Síður undir "umraedan"

Rétt fólk á réttan stað

Fréttablaðið Fastir pennar 02. mars 2010 06:00
Jónína Michaelsdóttir
Jónína Michaelsdóttir
Jónína Michaelsdóttir skrifar:

Þó að reiðin kraumi enn í hverjum kima hér á landi, er margt sem bendir til þess að almenn skynsemi sé að rumska.

Reiðin er eldsneyti sem kveikir bæði í réttlætiskenndinni og ofstopanum. Virkjuð getur hún verið aflgjafi sem spornar við yfirgangi og óréttlæti, en sé hún laubeisluð og óhamin í langan tíma, snýst hún gegn þeim sem ber hana í sér.

Inn á milli vandlætingarpistla og fræðandi greina um ástand og horfur, þar sem sérfræðingar tala hver í sína áttina, birtast nú öðru hvoru jarðbundin og jákvæð skrif um afl samstöðunnar á erfiðum tímum, og hvetjandi hugmyndir um virkni og vilja til að vera þátttakandi í þjóðfélagi í mótun. Það er hin hliðin á hruninu. En við verðum að vanda okkur.

Árið 1936 var líka kreppa á Íslandi. Til er lítill bæklingur sem hinn stórmerki maður og heimspekingur, Guðmundur Finnbogason sendi frá sér þetta ár. Titillinn er „Úrræði", en undirfyrirsögn: „Nokkrar greinar um landsmál." Bæklingurinn skiptist í stutta og gagnorða kafla. Kaflaheitin sýna að þessi maður horfði yfir sviðið allt:

„Sjálfstæð þjóð, Verslunarviðskipti,Straumhvörf, Bjargráðin, Aðilar framkvæmdanna,Nefndir, Samkeppnin og vísindin,Nýr markaður, Bættar vinnuaðferðir, Innlendur markaður,kostir fjölbreyttrar framleiðslu, Athugum verslunarskýrslurnar,Dungalum fæðið, Fæðisrannsókn, Matseðill fyrir þjóðina, innfluttar matvörur, Garðyrkjan, Aukning garðyrkju, Klæðnaður, Heimilisiðnaður, Aðilar, Innlend efni, Ullin, Önnur efni,Hallveigarstaðir, Handavinnukennsla,Tímarit, Markaður, Nefnd, Verksmiðjuiðnaður, Rithöfundar og listamenn, Rithöfundafjelag,Myndlistarmannafjelag, Tónlistarmannafjelag, Stjórnarbót, Stjórnarskráin."






Straumhvörf

Kaflinn um straumhvörf er áhugaverður og birtist hér í heild.

„Og nú eru straumhvörfin komin. Einmitt þegar sambönd og samgöngur þjóða á milli eru orðnar fullkomnari en nokkur hefði áður getað gert sér í hugarlund, kemur það í ljós, að þjóðirnar geta ekki komið sjer saman um það skipulag, er þarf til þess að njóta þessara gæða með frjálsum viðskiptum þjóða á milli. Og afleiðingin verður sú, að hver þjóðin af annarri tekur upp þá stefnu, að búa sem mest að sínu, framleiða sem mest sjálfir af því,sem hún þarfnast, og girða sig tollmúrum, innflutningshöftum og endar svo með vöruskiptaverslun.- Hve lengi þessi ófögnuður stendur, veit enginn, en flestir, sem um þetta rita,virðast sammála um það, að þessi stefna muni eiga sér langan aldur, svo að ekki tjói annað en að laga sig eftir henni. Hvernig erum vjer Íslendingar þá staddir? Vér erum stórskuldugir við útlönd. Markaður fyrir útfluttar vörur, sem borið hafa uppi þjóðarskap vorn og viðskipti við önnur lönd, þrengist mjög, svo að oss skortir erlendan gjaldeyri. Atvinnuleysi vex. Hvað eigum vér þá að taka til bragðs?"






Bjargráðin

Næsti kafli er um bjargráðin, og þó að þetta sé skrifað fyrir sjötíu og fjórum árum, á allt öðruvísi tímum en við nú lifum, er áhugavert að lesa tillögur og skoðanir þessa fjölgefna manns:

"Flestir munu undireins sjá í hendi sér aðalráðin, sem til greina gætu komið:

1) að reyna að halda sem lengst í þann markað, sem vjer höfum haft hingað til fyrir útflutningsvörur vorar; 2)að reyna að finna nýjan markað fyrir þær að sama skapi sem hinn gamli markaður þrengist;

3) að reyna að framleiða nýjar vörur, sem markaður kynni að fást fyrir erlendis, og síðast en ekki síst,

4) að reyna að framleiða alt, sem svarar kostnaði að framleiða fyrir innlendan markað.

[...] Aðalatriðið í þessu máli, eins og öðrum, er að fá hæfustu menn, sem völ er á til hverrar framkvæmdarinnar. Það er frumskilyrði þess að sæmilega takist. Öll stjórnviska kemur fyrst og fremst fram í því, að koma sem víðast rjettum manni á rjettan stað í þjóðfélaginu. Aðalvandinn er að finna það skipulag er tryggir þetta best."

Svo mörg voru þau orð! Spyrja má hvort við ættum ekki að íhuga svolítið þessa síðustu málsgrein. Erum við vakandi fyrir því að það sé allra hagur að hafa réttan mann á réttum stað í þjóðfélaginu? Erum við með hæfasta fólk sem völ er á til hverrar framkvæmdar, núna þegar mikið liggur við? Því að líkast til er það nefnilega rétt hjá Guðmundi Finnbogasyni, að það sé frumskilyrði þess að sæmilega takist.



Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Forréttir / Rétt fólk á réttan stað