Kreddur gegn atvinnu

Fréttablaðið Fastir pennar 26. febrúar 2010 06:15
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen Mynd/Stefán Karlsson
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:

Viðbrögð tveggja talsmanna ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum við áformum um að reka einkasjúkrahús í gamla herspítalanum á Keflavíkurflugvelli hljóta að vekja spurningar um hvort ríkisstjórninni sé alvara þegar hún segist vilja skapa atvinnu í landinu.

Iceland Healthcare, félag undir forystu Róberts Wessman sem fjármagnar verkefnið ásamt erlendum fjárfestum, hyggst reka skurðstofur í gamla herspítalanum og þjónusta erlenda sjúklinga, sem eiga rétt á að leita út fyrir heimalandið eftir liðskipta- og offituaðgerðum ef bið eftir þjónustunni dregst umfram ákveðin mörk. Forsvarsmenn fyrirtækisins telja að verkefnið muni skapa um 300 störf í Reykjanesbæ; við sjálfa heilbrigðisþjónustuna, auk ferðaþjónustu og annarrar þjónustu við sjúklingana og fjölskyldur þeirra. Þá hefur verið áætlað að skatttekjur ríkisins af verkefninu nemi um 300 milljónum króna á ári.

Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, hyggst setja 100 milljónir króna í verkefnið. Það er í samræmi við markmið og tilgang félagsins, sem er í eigu ríkisins.

Af þessu hefur Ögmundur Jónasson, fyrrverandi heilbrigðis­ráðherra, miklar áhyggjur. Hann segir peninga skattborgara notaða til að fjármagna einkasjúkrahús og þá vakni sú spurning hvort fólk vilji tvöfalt heilbrigðiskerfi. Þá sé ekki eðlilegt að láta fé skattgreiðenda renna til einkarekinnar heilbrigðisþjónustu á sama tíma og skorið sé niður í heilbrigðiskerfinu.

Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra bætti um betur í umræðum á Alþingi í gær og sagðist vera alveg á móti einkavæðingu heilbrigðisþjónustu. Varla væri forsvaranlegt að „setja einn milljarð króna [svo] í að gera upp gamlan herspítala". Þetta „dekur við einkageirann" myndi ekki leysa þann vanda, sem steðjaði að íslenzku heilbrigðiskerfi.
Ráðherrann og forveri hennar virðast misskilja með öllu hvað er á ferðinni á Miðnesheiði. Þar er ekki verið að búa til tvöfalt heilbrigðiskerfi fyrir Íslendinga, heldur nýta þekkingu og færni íslenzks heilbrigðisstarfsfólks til að búa til góð störf (mörg þeirra kvennastörf) og skapa útflutningstekjur.

Framlag Þróunarfélagsins er hagnaður af öðrum þróunarverkefnum á svæðinu, eins og Kjartan Þór Eiríksson framkvæmdastjóri benti á í Fréttablaðinu í gær. Ef þessir peningar væru ekki notaðir í þetta atvinnuskapandi verkefni færu þeir í önnur verkefni Þróunarfélagsins, en ekki í heilbrigðiskerfið.

Svo virðist sem kreddur Vinstri grænna villi þeim sýn í þessu máli. Hvernig á að vera hægt að trúa flokki, sem hefur aðra eins andúð á einkageiranum, þegar hann segist vilja búa til ný störf fyrir þúsundir atvinnulausra? Kannski hjálpaði það heldur ekki til að um gamlan herspítala er að ræða, miðað við fyrirlitninguna í rödd heilbrigðisráðherrans þegar hún tók sér orðið í munn.

Það verða störf í einkageiranum, sem munu koma Íslandi út úr kreppunni - hvort sem VG líkar betur eða verr. Það er engin þörf á að dekra við einkaframtakið, en ef stjórnmálamenn standa í vegi fyrir arðbærum verkefnum, munu fá störf skapast á Íslandi.



Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Hindranir hugarfarsins

Eins og orðið hefur áþreifanlega vart við á undanförn...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Háflug og fullveldi

Þegar Benedikt Sveinsson flutti frumvarp á Alþingi um stofnun háskóla þótti ýmsum nóg um h...  

Meira
Fastir pennar 27. jan. 2012 06:00

Samkeppnin er allra hagur

Samkeppniseftirlitið kynnti í gær mikla úttekt á verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði. ...  

Meira
Fastir pennar 27. jan. 2012 06:00

Ekki eins og að stela bíl

Ímyndum okkur skóframleiðanda sem rekur nokkrar verslanir í litlu landi. Skóframleiðandinn...  

Meira
Fastir pennar 26. jan. 2012 06:00

Tímabært að taka sönsum

Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur skilað skýrslu að beiðni ríkisstjórnarinnar þar sem ...  

Meira
Fastir pennar 26. jan. 2012 06:00

Vítahringur Vestursins

Einn ráðgjafa Clintons forseta sagðist áhugalaus um að eyða næstu jarðvist sinni sem forse...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Aukablad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir

Kvöldfréttir

Horfa í Beinni
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / / Kreddur gegn atvinnu