Fréttablaðið, 09. feb. 2010 05:00

Línur skýrast í Eurovision

mynd
Hera og keppinautarnir

Línur eru allverulega farnar að skýrast í Eurovision. Hera Björk og lagið „Je ne sais quai" keppa fyrir okkar hönd og freista þess að komast upp úr undanúrslitakvöldinu, þriðjudagskvöldið 25. maí.

Andrúmsloftið var rafmagnað þegar Jógvan og Hera Björk stóðu titrandi á pallinum á laugardagskvöldið. Símakosningin var líka hnífjöfn, aðeins 203 atkvæði skildu lögin að. Einhver hefði sem sé getað eytt 20.380 krónum í að koma Jógvani til Oslóar. Það gengur bara betur næst.

Á Euro-nördsíðum eru skiptar skoðanir um ágæti sigurlagsins. Margir minnast á að þetta sé alls ekki eins gott lag og „Is it true", sumir að það líkist „This is my life" einum of mikið og sé of fyrirsjáanleg Eurovision-klisja. Aðrir eru þó mun hrifnari.



Í vondum riðli

mynd

Búið er að skipa flytjendum í riðla og það má segja að Ísland hafi lent í „vondum" riðli. Lagið er eitt af sautján sem keppa þriðjudagskvöldið 25. maí og tíu af þeim fara áfram í aðalkeppnina. Ekki er búið að ákveða röð laganna, en þeim hefur verið skipt í tvo hópa. Hera flytur sitt lag í seinni hópnum. Í gegnum tíðina hafa íslensk lög fengið mestan stuðning frá Svíþjóð, Danmörku, Noregi, Bretlandi og Portúgal. Af þessum fimm löndum er aðeins Portúgal með okkur í riðli. Finnland er eina Norðurlandaþjóðin auk Íslands í riðlinum. Þarna er Rússland og fjöldi fyrrum ráðstjórnarríkja, en einnig Malta, Grikkland og Belgía. Þýskaland og Spánn, sem fara beint í úrslitaþáttinn, taka þátt í símakosningunni á okkar kvöldi. Í seinni riðlinum, fimmtudagskvöldið 27. maí, eru Danmörk og Svíþjóð, auk þess sem Noregur kýs þetta kvöld. Úrslitin fara svo fram laugardagskvöldið 29. maí með samtals 25 lögum.



Enskan á undanhaldi

mynd

Samtals keppa 39 lög í Eurovision í ár. Lögin detta nú inn eitt af öðru, síðast ísraelska lagið 14. mars. Með íslenska laginu eru átta lög tilbúin. Danir völdu þau Chanée & N'evergreen og lagið „In a moment like this". Það hljómar ekki ósvipað og „Every breath you take" með The Police áður en það hrynur í Eurovision-viðlag. Norðmenn unnu síðast og fara því beint í úrslitaþáttinn. Þeir völdu ægilegan spaða sem heitir Didrik Solli-Tangen og er 22 ára. Lagið er grátbólgin hetjuballaða sem gæti verið með Celine Dion. Finnarnir senda kvennadúettinn Kuunkuiskaajat. Það hefur að skipa tveimur ljóskum sem voru í þjóðlagagrúppunni Värttinä - báðar syngja og önnur spilar líka á harmóniku. Finnar taka þjóðlagavinkilinn á keppnina í ár og syngja fjörugt lagið á sínu gullfallega tungumáli.
Enskan virðist á undanhaldi í Eurovision í ár. Lögin virðast oftar sungin á þjóðtungu keppnislandanna en áður. Albanar senda Julíönu Pasha, sem syngur á albönsku, Sviss sendir Michael von der Heide sem syngur á frönsku, rokkarinn Vukašin Braji frá Bosníu og Hersegóvínu syngur á bosnísku og hollenski söngvarinn Sieneke syngur á hollensku. Þótt ekki sé búið að velja lögin hafa Slóvakía, Króatía og Slóvenía tilkynnt að þeirra lög verði flutt á heimatungumálunum. Vonandi fara fleiri þjóðir þessa leið því þá fer Eurovision að standa undir nafni sem dægurlagakeppni allrar Evrópu.
drgunni@frettabladid.is



mynd



Fleiri fréttir

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 16:30

Reese Witherspoone í hlutverk sveitakonu

Stórleikkonan Reese Witherspoon er orðuð við aðalhlutverkið í nýrri mynd, The Pioneer Woma...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 14:30

Páll Óskar og Hjaltalín slógu í gegn - myndir

Páll Óskar Hjálmtýsson og Hjaltalín stóðu fyrir mögnuðum tónleikum á Nasa í samstarfi við ...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 14:00

Píslaganga Michaels á Hvíta tjaldið

Verið er að vinna að nýrri mynd um síðustu daga af ævi poppgoðsins Michaels Jackson, segir...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 12:53

Humarsamloka á 600 vini á Facebook

Facebook samskiptasíðan sem hefur tröllriðið Íslensku netsamfélagi tekur á sig ýmsar myndi...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 12:00

Fyrrum ástmaður vill 3,8 milljarða frá Lady Gaga

Fyrrverandi ástmaður söngkonunnar Lady Gaga hefur stefnt henni og krefst 30 milljóna dolla...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 10:54

Peter lætur fjarlægja nafn sinnar fyrrverandi

Peter Andre, sem einusinni var þokkalega frægur söngvari en er nú þekktari sem fyrrverandi...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 10:00

Iceland fyrirsætan er ástfangin af einkaþjálfaranum

Fyrirsætan Kerry Katona er ástfangin af einkaþjálfaranum sínum, Kevin Green. Katona er bes...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 09:56

Jesse James biðst vægðar

Jesse James, hinn ótrúi eiginmaður Söndru Bullock hefur beðið fjölskyldu sína fyrigefninga...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 09:10

Polanski reynir að losna undan nauðgunardómi

Lögfræðingar leikstjórans Romans Polanski reyna enn að losa hann undan dómi sem hann fékk ...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 06:00

Mikil læti og gauragangur

Söngleikurinn Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarson...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 06:00

Spaugstofan er beittari

Nanna Guðmundsdóttir er að skrifa BA-ritgerð í þjóðfræði um Spaugstofuna og nálgun hennar ...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 06:00

Forsetafrúin krefst afsökunarbeiðni frá Telegraph

„Dorrit er mjög sár yfir þessum alranga fréttaflutningi sem birtist í þessu breska blaði o...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 05:45

Grímur Atlason flytur á mölina

„Mig langar bara að njóta lífsins með mínu fólki," segir Grímur Atlason, sveitarstjóri í D...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 05:00

Tónleikar í minningu Rutar

Í dag kl. 17 munu Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir messósópransöngkona og Ástríður Alda Sigurðar...  

Meira

Fréttir af fólki 19. mar. 2010 04:30

Fyrsta plata Ladda í 20 ár

Tónlistarferill Ladda hefur setið á hakanum lengi, en nú verður breyting þar á: Ný plata m...  

Meira

Leit á Vísi

Lífið


Nýtt á Vísi

Sirkus

Föstudagur

Nærmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni