Vísir, 09. feb. 2010 13:09

Eyrarrósin afhent á Bessastöðum í næstu viku

mynd

Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent á Bessastöðum mánudaginn 15. febrúar kl. 16.00 og er það í sjötta sinn sem viðurkenningin er veitt. Þrjú verkefni hafa verið tilnefnd úr hópi umsækjenda: tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra, Eiríksstaðir í Haukadal og Skjaldborg - heimildarmyndahátíð á Patreksfirði.

Með Eyrarrósinni fylgir fjárstyrkur að upphæð 1,5 milljónum króna og verðlaunagripur eftir Steinunni Þórarinsdóttur til eignar. Hin verkefnin sem tilnefnd eru hljóta 200 þúsund króna framlag. Öll verkefnin hljóta að auki flugferðir frá Flugfélagi Íslands.

Dorrit Moussaieff forsetafrú, sem jafnframt er verndari Eyrarrósarinnar, afhendir verðlaunin og Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra flytur ávarp við athöfnina. Þá flytja tónlistarmennirnir Sigríður Thorlacius og Högni Egilsson tónlist.

„Eyrarrósin er veitt á ári hverju einu menningarverkefni á landsbyggðinni. Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands. Markmið Eyrarrósarinnar er að efla fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Auglýst er eftir umsóknum í fjölmiðlum ár hvert og eru umsækjendur meðal annars ýmis tímabundin verkefni, menningarhátíðir, stofnanir og söfn. Fjögurra manna verkefnisstjórn, skipuð forstjóra og stjórnarformanni Byggðastofnunar og stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík, tilnefnir og velur verðlaunahafa," segir í tilkynningu.

Í fyrra hlaut Landnámssetrið í Borgarnesi Eyrarrósina en aðrir handhafar hennar eru Rokkhátíð alþýðunnar - Aldrei fór ég suður, Strandagaldur á Hólmavík, LungA, listahátíð ungs fólks á Austurlandi og Þjóðlagahátíðin á Siglufirði.

Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands. Listahátíð í Reykjavík 2010 verður haldin frá 12. maí til 5. júní 2010.




Umsögn valnefndar um verkefnin:

Bræðslan
Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra er haldin árlega í húsi gamallar síldarbræðslu Kaupfélags Héraðsbúa, sem breytt hefur verið í tónleikahús. Hátíðin hefur vaxið jafnt og þétt og á síðasta ári voru gestir Bræðslunnar um tvö þúsund talsins. Aðalsmerki Bræðslunnar er hin einstaka stemning sem myndast í síldarbræðslunni á tónleikakvöldinu sjálfu. Með alúð við skipulagningu hátíðarinnar og listrænum metnaði stjórnenda hefur Bræðslunni tekist að efla menningarlíf, mannlíf og ferðaþjónustu svæðisins og virkjað sköpunargleði og samtakamátt íbúa Borgarfjarðar eystra. Þannig hefur þessu samstarfsverkefni nokkurra heimamanna tekist að skapa Borgarfirði eystra fastan sess í tónleikaflóru sumarsins og varanlegt sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu.

Eiríksstaðir
Aðstandendur Eiríksstaða í Haukadal hafa sýnt aðdáunarvert frumkvæði í miðlun menningararfs með uppbyggingu tilgátubæjar þar sem landkönnuðurinn Leifur heppni er uppalinn. Að Eiríksstöðum upplifa gestir á trúverðugan hátt umhverfi daglegs lífs fyrir þúsund árum og með því eflist vitund Íslendinga, erlendra ferðamanna og ekki síst barna um menningararf þjóðarinnar. Þátttaka heimamanna í uppbyggingu Eiríksstaða hefur verið mikil og hefur hún stuðlað að aukinni þekkingu innan héraðs á fornu handverki og sögu og þróað sjálfa hugmyndina um söfn og hlutverk þeirra. Eiríksstaðir í Haukadal eru framúrskarandi dæmi um fagmennsku og metnað í uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu.

