- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Nemendur við Fjölbrautarskólann í Breiðholti eru ósáttir við ákvörðun skólameistara um að fella niður fyrirhugaða árshátíðarferð. Mótmæli standa nú yfir og íhugar nemendafélagið að draga lið skólans úr Gettu betur verði kröfum þeirra ekki mætt.
Árshátíð nemenda við Fjölbrautarskólann í Breiðholti hefur síðustu ár verið með þeim hætti að farið hefur verið út fyrir höfuðborgina til þess að skemmta sér. Í ár var ætlunin að fara á Selfoss en skólameistari hefur nú blásið ferðina af. Nemendur eru afar ósáttir með þessa ákvörðun og hafa einhverjir nemendur tekið sig til í morgun og mótmælt ákvörðuninni með því að skrópa í tímum.
Formaður árshátíðarnefndar segir að jafnvel hafi verið rætt um að draga lið Fjölbrautarskólans úr spurningakeppninni Gettu Betur verði ekki gengið að óskum nemenda, en árshátíðin á að fara fram þann 4.mars.
Í bréfi sem skólameistarinn sendir nemendum vegna málsins segir að skólayfirvöld geti ekki ábyrgst slíkt skemmtanahald tengt gistingu hluta nemendahópsins á hóteli og fjarri heimahúsum þar sem foreldrar geti ekki sinnt eftirlitsskyldu sinni með fullnægjandi hætti.
Þá segir að stór hluti nemenda sé undir 18 ára aldri og sé því ekki sjálfráða. Einnig sé árshátíð með þessum hætti kostnaðarsöm og þannig sé hugsanlega verið að ýta undir mismunun nemenda með tilliti til fjárhagsstöðu. Einnig sé það að keyra yfir Hellisheiði að næturlagi á miðjum vetri með stóran nemendahóp ákveðin hætta.
Tæplega 350 manns hafa skráð sig í hóp á Facebook sem stendur fyrir mótmælunum í skólanum. Andri Friðjónsson formaður árshátíðarnefndar segir í samtali við fréttastofu að nokkuð fjölmennt sé í mótmælunum sem fara fram með friðsamlegum hætti. Skólameistari hafi rætt við hópinn í morgun og gera nemendur sér vonir um að skólayfirvöld endurskoði afstöðu sína í þessu máli.
Ekki náðist í skólameistara Fjölbrautarskólans í Breiðholti í morgun vegna málsins.
Samninganefnd Flugvirkjafélags Íslands settist klukkan tvö á fund í samgönguráđuneytinu me...
„Líklega ţarf nú ađ nefna fólk á nafn til ađ ţađ geti kćrt ađra fyrir meiđyrđi,“ segir Ste...
Eitt hundrađ milljónir króna hafa sparast í lyfjamálum á Landspítala á fyrstu tveimur mánu...
Fyrrverandi hershöfđingi í Bandaríkjaher segir ađ Hollendingum hafi mistekist ađ koma í ve...
Fyrir stundu varđ bilun í háspennukerfi Orkuveitunnar sem veldur rafmagnsleysi í hluta Kór...
Ađföng hafa ákveđiđ ađ innkalla Euro Shopper hindber í 500 gramma pokum. Ákvörđun um ţetta...
Góđar líkur eru á ţví ađ Jóna Denný Sveinsdóttir, sem hefur veriđ í haldi lögreglunnar í P...
Kristján L. Möller, samgönguráđherra, gefur ekkert uppi um hvort til greina komiđ ađ setja...
Ekki náđist samkomulag um skiptingu heildarafla úr markílstofninum, á fundi strandríkja, s...
Fjármálaráđuneytiđ hefur gefiđ út handbók undir yfirskriftinni „Kynjuđ fjárlagagerđ: handb...
Greiningardeild Ríkislögreglustjóra telur ađ hagnađi af fíkniefnaviđskiptum verđi í auknum...
Hverfisráđ Árbćjar fagnar samţykkt borgarráđs Reykjavíkur frá í gćr ađ gengiđ verđi til sa...
Formađur Sjálfstćđisflokksins vill ađ ríkisstjórnin fari frá völdum. Hann segir ađ hún ráđ...
Engin hefur enn veriđ handtekinn eđa yfirheyrđur vegna spellvirkjanna, sem unnin voru á fj...
Fimm menn lokuđust inni í bankahvelfingu í húsakynnum veitingastađarins B-5 viđ Bankastrćt...
Fjarskipti viđ umheiminn hefđu getađ lamast ađ miklu leyti ef búnađur skemmdarva...
Af ţeim flokkum sem eru á ţingi, hvađa tveggja flokka ríkisstjórn myndir ţú styđja?