Stjórnskipunarbreyting án umrćđu

Fréttablađiđ Fastir pennar 06. febrúar 2010 03:13
Ţorsteinn Pálsson
Ţorsteinn Pálsson
Ţorsteinn Pálsson skrifar:

Háskólamenn hafa sett fram rökstuddar skoðanir um að embætti forseta Íslands hafi breyst úr ópólitísku sameiningartákni í pólitíska valdastöðu. Staðfestingarsynjun forsetans á icesave-lögunum og þátttaka hans í umræðum á alþjóðavettvangi er talin taka af allar efasemdir í því efni.

Þetta merkir með öðrum orðum að í framkvæmd hafi orðið grundvallarbreyting á íslenskri stjórnskipan. Þessi breyting er ekki niðurstaða umræðna. Hún er því lítt yfirveguð og hefur ekki verið tekin af þjóðinni eins og ráð er fyrir gert með stjórnarskrárbreytingar.

Stjórnarskráin er að sönnu nógu loðin til þess að slíkar grundvallarbreytingar geta gerst án formlegra ákvarðana. Spurningin er: Hver ber ábyrgð á því? Forsetinn er fumkvöðullinn. Um það er ekki deilt. Ríkisstjórnirnar á valdatíma hans eiga hins vegar einnig hlut að máli með því að ráðherrar bera ábyrgð á stjórnarathöfnum forsetans öðrum en lagasynjunum.

Í mars árið 2006 hélt stjórnarskrárnefnd ráðstefnu um forsetaembættið. Strax þá staðhæfði Svanur Kristjánsson prófessor í erindi að núverandi forseti hefði með pólitísku áhrifavaldi sínu og í krafti embættisins lyft utanríkisstefnu landsins á nýtt stig með frumkvæði að útrásinni svokölluðu og þeirri einurð að gera hana að veruleika.

Þessi kenning er ekki óumdeild. Engar athugasemdir voru þó gerðar af hálfu forsetaembættisins á þeim tíma. Fyrir nokkrum mánuðum lét forsetinn þess hins vegar getið opinberlega að útrásarvíkingar hafi misnotað forsetaembættið. Það gat ekki gerst nema embættið færi með utanríkispólitískt áhrifavald. Rannsóknarnefnd Alþingis hlýtur að fjalla um þetta.

Ábyrgð ráðherra

Fjármálaráðherra bar icesave-lögin upp við forseta í ríkisráði. Nokkrum dögum seinna synjaði forseti um staðfestingu með ákvörðun utan ríkisráðs. Þetta var brot á stjórnskipunarreglum. Fjármálaráðherra gat af þessum sökum ekki komið fram andmælum á fundi ríkisráðs eins og starfsreglur þess mæla skýrt fyrir um.

Í þessu tilviki var það bæði réttur og skylda forsætisráðherra að taka fram fyrir hendur forseta til þess að tryggja stjórnskipulega rétta málsmeðferð. Forsætisráðherra kaus hins vegar að láta forseta fara á svig við réttar stjórnskipunarreglur. Það var þáttur í að breyta stjórnskipuninni án umræðu; trúlega í hugsunarleysi.

Varðandi ábyrgð ráðherra í þessu tilliti verður að hafa hugfast að í sumum tilvikum blasir ábyrgðin við eins og með staðfestingarsynjun utan ríkisráðs. Í öðrum tilvikum gerast hlutir af þessu tagi smám saman. Í raun sést þá ekki fyrr en um síðir hvað hefur gerst.

Ráðherrar eru þar af leiðandi oft í mjög erfiðri stöðu til að grípa inn í. Þannig háttaði til þegar forseti tók sæti í Þróunarráði Indlands. Þáverandi utanríkisráðherra bar á því ábyrgð án þess að vita um ákvörðunina. Ráðið er í tengslum við Teri-stofnunina sem komið hefur að jöklarannsóknum í Himalaja, sem nú eru viðkvæmar á alþjóðavettvangi.

Í þessu samhengi þarf einnig að hafa í huga að ákvarðanaferill forsetaembættisins er það sem kallað er ógagnsær. Ákvarðanir eru teknar bak við luktar dyr án lýðræðislegra umræðna og verða stundum að veruleika í samtölum sem aldrei er greint frá. Af sjálfu leiðir að lýðræðið veikist þegar völd færast frá Alþingi til forsetans. Opin umræða er svo veigamikill þáttur lýðræðisins.

Hættulegt er að skilja ábyrgð frá valdi

Boðskapur forseta Íslands í icesave-málinu er þessi: Efnahagslegir hagsmunir þjóðarinnar eiga að víkja fyrir rétti hennar til að greiða atkvæði um þau mál sem honum sjálfum sýnist. Spurningin er: Felst lýðræðisbót í þessari afstöðu?

