- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Að minnsta kosti níu af hverjum tíu sem misst hafa vinnuna eftir bankahrun störfuðu á almennum vinnumarkaði. Viðskiptaráð telur að mikið ójafnvægi hafi myndast á milli almenna vinnumarkaðarins og hins opinbera. Á sama tíma og störfum fækkaði á almennum vinnumarkaði fjölgaði þeim hjá ríkinu.
Meginþorri þess fólks sem hefur misst vinnuna undanfarin misseri starfaði á almennum vinnumarkaði. Frosti Ólafsson, aðstoðarforstjóri Viðskiptaráðs, segir að á sama tíma og um fjórðungur þeirra sem vinna úti starfa hjá hinu opinbera þá hafa níu af hverjum tíu sem sagt hefur verið upp starfað á almennum vinnumarkaði. Aðeins einn af hverjum tíu sem misst hefur vinnuna hefur starfað hjá ríkinu. Mikið ójafnvægi hafi því myndast á milli almenna vinnumarkaðarins og hins opinbera.
Í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn á Alþingi í vetur má einnig sjá að opinberum starfsmönnum fjölgaði um 300 á milli áranna 2008 og 2009. Á sama tíma töpuðust yfir 10.000 störf. Frosti segir þetta dæmi um að aðlögun vinnumarkaðarins í kjölfar efnahagslægðarinnar hafi nánast eingöngu átt sér stað hjá einkaaðilum fram til þessa.
Frosti segir útgjöld til hins opinbera hafi vaxið gríðarlega á síðustu árum. Þau séu hlutfallslega hæst af því sem gerist meðal OECD-ríkjanna.
Hann bendir á að fyrir þrjátíu árum hafi útgjöldin hins vegar verið í lægri kantinum. Sú þróun sem orðið hafi á síðustu árum eigi sér tæpast hliðstæðu í heiminum. Hagstjórnin sem ríkti hér á landi á árunum 2003 til 2008 hafi einkennist af taumlausu óhófi.
Þá bendir Frosti á að laun ríkisstarfsmanna eru nú hærri að meðaltali en gerist á almennum vinnumarkaði, starfsöryggi meira og lífeyrisréttindi langtum betri og vinnutími styttri. Þessi þróun vegi verulega að eðlilegu jafnvægi milli almenns og opinbers vinnumarkaðar.
Stjórn Vinstri grćnna tekur undir ályktanir Ungra Vinstri grćnna og Vinstri grćnna í Reykj...
Bjarni Benediktsson, formađur Sjálfstćđisflokksins, segir ađ Íslendingar eigi betri mögule...
Tangóunnendur og tangódansarar skemmtu sér í Iđnó og Ráđhúsi Reykjavíkur í nótt og dönsuđu...
Almannavarnir vinna enn effir áćtlunum um óvissustig á svćđinu viđ Eyjafjallajökul vegna m...
Fimm voru fluttir á slysadeild til skođunar ţegar ađ bíll valt á Suđurlandsvegi viđ Sandsk...
Brotist var inn í ljósmyndavöruverslun í Brautarholti á fjórđa tímanum í nótt. Ţrír voru h...
Meirihluti ţeirra sem afstöđu tóku í skođanakönnun Fréttablađsins vill ađ ţjóđin fái ađ gr...
Stúlka á átjánda ári lenti í hremmingum eftir ađ dávaldurinn Sailesh hafđi dáleitt hana í ...
Stuđningurinn viđ ríkisstjórn Jóhönnu Sigurđardóttur er 38,9 prósent, samkvćmt skođanakönn...
„Öll erum viđ sammála um ađ bankakreppa á viđ kreppuna á Íslandi megi ekki koma upp aftur,...
Lögreglan á Suđurnesjum og tollgćslan á Keflavíkurflugvelli hafa tekiđ ţrjátíu og átta man...
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samţykkti í gćr fyrir sitt leyti tillögu Ţorleifs Gunnlaugsso...
Bćđi Fjölbrautaskólinn í Ármúla og Verzlunarskóli Íslands halda áfram ađ kenna grunnskólan...
Formanni umhverfisnefndar Flóahrepps var fyrirvaralaust vikiđ frá störfum á fundi sveitar...
Afar líklegt er ađ neytendur ţurfi ađ greiđa meira fyrir ţjónustu Orkuveitu Reykjavíkur á ...
Fimm menn lokuđust inni í bankahvelfingu í húsakynnum veitingastađarins B-5 viđ ...
Af ţeim flokkum sem eru á ţingi, hvađa tveggja flokka ríkisstjórn myndir ţú styđja?