir!

Ég ætla að vekja máls að nýju á þeirri staðreynd að samtengd rafræn sjúkraskrá á landsvísu...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Aukablad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Sáttin og snjórinn