- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Fulltrúi Samfylkingar í leikskólaráði Reykjavíkurborgar furðar sig á að meirihlutinn hyggist lengja biðlista eftir plássi enn frekar með því að spara sér að ráða afleysingafólk í sumar. Hún efast um að sparnaðurinn skili sér.
Eins og fram hefur komið eru 120 börn á biðlista eftir leikskólaplássi í Reykjavík í dag. Meirihluti borgarstjórnar ákvað að ráða ekkert sumarafleysingafólk á leikskólana nú í sumar og því verða engin ný börn tekin inn fyrr en í haust, en venjan hefur verið að börn séu tekin inn yfir sumarið eftir því sem plássin losna.
„Þetta gerir það auðvitað að verkum að mjög langur biðlisti myndast í millitíðinni," segir Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar , en hún á sæti í leikskólaráði borgarinnar.
Þetta fyrirkomulag er aftur á móti heppilegt að mati Ragnars Sæs Ragnarssonar, varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og starfandi formanns leikskólaráðs. „Ég held að það sé mjög eðlileg og góð leið að börn taki sumarleyfi á sama tíma og starfsfólk leikskóla."
Áætlaður sparnaður af þessu eru 50 milljónir króna, en á móti kemur að fjöldi ungs fólks sem hefur fengið sumarvinnu á leikskólum þarf að leita annað, að mati Oddnýjar. „Einhvern veginn þurfum við að mæta þeim. Þannig að ég veit ekki hvort þetta sé í rauninni hagræðing sem skilar einhverju."
Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að flokkarnir í borgarstjórn hafa á síðustu fjórum árum fengið 130 milljónir í styrki frá borginni, tæpar 30 milljónir á þessu ári sem er 60% af því sem sparast við að ráða ekki sumarstarfsfólk í leikskólana.
Oddný telur sjálfsagt mál að skoða hvort borgin lækki styrki til flokkanna í ljósi ástandsins.
„Ég get varla svarað svona spurningu og sérkennilegri. Hún er ekki svaraverð," segir Ragnar Sær aðspurður hvort hann telji að lækka eigi styrkina.
Stjórn Vinstri grćnna tekur undir ályktanir Ungra Vinstri grćnna og Vinstri grćnna í Reykj...
Bjarni Benediktsson, formađur Sjálfstćđisflokksins, segir ađ Íslendingar eigi betri mögule...
Tangóunnendur og tangódansarar skemmtu sér í Iđnó og Ráđhúsi Reykjavíkur í nótt og dönsuđu...
Almannavarnir vinna enn effir áćtlunum um óvissustig á svćđinu viđ Eyjafjallajökul vegna m...
Fimm voru fluttir á slysadeild til skođunar ţegar ađ bíll valt á Suđurlandsvegi viđ Sandsk...
Brotist var inn í ljósmyndavöruverslun í Brautarholti á fjórđa tímanum í nótt. Ţrír voru h...
Meirihluti ţeirra sem afstöđu tóku í skođanakönnun Fréttablađsins vill ađ ţjóđin fái ađ gr...
Stúlka á átjánda ári lenti í hremmingum eftir ađ dávaldurinn Sailesh hafđi dáleitt hana í ...
Stuđningurinn viđ ríkisstjórn Jóhönnu Sigurđardóttur er 38,9 prósent, samkvćmt skođanakönn...
„Öll erum viđ sammála um ađ bankakreppa á viđ kreppuna á Íslandi megi ekki koma upp aftur,...
Lögreglan á Suđurnesjum og tollgćslan á Keflavíkurflugvelli hafa tekiđ ţrjátíu og átta man...
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samţykkti í gćr fyrir sitt leyti tillögu Ţorleifs Gunnlaugsso...
Bćđi Fjölbrautaskólinn í Ármúla og Verzlunarskóli Íslands halda áfram ađ kenna grunnskólan...
Formanni umhverfisnefndar Flóahrepps var fyrirvaralaust vikiđ frá störfum á fundi sveitar...
Afar líklegt er ađ neytendur ţurfi ađ greiđa meira fyrir ţjónustu Orkuveitu Reykjavíkur á ...
Fimm menn lokuđust inni í bankahvelfingu í húsakynnum veitingastađarins B-5 viđ ...
Af ţeim flokkum sem eru á ţingi, hvađa tveggja flokka ríkisstjórn myndir ţú styđja?