- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Árni Páll Árnason gagnrýndi harðlega starfsemi fyrirtækja sem veita smálán gegnum netið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Hann sagði að lán til ungmenna á þúsund prósenta vöxtum væru siðlaus sjóræningjastarfsemi. Jafnframt hyggst ráðherrann beita sér fyrir lagasetningu til að takmarka starfsemi fyrirtækja eins og Kredia. Leifur A. Haraldsson, framkvæmdastjóri Kredia, segist ekki geta tekið undir orð ráðherrans.
„Við erum í atvinnurekstri sem felst í því að miðla fjármagn gegnum tölvukerfi. Við tökum fyrir það okkar kostnað til að hafa upp í laun og annað mál," segir Leifur. Af hverju er ráðherrann að halda því fram að þið séuð að taka þúsundir prósenta í vexti? „Hann er væntanlega að vitna til þess að þessi upphæð og kostnaður sem við erum að taka fyrir lánin er umreiknuð í ársvexti þá reiknast það upp í sex hundruð prósent samkvæmt umfjöllun sem hefur verið. Hann er væntanlega að tala um það."
Fyrirtæki Leifs hefur verið gagnrýnt fyrir að höfða sérstaklega til ungs fólks, en þriðjungur allra sem nýta sér þjónustuna er á aldrinum 18-27 ára. Félagsmálaráðuneytinu hefur borist margar ábendingar frá fólki sem finnst þetta okurlánastarfsemi.
„Það er ákveðinn misskilningur sem er í gangi um að ungt fólk og aðrir geti steypt sér í skuldir. Þú færð aldrei tíu þúsund krónur til að byrja með. Og þegar þú ert búinn að greiða það til baka geturðu fengið 20 þúsund króna lán. Þegar það hefur verið greitt geturðu fengið þrjátíu og endað í fjörutíu. Þú getur ekki fengið lán til að greiða annað lán. Viðskiptavinir Kredia geta mest skuldað fyrirtækinu fimmtíu þúsund krónur," segir Leifur.
Leifur segir að starfsemi Kredia sé í fullri sátt við bæði Fjármálaeftirlitið og neytendastofu. Um sé að ræða löglega atvinnustarfsemi sem hafi fengið öll tilskilin leyfi hjá yfirvöldum. „Við fórum í mjög vandaðan undirbúning, lagalegan undirbúning, áður en við fórum af stað með reksturinn. Við sáum til þess að við fórum að öllum lögum og reglugerðum sem þarf til þess að uppfylla, þ.e vinna þessa starfsemi."
Samtök hernađarandstćđinga (SHA) telja ađ einkarekinn flugher hollenska fyrirtćkisins E.C....
Ellefu viđskiptaáćtlanir hafa veriđ valdar til ađ taka ţátt í Gullegginu 2010, frumkvöđlak...
Framleiđsla og neysla á kjöti hefur ţrefaldast á síđustu ţremur áratugum og allt stefnir í...
efnahagsmál Bankastjórn Seđlabanka Bandaríkjanna ákvađ á ţriđjudag ađ halda stýrivöxtum ób...
Eik Banki í Fćreyjum hefur samiđ viđ dönsk stjórnvöld um ađgang ađ ríkistryggđum lánum upp...
Hvorki brćđurnir Lýđur og Ágúst Guđmundssynir né Jón Ásgeir Jóhannesson hafa áhuga á ţví a...
Utanríkisráđherra Litháens, Evaldas Ignatavičius, fundađi á dögunum međ Elínu Flygeri...
Lögfrćđingurinn Sigurđur G. Guđjónsson, fékk greidda 200 ţúsund króna kröfu í Fons fyrir n...
Talsmađur Samtaka lánţega segist harma auđsýnt máttleysi stjórnvalda viđ ađ taka á ţeim br...
Gylfi Magnússon viđskiptaráđherra telur rök vera fyrir ţví ađ banna innflutning á vörum se...
Rebekka María Jóhannesdóttir, 23 ára gömul kona, sem missti móđur sína síđastliđiđ haust o...
Íslendingur er 66 milljónum ríkari eftir ađ hann vann í Víkingalottóinu í kvöld en fyrsta ...
Háskóli Íslands er kominn á Skagaströnd og búinn ađ stofna ţar rannsóknarsetur í sagnfrćđi...
Stofnfjáreigendur í Húnaţingi, sem bíđa ţess ađ gengiđ verđi ađ eignum ţeirra, leita svara...
Fimm menn eru í haldi lögreglunnar á Selfossi vegna innbrota í eina átta sumarbústađi í la...
Furđufiskur sem fannst spriklandi úti í móa viđ Stekkjarhvamm í Hafnarfirđi er s...
Hyggur ţú á ferđalög í sumar?