Samningar eru í burðarliðnum um risastóra kísilverksmiðju í Þorlákshöfn. Fjárfestingin næmi um 150 milljörðum króna og yfir þrjúhundruð framtíðarstörf skapast.
Samningar um verksmiðju sem framleiddi kísil í sólarrafhlöður voru raunar langt komnir fyrir tveimur árum við norskt fyrirtæki en það hætti við og ákvað að reisa verksmiðjuna í staðinn í Kanada. Nú er það hins vegar fyrirtæki vestanhafs sem áformar slíka uppbyggingu við Þorlákshöfn en samkvæmt heimildum Stöðvar 2 er stefnt að því að samningsrammi um verksmiðjuna verði undirritaður á næstu dögum milli fyrirtækisins, Orkuveitu Reykjavíkur og Sveitarfélagsins Ölfuss.
Þetta yrði gríðarstórt verkefni, sannkölluð stóriðja. Umfang framkvæmda slagar upp í hálft álver, og yfir þrjúhundruð framtíðarstörf verða til, þar af um eitthundrað sem krefjast háskólamenntunar. Undirritun skilar málinu þó ekki í höfn, stór óvissuþáttur verður óleystur fyrir Orkuveituna; að tryggja sér lánsfé til virkjanaframkvæmda.
Athygli vekur að ríkisstjórnin kemur hvergi nærri undirbúningi þessa verkefnis en henni hefur, þrátt fyrir gefin fyrirheit í stöðugleikasáttmála, ekki tekist að koma stórframkvæmdum í gang í landinu en mátt sitja undir gagnrýni fyrir að tefja og hindra slík áform.
Orkuveita Reykjavíkur hyggst selja orku Hverahlíðarvirkjunar til kísilversins en sú orka myndi annars að öllum líkindum fara til álvers í Helguvík. Tímabundið forgangsréttarákvæði tryggir hins vegar Sveitarfélaginu Ölfusi þessi 90 megavött frá Hellisheiði, svo fremi að kaupandi finnist þar fyrir lok maímánaðar næstkomandi. Takist samningar um kísilver færi orkan þannig til Þorlákshafnar en jafnframt myndi aukast óvissa um orkuöflun fyrir álver í Helguvík.
Krafa SP Fjármögnunar á hendur manni sem leigt hafđi bíl međ samnningi viđ fyrirtćkiđ var ...
Ný ákvćđi í ţýskum lögum gćtu orđiđ til ţess ađ ţýska ţjóđţingiđ fái ekki nćgan tíma til a...
Reykjavíkurdeild Rauđa Kross Íslands og Reykjavíkurborg hafa endurnýjađ samning um áframha...
Hérađsdómur Reykjavíkur dćmdi í gćr íslenska ríkiđ til ađ greiđa eiginmanni og tveimur bör...
Fyrr í kvöld fór fram afhending Menningarverđlauna DV fyrir áriđ 2009. Menningarverđlaun D...
Allar líkur eru á ađ Ögmundur Jónasson sé aftur á leiđ í ráđherrastól og ađ Jón Bjarnason ...
Haförninn í Húsdýragarđinum var fluttur á Dýraspítalann í Víđidal í Reykjavík í dag og lag...
Vilhjálmur Ţ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, skipar heiđurslista sjálfstćđismanna...
Bandarískur lćknir sem annast hefur íslenska telpu sem glímir viđ alvarleg veikindi undras...
Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu lýsir eftir Regínu Sif Marinósdóttur. Hún fór frá Landspíta...
Samtök ferđaţjónustunnar segja ţađ mjög alvarlegt mál ađ fámennir hópar geti truflađ flug ...
Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu lýsir eftir Jóhanni Inga Margeirssyni, 13 ára. Taliđ er ađ ...
Mistök urđu ţess valdandi ađ farangurinn víxlađist ţegar veriđ var ađ ferma tvćr vélar frá...
Jarđskjálftavirkni undir Eyjafjallajökli hefur heldur róast ţađ sem af er degi. Töluverđ s...
Fulltrúar Samfylkingarinnar í borgarráđi hafa óskađ eftir yfirliti og umrćđum um stöđu van...
Á ísland ađ segja sig úr NATÓ?