Fréttablađiđ, 08. feb. 2010 06:00

Móralskar armbeygjur

mynd

Júlía Margrét Alexandersdóttir skrifar:

John Terry, landsliðsfyrirliði Englands í knattspyrnu, bættist nýverið í ört stækkandi hóp íþróttamanna sem virðast eiga í erfiðleikum með að halda brókunum uppi. „Pabbi ársins", sem vefur Daddie-tómatsósunnar kaus hann einmitt á síðasta ári, virðist miðað við nýjustu tíðIndi hafa sýnt sömu fyrirhyggju og Tiger félagi hans og haft sveit hjákvenna til taks.

Terry getur samt huggað sig við eitt. Hann er ekki fyrsti frægi íþróttamaðurinn sem er gripinn á gróðurklæðunum. Ashley Cole, Frank Lampard, David Beckham, Tiger Woods, Magic Johnson og svo mætti lengi telja. Þetta er heldur ekki fyrsta atvinnustéttin sem lætur svona. Poppstjörnur gleyma líka oft að hneppa upp um sig. Ég hef hins vegar meiri áhuga, eða áhyggjur, af íþróttamönnum þar sem við ölum markvisst upp tugþúsundir slíkra á hverju ári. Vitaskuld er það gott og blessað fyrir æsku landsins að stunda íþróttir. Spurningin er bara hvort við ættum jafnframt að grípa inn í þegar komið er á ákveðið aldursskeið, þegar hætt er við að ungu íþróttamennirnir breytist í skrímsli, og fara að haga sér eins og jarlar miðalda, með eins margar frillur og þeir geta mögulega sinnt.

Spurningin er auðvitað hvernig. Kannski er eftir allt saman alls ekki heilnæmt að stunda keppnisíþróttir. Eftir ferilinn sitja íþróttamenn oftar en ekki uppi með ónýtan líkama, litla sem enga menntun, en gríðarstórt egó því á íþróttaleikvöngum gilda enn hin fornu gildi, hefnd og heiður. Egóisminn er ein afleiðing keppnisíþróttarinnar, því í henni gildir ekkert annað en að hafa óbilandi trú á sjálfum þér og bara þér. Sumir þurfa svo mikið andlegt rými fyrir egóið að þeir segja konunni að þeir þurfi sér hús til að hugsa í og íhuga gaumgæfilega eigið ágæti í. Allt fyrir íþróttamanninn.

Þjóðfélagið gerir íþróttum afar hátt undir höfði, þrátt fyrir augljósa vankanta. Hluti hvers fréttaþáttar er helgaður íþróttum og börnin okkar eru frá unga aldri send á fimleika-, körfubolta- og knattspyrnuæfingar. Ábyrgðin er því mikil og kannski engin ástæða til að yppa öxlum yfir framhjáhaldsfregnum af íþróttamönnum. Þvert á móti ættum við kannski að athuga að taka siðferðiskennslu inn í prógrammið. Með velgengni verða freistinGarnar oft óyfirstíganlegar og kannski er ekkert í íþróttaþjálfuninni í dag sem undirbýr menn - og konur - undir þær. Nokkrir tímar í siðfræði milli þess sem farið er í útihlaup og fimmtíu kíló tekin í bekk eru varla svo galin hugmynd.




Fleiri fréttir

Bakţankar 13. mar. 2010 06:00

Framtíđ pungsins

Átakiđ karlmenn og krabbamein stendur nú yfir og hefur vćntanlega ekki fariđ framhjá neinu...  

Meira

Bakţankar 12. mar. 2010 06:00

Bösl í hnasli og sýsl í rusli

Snjóa leysir, daga lengir, birta eykst. Undan snjónum gćgjast fyrstu grćđlingar vorsins, u...  

Meira

Bakţankar 11. mar. 2010 06:00

Rangt kosiđ eđa rétt

Ég greiddi atkvćđi um daginn í fyrstu ţjóđaratkvćđagreiđslu lýđveldisins. Mér fannst ţađ s...  

Meira

Bakţankar 10. mar. 2010 06:00

Rífum plásturinn af

Alţjóđlegur baráttudagur kvenna var á mánudag haldinn í hundrađasta sinn. Ráđstefnur voru ...  

Meira

Bakţankar 09. mar. 2010 06:00

Freudískt ferđalag sjö ára stúlku

Sjaldan hefur saga haft jafnvíđtćk áhrif og Lísa í Undralandi eftir Lewis Carroll. Flest b...  

Meira

Bakţankar 09. mar. 2010 10:31

Nćst á dagskrá er gamalt fólk

Gömlu fólki bregđur einstaka sinnum fyrir í fjölmiđlum. Ţađ er ţá helst ef ţađ á stórafmćl...  

Meira

Bakţankar 06. mar. 2010 06:00

Um fábjánahátt

Nýlega lýsti ţingmađur ţví yfir ađ 5% ţjóđarinnar vćru fábjánar. Fyrrum ritstjóri bćtti um...  

Meira

Bakţankar 05. mar. 2010 06:00

Óseđjandi ţrćtulyst

Á morgun verđa tímamót á Íslandi. Íslendingar ganga til ţjóđaratkvćđis í fyrsta skipti í s...  

Meira

Bakţankar 03. mar. 2010 06:00

Betri tíđ í Grikklandi

Nú virđast Grikkir loks vera búnir ađ spila rassinn úr buxunum. Hefur ţađ tekiđ dágóđan tí...  

Meira

Bakţankar 02. mar. 2010 06:00

Vertu sćll, kćri svili

Ţađ var međ trega í hjarta sem ég stóđ í dyrunum heima hjá mér á sunnudaginn međ hvítan va...  

Meira

Bakţankar 01. mar. 2010 06:00

Mundu mig - ég man ţig

Dagblađaútgáfa verđur seint talin arđvćnleg á Íslandi. Markađurinn er lítill og ţađ kemur ...  

Meira

Bakţankar 26. feb. 2010 06:00

Góđa mamma

Ég á tvćr fullkomnar dćtur og ég held ađ ég sé bara ţokkalegasta mamma. Ég syng fyrir ţćr ...  

Meira

Bakţankar 25. feb. 2010 06:00

Ef ég ynni einu sinni

Ég er ein af ţeim sem vinna aldrei neina happdrćttisvinninga. Ţó er ég ekkert sérstaklega ...  

Meira

Bakţankar 24. feb. 2010 06:00

Vinstriđ var alltaf í vörn

Ţađ hefur stundum tekiđ á ađ vera vinstrimađur á Íslandi, ekki síst í miđjum uppgangi peni...  

Meira

Bakţankar 23. feb. 2010 10:12

Ólympíuleikar eiginkvenna

Á konudaginn fékk unnusti minn kaffi og ristađ brauđ í rúmiđ. Ţennan sólríka og syfjađa mo...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir

Vinsćlast

Grikklandsfáriđ

Grikklandsfáriđ

Grikkland er á hausnum. Ţađ eru ekki nýjar fréttir. Grikkland hefur oft áđur ver...


Nýtt á Vísi

Fréttaskýringar Nćrmynd

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöđ 2 og Vísi


Ađgengisvirkni