Stöđ 2, 08. feb. 2010 18:45

Arion banki stefnir Björgólfi Thor

mynd
Björgólfur Thor Björgólfsson.

Ţorbjörn Ţórđarson skrifar:

Arion banki hefur nú höfðað mál gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni vegna persónulegra ábyrgða sem hann og faðir hans tókust á hendur þegar Samson fékk lán hjá Búnaðarbankanum vorið 2003 til að kaupa Landsbankann. Skuld feðganna stendur í tæpum sex milljörðum króna í dag.

Þegar Landsbankinn var einkavæddur vorið 2003 var þriðjungur kaupverðsins sem Samson greiddi fyrir bankann fjármagnaður með láni hjá Búnaðarbanka Íslands. Halldór J. Kristjánsson, þáverandi bankastjóri Landsbankans, var gerður út af örkinni til að óska eftir láni upp á 3,4 milljarða króna fyrir væntanlega eigendur, en á þessum tímapunkti höfðu Björgólfsfeðgar og Magnús Þorsteinsson ekki fengið lyklavöld í bankanum og var hann því enn að forminu til ríkisbanki þegar þetta átti sér stað.

Lánið til Samsonar var formlega afgreitt hinn 25. apríl 2003 en í nokkrar vikur þar á undan hafði verið unnið að lánasamningnum. Elín Sigfúsdóttir, þáverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Búnaðarbankans, undirbjó lánveitinguna, en hún var sem kunnugt er einn fjölmargra starfsmanna Búnaðarbankans sem ráðnir voru yfir til Landsbankans í apríl 2003.

Lánið stendur nú í 6 milljörðum króna með dráttarvöxtum og er hjá Arion banka. Þegar lánið var veitt á sínum tíma gerði Sólon Sigurðsson, þáverandi bankastjóri Búnaðarbankans, þá kröfu að feðgarnir tækjust á hendur persónulega ábyrgð samfara láninu. Á síðasta ári þegar tilraunir Nýja Kaupþings við innheimtu kröfunnar hófust fyrir alvöru voru feðgarnir reiðubúnir að greiða helming skuldarinnar gegn niðurfellingu á hinum helmingnum. Á þetta var ekki fallist af hálfu bankans. Nú er svo komið að bankinn hefur stefnt Björgólfi Thor til innheimtu skuldarinnar á grundvelli hinnar persónulegu ábyrgðar, en bankinn stefnir honum einum þar sem Björgólfur Guðmundsson er gjaldþrota.

Ef dómur gengur í málinu getur bankinn gengið að eignum Björgólfs Thors, en hann á bæði fasteignir og hluti í fyrirtækjum á Íslandi. Þar má til dæmis nefna Vern Holdings, tölvuleikjafyrirtækið CCP, fjarskiptafyrirtækið Nova og lyfjasamsteypuna Actavis. Talsmaður Björgólfs Thors sagði í samtali við fréttastofu að Björgólfi væri ekki kunnugt um málshöfðunina og hefði til þessa litið svo á að hann væri enn í samningaviðræðum við Arion banka.










Fleiri fréttir

Viđskipti innlent 14. mar. 2010 16:51

Yfir 6.000 félög skila ekki ársreikningi fyrir 2008

Alls eiga 6.171 starfandi félög á Íslandi eftir ađ skila ársreikningi vegna ársins 2008. S...  

Meira

Viđskipti innlent 14. mar. 2010 12:00

Alţjóđadagur neytendaréttar á morgun

Alţjóđadagur neytendaréttar er haldinn á morgun og vekja Neytendasamtökin athygli á nokkru...  

Meira

Viđskipti innlent 14. mar. 2010 11:40

Ekki dómur um lögmćti gengislána

Framkvćmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtćkja hafnar ţví ađ hćgt sé ađ túlka ţau orđ hans ađ...  

Meira

Viđskipti innlent 14. mar. 2010 10:51

Greining MP Banka spáir hógvćrri stýrivaxtalćkkun

Greining MP Banka telur líklegast er ađ peningastefnunefnd Seđlabankans ákveđi ađ halda áf...  

Meira

Viđskipti innlent 13. mar. 2010 18:31

Vissi ađ lánin vćru ólögleg fyrir níu árum

Framkvćmdastjóra Samtaka fjármálafyrirtćkja virđist hafa veriđ fullkunnugt um ađ gengistry...  

Meira Myndskeiđ

Viđskipti innlent 13. mar. 2010 18:26

Deutche bank gćti kćrt ríkiđ

Ríkiđ gćti átt yfir höfđi sér málsókn frá Deutsche bank nái hugmyndir félagsmálaráđherra u...  

Meira Myndskeiđ

Viđskipti innlent 13. mar. 2010 12:32

Illugi vill afnema dráttarvexti tímabundiđ

Ţingflokksformađur Sjálfstćđisflokksins vill láta afnema dráttarvexti á lán tímabundiđ og ...  

Meira

Viđskipti innlent 13. mar. 2010 12:09

Naumur tími til ađ taka á skuldavandanum

Íslensk stjórnvöld hafa nauman tíma til ađ taka á skuldavanda ríkisins, segir sérfrćđingur...  

Meira

Viđskipti innlent 13. mar. 2010 06:00

Eftirlitiđ brást hjá Seđlabanka

Hrun íslensku krónunnar áriđ 2008 má rekja beint til íslensku viđskiptabankanna sem gengu ...  

Meira

Viđskipti innlent 13. mar. 2010 05:00

Hátt í 40 ţúsund hafa nýtt sér úrrćđi í bođi

Af viđskiptavinum Landsbankans og Íslandsbanka hafa 60 prósent nýtt sér sjálfvirka greiđsl...  

Meira

Viđskipti innlent 12. mar. 2010 17:07

Gengi bréfa Atlantic Petroleum féllu um tćp átta prósent

Gengi hlutabréfa í fćreyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hćkkađi um 7,84 prósent ...  

Meira

Viđskipti innlent 12. mar. 2010 15:58

GBI vísitalan óbreytt í 23 milljarđa viđskiptum

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI var óbreytt í í dag í miklum viđskiptum. Nam velta skuldab...  

Meira

Viđskipti innlent 12. mar. 2010 15:42

ALP bílaleigan kaupir 160 Volkswagen Golf og Polo

Gengiđ hefur veriđ frá samningi milli HEKLU og bílaleigunnar ALP, umbođsađila AVIS og BUDG...  

Meira

Viđskipti innlent 12. mar. 2010 15:35

Iceland Express sér mikla möguleika í Winnipeg

Matthías Imsland forstjóri Iceland Express sér mikla möguleika á ađ auknum umsvifum á flug...  

Meira

Viđskipti innlent 12. mar. 2010 13:33

Vikuveltan á fasteignamarkađi 1.6 milljarđur

Fjöldi ţinglýstra kaupsamninga á höfuđborgarsvćđinu 5. mars til og međ 11. mars 2010 var 5...  

Meira

Leit á Vísi

Viđskipti


Nýtt á Vísi

Markađurinn

Markađurinn

Viđskiptaorđabók

Fréttaskýringar Nćrmynd

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöđ 2 og Vísi


Ađgengisvirkni