Herranótt: Vika í frumsýningu

Vísir MR 19. febrúar 2010 14:59
Herranótt setur upp LoveStar eftir Andra Snæ Magnason
Herranótt setur upp LoveStar eftir Andra Snæ Magnason
Guðmundur Felixson skrifar:
Nú er vika í frumsýningu Herranætur, leikfélags MR, en leikverk þessa árs ber heitið LoveStar. Sagan er eftir Andra Snæ Magnason og leikstjóri, og jafnframt höfundur leikgerðar er Bergur Þór Ingólfsson. Verkið fjallar um stórfyrirtækið LoveStar, forstjóra þess og vandamálin sem fylgja því að rannsaka hluti sem eiga ekki að vera rannsakaðir. Einnig fylgjumst við með Indriða og Sigríði, ástföngnu pari sem bregður aldeilis í brún þegar þeim berst bréf frá LoveStar.

Sýningin fer fram í Norðurpólnum, nýju leikhúsi að Bygggörðum 5, Seltjarnarnesi.
Sýningadagar eru eftirfarandi:

26. febrúar kl. 20 - FRUMSÝNING
28. febrúar kl. 20
3. mars kl. 20
5. mars kl. 20
6. mars kl. 19
7. mars kl. 17
13. mars kl. 16
13. mars kl. 21 - LOKASÝNING

Miðasölusíminn er 695-4300 og almennt miðaverð á sýninguna er 1500 krónur (þátttakendur í leikfélögum annarra framhaldsskóla fá miðann á 1000 krónur)

Sjáumst á Herranótt!

Fleiri fréttir - MR

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Skoðun

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ríkisvæðing er mesta hættan

Þorsteinn Pálsson
Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfirborðsmennsku í ...

Skoðun

Panikk í pólitík

Panikk í pólitík

Ólafur Þ. Stephensen
Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í gær, sýna að mi...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Skólalíf / MR / / Herranótt: Vika í frumsýningu