Sumir segja að enn alvarlegri efnahagsþrengingar fylgi í kjölfar þess að icesave- lögin verði felld, jafnvel greiðslufall ríkisins. Aðrir eru þeirrar skoðunar að Hollendingar og Bretar muni kikna í hnjáliðunum þegar þeir sjá niðurstöðuna í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Enginn veit neitt með vissu um þetta.

Hitt er víst að synjun leysir ekki málið. Lyktir deilumálsins fást einfaldlega ekki með slíkri niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er kjarnaatriði þegar svara á spurningunni hvort í þjóðaratkvæðinu felst lýðræðisumbót.
Staðan er þessi: Forsetinn ber ekki ábyrgð á efnahagslegum afleiðingum af ákvörðun sinni. Hann fær rós í hnappagatið ef allt endar vel en er laus allra mála ef illa fer. Eftir eðli máls getur þjóðin aldrei borið ábyrgð á niðurstöðum kosninga. Hún tekur bara afleiðingunum.

Alþingi situr uppi með ábyrgðina. Ríkisstjórnin þarf ekki að víkja meðan hún nýtur stuðnings Alþingis. Af því leiðir að þjóðin fær ekki tækifæri til að kjósa fulltrúa á Alþingi að nýju til að fylgja eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðisins.

Hér hefur það gerst að völd og ábyrgð hafa verið greind hvort frá öðru. Það er þverbrestur í lýðræðisskipulaginu en ekki bót. Samstaða um nýjan icesave- samning gæti leitt þjóðina framhjá þessum stjórnskipulegu ógöngum.

Alveg óháð því hvaða afstöðu menn hafa til icesave-samninganna er ljóst að stjórnskipunarreglurnar þarf að endurskoða eða framkvæma þær eins og ráðgert var í öndverðu þannig að völd og ábyrgð fari saman. Réttmæt gagnrýni á icesave má ekki leiða til hentistefnuviðhorfa gagnvart stjórnskipaninni.




Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niđurstöđur skođanakönnunar Fréttablađsins og Stöđvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvćđing er mesta hćttan

Ögmundi Jónassyni tókst međ haldbćrum rökum í Kastljóssţćtti í vikunni ađ sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar ţjóđir eiga fleiri eđa aflmeiri bíla miđađ viđ fólksfjölda en Íslendingar. Ţađ á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gćti ţótt mikil eftirsjá ađ öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og ţar um landiđ...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigđ kćrasta vill tilbreytingu

Öll erum viđ međ okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfrćđing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstađa um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaafliđ Samstađa, undir forystu Lilju Mósesdóttur alţingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Ţađ er undur stutt síđan máliđ sýndist afgreitt. Ţetta međ markađina og ríkiđ. Markađir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orđiđ í forsjármálum barna á 20 árum. Áriđ 1992 varđ fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóđirnir platađir

Forsvarsmenn lífeyrissjóđa keppast nú um ađ túlka niđurstöđu nefndar sem gerđi úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hćstaréttar

Lög eiga ađ tryggja sanngjarna málsmeđferđ, réttlćti í samskiptum fólks og velferđ. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Ţriđjungur ţingheims, ţingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapađ af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóđina hefur leitt í ljós ađ á tveimur árum kringum bankahruniđ tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga ţarf ađ fćrum leiđum

Skuldavandi heimila á ađ stórum hluta rót sína í ţví furđulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstćđrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóđanna inniheldur harđa gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbrćđralag

Kópavogur hefur dregiđ ađ sér nokkra athygli vegna viđrćđna um myndun nýs meirihluta í bćj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viđbúin nýjum hćttum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í nćsta nágrenni viđ Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ćtlađ samţykki

Nokkrir ţingmenn vilja breyta lögum á ţann hátt ađ líffćri verđi tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverđ umrćđa fór fram um EES-samninginn á Alţingi fyrr í vikunni. Tilefniđ va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiđari leiđ til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grćdd í Íslendinga ár hvert. Vegna ţessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárađ uppgjör

Ţingmenn úr ađ minnsta kosti ţremur flokkum, auk óháđra, munu í vikunni leggja fram á Alţi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldiđ

Sagnfrćđingar tala um ađ stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstćđisstjórnmál af hólmi áriđ 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnađur krónu

Samkeppniseftirlitiđ birti í síđustu viku skýrslu sína um verđţróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir

Kvöldfréttir

Horfa í Beinni
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Stjórnskipunarbreyting án umrćđu