Skjaldborg
Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildarmynda, er haldin árlega í kvikmyndahúsinu Skjaldborg á Patreksfirði. Á Skjaldborg fá kvikmyndaáhugamenn aðgang að fjölbreyttri flóru heimildarmynda þar sem hið smáa, stóra, skrýtna og ódýra er lagt að jöfnu. Aðgangur að hátíðinni er ókeypis og sýnt er við bestu aðstæður í nýuppgerðu kvikmyndahúsi bæjarins, auk þess sem boðið er upp á umræður og margvíslega viðburði í bæjarfélaginu á meðan á hátíð stendur. Gildi Skjaldborgar fyrir menningartengda ferðaþjónustu á sunnanverðum Vestfjörðum er óumdeilt og hefur hátíðinni tekist að vekja áhuga ungra kvikmyndagerðarmanna víðsvegar að af landinu á byggðarlaginu. Að frumkvæði aðstandenda Skjaldborgar er Patreksfjörður því orðinn höfuðborg heimildarmyndarinnar á Íslandi.


Fleiri fréttir

Innlent 18. mar. 2010 06:59

Skemmdir unnar á fjarskiptamöstrum

Grunur leikur á að skemmdarverk hafi verið unnin á rafköplum í fjarskiptamöstrum í grennd ...  

Meira

Innlent 18. mar. 2010 07:03

Sígarettuþjófar teknir

Tveir innbrotsþjófar voru gripnir glóðvolgir við innbrot í verslun í Sundunum í Reykjavík ...  

Meira

Innlent 18. mar. 2010 06:00

Fá ekki að skila lyklunum að sinni

Ekki stendur til að breyta lögum til að þeir sem eru í skuldavanda vegna íbúðaláns geti ei...  

Meira

Innlent 18. mar. 2010 06:00

Fyrirtækin skulda um 112 milljarða í skatta

Alls voru um 112 milljarðar króna í vanskilum af sköttum og opinberum gjöldum hjá atvinnul...  

Meira

Innlent 18. mar. 2010 06:00

Útiloka ekki að kveikt hafi verið í

Miklar skemmdir urðu á gömlu fiskimjölsverksmiðjunni í Sandgerði í fyrrinótt þegar eldur k...  

Meira

Innlent 18. mar. 2010 06:00

Þingmaður sjálfstæðisflokks lýsir stuðningi en þingmaður VG efast

„Ég er með efasemdir um slíka starfsemi á vellinum," segir Atli Gíslason, þingmaður Vinstr...  

Meira

Innlent 18. mar. 2010 05:00

Kröfur lækka um 30 milljarða

Gott jafnvægi er komið á útlánasafn Kaupþings, sem er með tvö lánasöfn í virkri stýringu: ...  

Meira

Innlent 18. mar. 2010 05:00

Securitas fylgir ekki með í sölu Securitas

Sænska félagið Securitas AB hafnar því að vörumerkið Securitas fylgi með í kaupunum á þrot...  

Meira

Innlent 18. mar. 2010 04:00

Styttist í pólitíska ákvörðun

Flugmálastjórn er langt komin við að meta umsókn hollenska fyrirtækisins E.C.A. Program um...  

Meira

Innlent 18. mar. 2010 04:00

Hluthafar gætu brunnið inni

Afskráning með þeim hætti sem Bakkavör áformar er ekki hafin yfir vafa, að mati Þórðar Fri...  

Meira

Innlent 18. mar. 2010 03:45

Segja málaliðaher auvirðilegt fyrirbæri

Samtök hernaðarandstæðinga (SHA) telja að einkarekinn flugher hollenska fyrirtækisins E.C....  

Meira

Innlent 18. mar. 2010 03:13

Ellefu áfram í Gullegginu

Ellefu viðskiptaáætlanir hafa verið valdar til að taka þátt í Gullegginu 2010, frumkvöðlak...  

Meira

Innlent 18. mar. 2010 03:13

Hafa áhyggjur af búfjárbyltingunni

Framleiðsla og neysla á kjöti hefur þrefaldast á síðustu þremur áratugum og allt stefnir í...  

Meira

Innlent 18. mar. 2010 03:13

Efnahagslífið enn brothætt

efnahagsmál Bankastjórn Seðlabanka Bandaríkjanna ákvað á þriðjudag að halda stýrivöxtum ób...  

Meira

Innlent 18. mar. 2010 03:13

Bæta í sjóðina

Eik Banki í Færeyjum hefur samið við dönsk stjórnvöld um aðgang að ríkistryggðum lánum upp...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir


Nýtt á Vísi

Hyggur þú á ferðalög í sumar?


Kjörkassinn

Nærmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni

-- catnafn="Innlent"--