Opið bréf til heilbrigðisráðherra

Fréttablaðið Aðsendar greinar 27. febrúar 2010 06:00
Árni stefánsson
Árni stefánsson
Árni Stefánsson skrifar:
Ágæta Álfheiður.

Árlega fæðast á Íslandi að meðaltali um 10 börn með skarð í vör og/eða gómi. Kostnaður við munnholsaðgerðir, tannréttingar og talþjálfun þessara barna er vart mælanlegur á skala heilbrigðiskerfisins. Það er því með ólíkindum að stærstur hluti kostnaðarins skuli lenda á foreldrum þeirra. Um áramótin tóku gildi þrjár reglugerðir þínar um endurgreiðslu vegna tannréttinga. Í umfjöllun um reglugerðirnar í útvarpsviðtali í morgunþætti Bylgjunnar þann 3. febrúar sagðir þú meðal annars „…og það sem við gerðum nú um áramótin eða ég var að stórauka þátttöku ríkisins í tannlækningum og tannréttingum barna sem að fæðast með alvarlega galla, skarð í vör/góm, mikla tannvöntun og þess háttar."
Jafnframt sagðir þú: „...mér finnst það brýnast að þeir einstaklingar sem fæðast með galla í munnholi eða lenda í slysum, fái sömu þjónustu og þurfi ekki að borga fyrir hana úr eigin vasa eins og þeir sem brjóta fót eða fæðast með aðra galla…" og orðrétt bendir á að „stærsti reikningurinn sem ég hef séð vegna tannréttinga barns með meðfæddan galla er 5 milljónir króna sem foreldrar hafa þurft að greiða úr eigin vasa og þetta er auðvitað ekki boðlegt".

Í ljósi þessara orða skýtur skökku við að í reglugerðunum er skýrt kveðið á um það að endurgreiðsla sjúkratrygginga vegna vinnu tannréttingarsérfræðinga og kjálkaskurðlækna vegna víkkunar efri góms barna með skarð í góm fyrir beinígræðslu sé kr. 138.600 og hámarksendurgreiðsla fyrir tannréttingarmeðferð barna með skarð í vör og góm sé einungis ákveðin kr. 554.000. Jafnframt þessu „verður" tannréttingameðferðinni að ljúka á innan við 3 árum.

Nú spyr ég:
1) Samkvæmt nýrri reglugerð þinni, sérðu annað fyrir þér en foreldrar með sambærilegt tilvik og þeir sem horfðu á 5 milljóna reikning vegna tannréttinga muni nú horfa á eigin kostnað upp á 4,3 milljónir króna? Þá má jafnframt benda á þá staðreynd að heildarverðbólga síðustu 3 ára hefur verið um 34% og því hefur verð aðfanga og þjónustu hækkað verulega.
2) Hvernig getur þetta talist stóraukin þátttaka ríkisins?
3) Það má nefna mjög mörg dæmi þess að tannréttingar barna með skarð í vör og gómi hafi tekið mun lengri tíma en 3 ár, jafnvel 11-15 ára ferli sem byggir á náinni samvinnu kjálkaskurðlækna, lýtalækna, talmeinafræðinga og tannréttingasérfræðinga. Hvernig rökstyður þú þá ákvörðun að í nýju reglugerðinni er endurgreiðsla háð því að heildartími tannréttingarmeðferðar fari ekki yfir 3 ár og kynnir reglugerðina sem verulega réttarbót?

Sé þetta skjaldborgin sem velferðarstjórnin ætlar sér að slá um börn með skarð í vör og góm og foreldra þeirra barna tel ég einsýnt að margir myndu kjósa að standa fyrir utan hana enda voru réttindi margra betur tryggð með gamla kerfinu og endurgreiðsluhlutfallinu eins dapurlegt og það var nú samt. Séu nýju reglugerðirnar settar með góðum vilja sýnist mér þær, því miður, bera vott um vanþekkingu á viðfangsefninu. Félags- og velferðarsamfélag verður ekki einungis skapað með orðum heldur einnig með athöfnum.

