- Forsíða
- Fréttir
- Viðskipti
- Íþróttir
- Lífið
- Umræðan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiðlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Héraðsdómur sektaði í dag ökumann sjúkrabíls fyrir brot á umferðarlögum þegar hann ók í forgangsakstri gegn rauðu ljósi með þeim afleiðingum að annar bíll ók á sjúkrabílinn sem valt. Áreksturinn varð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu en sjúkrabíllinn var á leið í útkall á Hagamel og var í forgangsakstri vestur Hringbraut.
Rautt ljós kviknaði rétt áður en hann kom að gatnamótunum og sagðist ökumaður sjúkrabílsins hafa litið yfir gatnamótin og engan bíl séð. Engu að síður ók bíll sem var á leið suður Njarðargötuna inn í hlið sjúkrabílsins með þeim afleiðingum að hann valt. Ökumaður þess bíls sagðist ekki hafa heyrt í sírenum sjúkrabílsins né séð blikkljós hans. Önnur vitni bera þó að þau hafi heyrt og séð sjúkrabílinn koma inn á gatnamótin.
Talið er að sjúkrabíllinn hafi verið á um sextíu kílómetra hraða á klukkustund og hinn bílstjórinn kvaðst hafa verið á um 50 kílómetra hraða. Dómari kemst að því að ökumanni sjúkrabílsins hafi borið að sýna sérstaka varúð þegar hann ók yfir gatnamótin. Hraðinn hafi hinsvegar verið of mikill því honum tókst ekki að stöðva bílinn tafarlaust og því hafi hann ekki sýnt þá varúð sem honum bar að sýna við akstur um gatnamót.
„Breytir engu um þess niðurstöðu að ákærði hafði uppi hljóð- og ljósmerki á sjúkrabifreiðinni. Það er því niðurstaða dómsins að ákærði hafi gerst sekur um það sem honum er gefið að sök í ákærunni og er brot hans þar rétt fært til refsiákvæða," segir í dómsorði. Maðurinn var því dæmdur til að greiða 60 þúsund krónur í sekt auk þess sem hann þarf að standa skil á greiðslu sakarkostnaðar að upphæð 425 þúsund krónur.
Fimm menn lokuðust inni í bankahvelfingu í húsakynnum veitingastaðarins B-5 við Bankastræt...
Hollendingar ætla ekki að koma í veg fyrir að Íslendingar geti hafið aðildarviðræður við E...
Engin hefur enn verið handtekinn eða yfirheyrður vegna spellvirkjanna, sem unnin voru á fj...
Flugvirkjar hjá Icelandair hafa verið boðaðir til samningafundar við vinnuveitendur hjá rí...
Sjálfstæðisflokkurinn er á ný langstærsti stjórnmálaflokkur landsins, samkvæmt niðurstöðum...
„Næstu niðurskurðarskref, vegna ársins 2011, verða miklum mun erfiðari en það sem við höfu...
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig miklu fylgi á kostnað stjórnarflokkanna samkvæmt niður...
Alþjóða dýraverndunarsjóðurinn (IFAW) hefur kært útflutning á hvalaafurðum frá Íslandi til...
Tveir menn sitja nú í gæsluvarðhaldi í tengslum við innflutning nær eins lítra af fljótand...
Ríkissaksóknari hefur ákært fésbókarmanninn svokallaða fyrir ýmis brot, þar á meðal gróf k...
Þórður Már Jónsson, laganemi og varaþingmaður Samfylkingarinnar, fer fyrir nýstofnuðum sam...
„Þetta er algjörlega forkastanlegt," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylk...
Landsþing Frjálslynda flokksins verður sett á Hótel Cabin í Reykjavík síðdegis. Um hundrað...
Sextugur karlmaður situr nú í gæsluvarðhaldi til 7. apríl eftir að hann var handtekinn við...
Bæjarráð Hafnarfjarðar telur Alcan á Íslandi enn ekki hafa skýrt nægilega vel vilja sinn ...
Fjarskipti við umheiminn hefðu getað lamast að miklu leyti ef búnaður skemmdarva...
Ert þú ánægð(ur) með útspil ríkisstjórnarinnar til lausnar skuldavanda heimilanna?