Eydís Helga Árnadóttir skrifar:
Nemendur gengu um skólann međ trommu og gítarspil og sungu međ og hvöttu samnemendur sína til ađ taka ţátt, Dóri DNA kom og var međ uppistand og fengum viđ svo trúbadorana Baldur og Eggert til ađ koma og spila fyrir okkur í hádeginu.
Nemendur hafa enn ekki gefiđ upp alla von og ćtlar Morfísliđiđ okkar ađ taka á móti Guđrúnu Hrefnu og Stefáni Benediktssyni í matsalnum í hádegishlénu og halda opin fund um árshátíđarmál. Ţeim sem vilja gefst síđan kostur á ađ segja sína skođun á málinu og spyrja spurninga.
Nemendafélagiđ, sem og fleiri nemendur, telja árshátíđina eina atburđinn sem sameinar alla nemendur FB, ţví ţeir eru vissulega fjölbreyttur hópur fólks á öllum aldri.
Nemendafélagiđ bauđst til ţess í ár til ađ koma til móts viđ skólayfirvöld međ ţví ađ kaupa auka gćslu; fleiri gćslumenn og gćslu alla nóttina, bjóđa foreldrafélaginu sem og öđrum foreldrum ađ taka ţátt í ađ árshátíđin gangi vel og ađ vera međ Edrúpottinn sem NFB hefur veriđ međ á öđrum böllum.
Edrúpotturinn virkar ţannig ađ ţú tekur ţá ákvörđun ađ mćta edrú á ball, blćst ţá í áfengismćli og kemst í pottinn ef ţú ert edrú, svo eru dregin út nokkur nöfn og ţeim fengin verđlaun.
Er ţađ einlćgur ásetningur nemenda ađ leysa máliđ friđsamlega og í sátt viđ alla.