Það er til skammar að agnarsmár minnihlutahópur barna með fæðingargalla, sem er enn alvarlegri en ella vegna sýnileika, skuli sífellt verða hornreka í heilbrigðis- og tryggingakerfinu. Annað hvort vegna áhugaleysis ráðherra eða þess að kerfið virðist ekki ná því sem það telur „ásættanlega" samninga við tannréttingasérfræðinga og talmeinafræðinga. Hér er ekki um neinar „Icesave" upphæðir að tefla. Hér er einfaldlega beðið um það að mannréttindi barna með áberandi fæðingargalla séu tryggð án tillits til fjárhags foreldra. Tilfellin eru það fá að líklega myndi árlegur viðbótarkostnaður vera í kringum 10 milljónir eða rétt um einn tíuþúsundasti hluti af kostnaðinum við heilbrigðiskerfið samkvæmt fjárlögum 2010 til að setja þetta í samhengi!

Tveir síðustu forverar þínir í starfi lofuðu að koma þessum réttindamálum í lag en stóðu ekki við það. Gríptu nú daginn og nýttu til góðra verka!
Það sem þarf til er einföld ákvörðun þín um að kostnaður við þessar nauðsynlegu meðferðir flytjist frá foreldrum til hins almenna heilbrigðis- og sjúkratryggingakerfis. Ég er fullviss um það að sátt væri um slíka ákvörðun í samfélaginu.

Höfundur er viðskiptafræðingur og situr í stjórn Breiðrabrosa.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 09. feb. 2012 03:13

Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Efti...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Opið bréf til Ögmundar Jónassonar

Á Íslandi er skilnaðartíðni há en lagaumhverfið hefur ekki tekið mið af því á Íslandi í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Það er ljótt að skilja útundan herra borgarstjóri

Ég skora á borgarstjórann í Reykjavík að draga til baka ákvörðun varðandi niðurfellingu ne...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Breytt framtíðarsýn lesblindra

Flestar skólabyggingar á Íslandi í dag eru með þeim hætti að fatlaðir eiga auðvelt með að ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Til of mikils mælst?

Þegar ógnvekjandi tölur um treglæsi unglinga birtust sl. haust tók ég mig til og skrifaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ

Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Lendandi á Hólmsheiði í 96-98% tilvika – 95% er nóg

Háskólinn í Reykjavík (HR) og talsmenn flugvallar í Vatnsmýri (flugvallarsinnar) stóðu fyr...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Sæll Sighvatur Björgvinsson

Við eigum sameiginlegt áhugamál sem eru íslenskir grunnskólar. Af skrifum þínum má þó ætla...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Heggur sá er hlífa skyldi

Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs....  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Ávöxtun (tap) lífeyrissjóða

Nýlega er komin út skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóði. Mikið hefur verið rætt um h...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Nýtt er orðið til

Í hinni helgu bók, Biblíunni, segir á einum stað: „…hið liðna varð að engu, ný...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Til Landspítalamanna

Félagar mínir á Landspítalanum, Jóhannes Gunnarsson og Björn Zoëga, svöruðu nýlega grein u...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Að fórna góðum árangri

Starfsemi sérdeildar fyrir einhverfa í Hamraskóla hefur byggst upp frá árinu 1996 og átti ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Ætlar þú að þrýsta á hnappinn?

Fyrir Alþingi liggur rammaáætlun um nýtingu vatnsafls til raforkuframleiðslu í landinu. Ma...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 11:28

Að viðurkenna vandann

Ég hef áður lýst því hvernig 5 afborganir af litlu láni sem ég var að semja um við Arionba...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Fögnum fjölbreytileikanum - einnig meðal lögmanna

Jón Egilsson hæstaréttarlögmaður hefur verið dæmdur til greiðslu sektar til ríkissjóðs á g...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Ég óska þeim öllum til hamingju

Ég vil óska þeim öllum til hamingju sem láta sig velferð dýra varða. Frá og með fyrsta deg...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Landsbyggðin og Landspítalinn

Í skýrslu nefndar um uppbyggingu Landspítala – háskólasjúkrahúss (LSH) við Hringbrau...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Aukablad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / / Opið bréf til heilbrigðisráðherra