- Forsíða
- Fréttir
- Viðskipti
- Íþróttir
- Lífið
- Umræðan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiðlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Samstarf vélhjólaklúbbsins MC Iceland, áður Fáfnis og erlendra deilda Hells Angels glæpasamtakanna sem og fyrirhuguð innganga íslenska hópsins í samtökin skapar hættu á aukinni skipulagðri glæpastarfsemi á Íslandi og felur því í sér ógn við samfélagið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni vegna ákvörðunar yfirvalda að senda Leif Ivar Kristanssen, foringja Hells Angels samtakanna í Noregi, sem var stöðvaður við komuna til landsins í gær aftur til Noregs með flugi í morgun.
„Það er mat lögreglunnar að meina beri erlendum félögum í Hells Angels landgöngu m.a. með það að markmiði að sporna við fyrirhuguðu inngönguferli MC Iceland í Hells Angels," segir í tilkynningunni.
Þar segir að koma Leifs Ivars til Íslands tengjast án vafa fyrirhugaðri inngöngu íslenska vélhjólaklúbbsins í Hells Angels. Við þá inngöngu fái íslenski hópurinn stöðu fullgildrar deildar innan Hells Angels.
„Til þess að hljóta fulla aðild mun íslenski hópurinn þurfa að geta sýnt fram á að starfsemi og skipulag sé í samræmi við kröfur Hells Angels. Þetta eykur hættu á aukinni skipulagðri glæpastarfsemi af hálfu íslensku félaganna."
Þá er minnt á að afar algengt sé að félagar í Hells Angels hafi hlotið refsidóma fyrir alvarleg afbrot og ljóst sé að í röðum þeirra sé að finna marga ofbeldismenn. Þetta eigi einnig við um nokkra félaga í MC Iceland.
Tilkynningu lögreglunnar er hægt að lesa í heild sinni hér.
Íslenska konan sem handtekin var á flugvellinum í Líma í Perú um síðustu helgi var með tvö...
Fjarskipti við umheiminn hefðu getað lamast að miklu leyti ef búnaður skemmdarvarga hefði ...
Landssamband lögreglumanna vill að lögreglumenn fái verkfallsrétt aftur. Tillaga þess efni...
Fundur í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair stendur nú yfir. Stuttur var fu...
Íslensk kona er í haldi í Perú grunuð um fíkniefnasmygl. Samkvæmt upplýsingum úr utanríkis...
Gert er ráð fyrir því að um tvö hundruð erlendir gestir frá yfir þrjátíu löndum sæki alþjó...
Næsta mánudag funda norrænir fjármálaráðherrar í Danmörku og er gert ráð fyrir að Steingrí...
Elísa Auður sem lýst var eftir í fjölmiðlum í gær er komin í leitirnar. Lögreglan á höfuðb...
Rafmagni hefur aftur verið komið á í í Holtunum í Reykjavík, nánar tiltekið Brautarholti,...
Tveir innbrotsþjófar voru gripnir glóðvolgir við innbrot í verslun í Sundunum í Reykjavík ...
Grunur leikur á að skemmdarverk hafi verið unnin á rafköplum í fjarskiptamöstrum í grennd ...
Ekki stendur til að breyta lögum til að þeir sem eru í skuldavanda vegna íbúðaláns geti ei...
Miklar skemmdir urðu á gömlu fiskimjölsverksmiðjunni í Sandgerði í fyrrinótt þegar eldur k...
„Ég er með efasemdir um slíka starfsemi á vellinum," segir Atli Gíslason, þingmaður Vinstr...
Flugmálastjórn er langt komin við að meta umsókn hollenska fyrirtækisins E.C.A. Program um...
Foreldrar fjögurra ára bresks drengs hafa verið harðlega gagnrýndir eftir að upp...
Hyggur þú á ferðalög í sumar?