- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Ákvörðun umhverfisráðherra að stöðva Þjórsárvirkjanir styrkir stöðu Norðurlands í samkeppni um iðnaðaruppbyggingu og gæti dregið úr líkum á því að álver rísi við Húsavík.
Orkan kemur úr Þingeyjarsýslum, svaraði iðnaðarráðherra á Alþingi fyrir helgi þegar spurt var hvar ætti að fá orku til atvinnuuppbyggingar nú þegar Þjórsárvirkjunum seinkaði.
Þingeyingar voru með sína fulltrúa í Reykjavík í dag á fundum um að nýta þá orku fyrir norðan. Reinhard Reynisson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, segir að ríkisvaldið sé nýlega búið að skrifa undir samninga við sveitarfélögin fyrir norðan um að kanna kosti á nýtingu orkunnar þar. Það sé alveg skýrt í því samkomulagi að orkuna skuli nýta í Þingeyjarsýslum.
Forstjóri Landsvirkjunar sagði í síðustu viku að viðræður hefðu verið við mörg erlend fyrirtæki um nýtingu orkunnar úr neðri Þjórsá.
Einhver líklega með iðnað í Þorlákshöfn í huga, en bæjarstjóri Ölfuss nefndi sex verkefni í viðtali á Stöð 2.
Reinhard segir að ef það séu svona margir kostir sem hrópa á orku fyrir sunnan þá megi líka velta því fyrir sér hvort það væri ekki rétt að hleypa kostunum þangað sem orkan er. Reinhard kveðst vita til þess að sumir þessara aðila hafi verið að leita hófanna bæði fyrir sunnan og norðan. Þannig virðist ákvörðun um stöðvun Þjórsárvirkjana auka líkur á uppbyggingu fyrir norðan.
Reinhard svarar að það megi svo sem segja að samkeppnisstaða, hvort sem það er byggðarlaga eða annarra, sé alltaf hlutfallsleg, miðuð við einhverja aðra. Í því ljósi kunni svo að vera að staða Þingeyjarsýslu styrkist.
Þegar ríkisstjórnin í haust neitaði að framlengja viljayfirlýsingu um álver við Húsavík var það beinlínis til að freista þess að fá þangað annarskonar iðnað. Ef það gengur eftir minnka líkur á álveri, - eða hvað?
Reinhard kveðst alls ekki líta svo á að þetta verkefni núna, að leita fleiri kosta en þessa mögulega álvers, - að það sé verið að útiloka álverið með því.
"Alls ekki. Kannski er það bara hvatning til þeirra sem standa að álversverkefninu að taka nú hraustlegan endasprett í því," segir Reinhard.
Hljóđfćrasmiđur og margmiđlunarfrćđingur í Reykjavík hefur forystuna í mottukeppni krabbam...
Lítiđ hefur ţokast í kjaradeilu starfsmanna Norđuráls. Fundađ verđur međ ríkissáttasemjara...
Rúmlega fimmtíu manns hafa skráđ sig í félagiđ Stađgöngu sem berst fyrir ţví ađ stađgöngum...
Félagsmálaráđherra hyggst leggja fram nýtt frumvarp í vikunni, ţar sem međal annars er tek...
Rúmar 9 milljónir og 300 ţúsund krónur hafa safnast í söfnunarátaki Krabbameinsfélagsins K...
Jóhann Hauksson, blađamađur á DV sem nýveriđ var útnefndur Blađamađur ársins 2009, hefur s...
Eldur kom upp í svokallađri Búkollu rétt fyrir hádegi í dag á Suđurstrandarvegi viđ Hlíđar...
Hundrađ og sextíu ţúsund krónur voru teknar út í tólf fćrslum á kreditkort í eigu VR sem e...
Stjórn SUF, Sambands ungra framsóknarmanna, fagnar ţví ađ umsókn Íslands um ađild ađ Evróp...
Nokkuđ annríki var hjá lögreglunni á Akranesi í nótt. Einn mađur var handtekinn á dansleik...
Fimm bílar voru skemmdir á Akranesi í nótt. Lögreglu grunar ađ sami ađili hafi veriđ ađ ve...
Einn var međ allar tölur réttar í Lottóinu í gćr og fékk sá tćpar 12 milljónir króna í vin...
Lokađ er í Bláfjöllum í dag. Skíđasvćđin í Tindastól, á Siglufirđi og á Dalvík eru opin fr...
Allt tiltćkt liđ slökkviliđs höfuđborgarsvćđisins var kallađ ađ íbúđablokk viđ Hraunbć um ...
Tónlistarmenn skiptu bróđurlega á milli sín Íslensku tónlistarverđlaununum 2009 sem veitt ...
„Ég fékk hringingu frá honum Magnúsi Scheving, takk,“ segir Anna Vallý Baldursd...
Á lausaganga katta ađ vera bönnuđ í ţéttbýli?