- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hafi brotið gegn stjórnsýslulögum þegar hún hafnaði skipulagi Þjórsárvirkjana. Dæmi eru um að sveitarfélög séu með ákvæði um gjaldtöku fyrir aðalskipulag í sérstökum samþykktum, sem ráðherra hefur staðfest.
Halldór Halldórsson, formaður Sambandsins, kveðst í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 telja að umhverfisráðherra hafi ekki í hinum umdeilda úrskurði fært fullnægjandi rök fyrir ákvörðun sinni. Sem kunngt er hafnaði Svandís aðalskiplagi vegna virkjana sökum þess að Landsvirkjun greiddi kostnað við skipulagsvinnuna.
Halldór telur úrskurðinn ekki góða stjórnsýslu og segir hann ganga bæði gegn jafnræðisreglu stjórnsýslulaga og meðalhófsreglu. Hann sé brot á jafnræðisreglu vegna þess að sveitarfélög hafi margoft áður fengið greitt fyrir aðalskipulagsvinnu, án þess að athugasemd væri gerð, og brot gegn meðalhófsreglu vegna þess að sveitarfélögunum hafi ekki verið gefið færi á leiðréttingu eða að koma með athugasemdir.
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur nú óskað eftir fundi með umhverfisráðherra um málið en fulltrúar þess hafa þegar rætt það óformlega við Kristján L. Möller, ráðherra sveitarstjórnarmála.
Bæjarstjóri Ölfuss, Ólafur Áki Ragnarsson, hefur sagt nauðsynlegt að látið verði reyna á stjórnsýslu Svandísar Svavarsdóttur í þessu máli fyrir dómsstólum. Ákvörðun hennar setur til dæmis Ölfus í vanda gagnvart sex ára gamalli samþykkt sveitarfélagsins um gjaldskrá fyrir gatnagerðargjöld og þjónustugjöld. Ákvæði hennar mæla beinlínis fyrir um það að aðilar sem sækja um lóð eða byggingarleyfi, sem hafi í för með sér breytingu á aðalskipulagi og/eða deiliskipulagi, skuli greiða þann kostnað sem breytingin hefur í för með sér.
Þessi samþykkt Sveitarfélagsins Ölfuss hefur hlotið staðfestingu ráðherra. Bæjarstjóri Ölfuss telur að fjöldi annarra sveitarfélaga hafi einnig slíkar gjaldtökuheimildir í samþykktum sínum.
Samninganefnd Flugvirkjafélags Íslands settist klukkan tvö á fund í samgönguráđuneytinu me...
„Líklega ţarf nú ađ nefna fólk á nafn til ađ ţađ geti kćrt ađra fyrir meiđyrđi,“ segir Ste...
Eitt hundrađ milljónir króna hafa sparast í lyfjamálum á Landspítala á fyrstu tveimur mánu...
Fyrrverandi hershöfđingi í Bandaríkjaher segir ađ Hollendingum hafi mistekist ađ koma í ve...
Fyrir stundu varđ bilun í háspennukerfi Orkuveitunnar sem veldur rafmagnsleysi í hluta Kór...
Ađföng hafa ákveđiđ ađ innkalla Euro Shopper hindber í 500 gramma pokum. Ákvörđun um ţetta...
Góđar líkur eru á ţví ađ Jóna Denný Sveinsdóttir, sem hefur veriđ í haldi lögreglunnar í P...
Kristján L. Möller, samgönguráđherra, gefur ekkert uppi um hvort til greina komiđ ađ setja...
Ekki náđist samkomulag um skiptingu heildarafla úr markílstofninum, á fundi strandríkja, s...
Fjármálaráđuneytiđ hefur gefiđ út handbók undir yfirskriftinni „Kynjuđ fjárlagagerđ: handb...
Greiningardeild Ríkislögreglustjóra telur ađ hagnađi af fíkniefnaviđskiptum verđi í auknum...
Hverfisráđ Árbćjar fagnar samţykkt borgarráđs Reykjavíkur frá í gćr ađ gengiđ verđi til sa...
Formađur Sjálfstćđisflokksins vill ađ ríkisstjórnin fari frá völdum. Hann segir ađ hún ráđ...
Engin hefur enn veriđ handtekinn eđa yfirheyrđur vegna spellvirkjanna, sem unnin voru á fj...
Fimm menn lokuđust inni í bankahvelfingu í húsakynnum veitingastađarins B-5 viđ Bankastrćt...
Fjarskipti viđ umheiminn hefđu getađ lamast ađ miklu leyti ef búnađur skemmdarva...
Af ţeim flokkum sem eru á ţingi, hvađa tveggja flokka ríkisstjórn myndir ţú styđja?