- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Samningar eru í burðarliðnum um risastóra kísilverksmiðju í Þorlákshöfn. Fjárfestingin næmi um 150 milljörðum króna og yfir þrjúhundruð framtíðarstörf skapast.
Samningar um verksmiðju sem framleiddi kísil í sólarrafhlöður voru raunar langt komnir fyrir tveimur árum við norskt fyrirtæki en það hætti við og ákvað að reisa verksmiðjuna í staðinn í Kanada. Nú er það hins vegar fyrirtæki vestanhafs sem áformar slíka uppbyggingu við Þorlákshöfn en samkvæmt heimildum Stöðvar 2 er stefnt að því að samningsrammi um verksmiðjuna verði undirritaður á næstu dögum milli fyrirtækisins, Orkuveitu Reykjavíkur og Sveitarfélagsins Ölfuss.
Þetta yrði gríðarstórt verkefni, sannkölluð stóriðja. Umfang framkvæmda slagar upp í hálft álver, og yfir þrjúhundruð framtíðarstörf verða til, þar af um eitthundrað sem krefjast háskólamenntunar. Undirritun skilar málinu þó ekki í höfn, stór óvissuþáttur verður óleystur fyrir Orkuveituna; að tryggja sér lánsfé til virkjanaframkvæmda.
Athygli vekur að ríkisstjórnin kemur hvergi nærri undirbúningi þessa verkefnis en henni hefur, þrátt fyrir gefin fyrirheit í stöðugleikasáttmála, ekki tekist að koma stórframkvæmdum í gang í landinu en mátt sitja undir gagnrýni fyrir að tefja og hindra slík áform.
Orkuveita Reykjavíkur hyggst selja orku Hverahlíðarvirkjunar til kísilversins en sú orka myndi annars að öllum líkindum fara til álvers í Helguvík. Tímabundið forgangsréttarákvæði tryggir hins vegar Sveitarfélaginu Ölfusi þessi 90 megavött frá Hellisheiði, svo fremi að kaupandi finnist þar fyrir lok maímánaðar næstkomandi. Takist samningar um kísilver færi orkan þannig til Þorlákshafnar en jafnframt myndi aukast óvissa um orkuöflun fyrir álver í Helguvík.
Hvorki brćđurnir Lýđur og Ágúst Guđmundssynir né Jón Ásgeir Jóhannesson hafa áhuga á ţví a...
Utanríkisráđherra Litháens, Evaldas Ignatavičius, fundađi á dögunum međ Elínu Flygeri...
Lögfrćđingurinn Sigurđur G. Guđjónsson, fékk greidda 200 ţúsund króna kröfu í Fons fyrir n...
Talsmađur Samtaka lánţega segist harma auđsýnt máttleysi stjórnvalda viđ ađ taka á ţeim br...
Gylfi Magnússon viđskiptaráđherra telur rök vera fyrir ţví ađ banna innflutning á vörum se...
Rebekka María Jóhannesdóttir, 23 ára gömul kona, sem missti móđur sína síđastliđiđ haust o...
Íslendingur er 66 milljónum ríkari eftir ađ hann vann í Víkingalottóinu í kvöld en fyrsta ...
Háskóli Íslands er kominn á Skagaströnd og búinn ađ stofna ţar rannsóknarsetur í sagnfrćđi...
Stofnfjáreigendur í Húnaţingi, sem bíđa ţess ađ gengiđ verđi ađ eignum ţeirra, leita svara...
Fimm menn eru í haldi lögreglunnar á Selfossi vegna innbrota í eina átta sumarbústađi í la...
Fjórir menn voru dćmdir í Hérađsdómi Reykjavíkur í dag fyrir hćttulega líkamsárás međ golf...
„Ţađ er ótvírćtt mín skođun ađ ţađ eigi ađ auglýsa í stöđur hjá fyrirtćkjum sem eru ađ mei...
Nýju kaupleigukerfi verđur komiđ á fót hjá Íbúđalánasjóđi vegna eigna sem hann á nú ţegar ...
Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu lýsir eftir Elísu Auđi Ađalmundardóttur 15 ára sem fór ađ h...
Litlar líkur eru á ţví ađ hugmyndir um einkarekinn flugher á Íslandi verđi ađ veruleika ef...
Furđufiskur sem fannst spriklandi úti í móa viđ Stekkjarhvamm í Hafnarfirđi er s...
Hyggur ţú á ferđalög í sumar?