Fréttablaðið, 06. feb. 2010 06:00

Líkamsklukkan og skammdegið

mynd
andrés magnússon

Andrés Magnússon skrifar um líkamsklukkuna

Rannsóknir síðari ára hafa leitt í ljós að starfsemi og virkni hinna ýmsu líffærakerfa mannslíkamans sveiflast eftir 24 klukkustunda dægurrythma (dægurtakti). Þannig framleiða ákveðnar frumur mismikið af hormónum og enzymum eftir því hvaða tími dags er. Sum líffæri eru mest virk seinnipart nætur, en önnur, eins og t.d. nýrun, eru lítið virk á nóttunni. Jafnvel þegar frumur eru teknar úr líffærum og ræktaðar í agar-skálum þá geta þær haldið áfram að sýna reglulegar dægursveiflur fyrstu dagana. Það sem sér um að samhæfa og samstilla alla dægurtaktana eða dægursveiflur líkamans er hin svokallaða líkamsklukka (einnig nefnd „innri klukkan" eða „líffræðilega klukkan"). Hún er hljómsveitarstjórinn.



Stilling líkamsklukkunnar

En hvernig fer líkamsklukkan að því að halda stillingu sinni þannig að hún gangi alltaf á 24 klukkustundum? Jú, hún getur numið birtuna í umhverfinu og þannig samstillt hinar innri dægursveiflur við gang sólar. Ef mannskepnan er færð niður í yfirgefnar námur, djúpt í myrkustu iður jarðar, þá heldur líkamsklukkan í fyrstu áfram að ganga nokkurn veginn rétt, en smám saman fer henni að fipast. Yfirleitt seinkar hún sér, en einnig fara hinir ýmsu rythmar (sveiflur) að ganga hver í sínum eigin takti, og verða þá ekki lengur innbyrðis samstilltir. Þetta er óhollt og vitað er að t.d. vaktavinnufólk sem stöðugt er að hringla með dægursveiflur sínar, lifir skemur en aðrir.

Líkamsklukkan stjórnar svefninum. Flest dýr, og manneskjur í fríi, vakna þegar líkamsklukkan segir fyrir um að þau skuli vakna. En í nútíma samfélagi eru það aðrir þættir sem ákvarða hvenær einstaklingurinn vaknar. Þetta getur leitt til þess að misræmi kemst á milli hinnar ytri klukku samfélagsins og hinnar innri klukku líkamans. Það framkallar þreytu, slappleika og vanlíðan. Þegar innri dægursveiflur brotna niður þá brotnar líka niður mótstöðuþrek einstaklinga, enda er þessari tækni ávallt beitt við pyntingar; Fórnarlömbum er skutlað inn í litla almyrkvaða klefa í nokkra mánuði, hávær graðhestamúsík er spiluð allar nætur í Guantanamo og ljósaperan er látin loga allan sólarhringinn hjá Sævari.

Í hinu langa skammdegi á Íslandi eru flestir innandyra þá fáu tíma sem einhverrar birtu nýtur. Þeir einstaklingar sem viðkvæmastir eru fyrir skort á ljósi geta þá þróað með sér svokallað skammdegisþunglyndi. Það er hægt að lækna með sterku ljósi sem kemur aftur reglu á dægursveiflurnar.
Sú dýrategund sem er með einna viðkvæmustu líkamsklukkuna og þolir verst skort á ljósi heitir unglingar. Unglingum er sérstaklega hætt við að þróa með sér „fasaseinkun á svefni" (Delayed Sleep Phase Insomnia). Þá er líkamsklukkan nokkrum klukkustundum á eftir klukku samfélagsins, sem lýsir sér þannig að unglingarnir fara að sofa seint á nóttunni og vakna ekki fyrr en undir hádegi. Þetta er einnig oft hægt að leiðrétta með því að nota sterkt ljós fyrrihluta dags.



Varnaraðgerðir við skammdegi

Minna en einn þúsundasti hluti mannkyns býr jafn norðarlega, og við jafn mikið skammdegi og við Íslendingar. Hér á landi ættu að vera alls kyns varnaraðgerðir til þess að mæta þessum sérstæðu aðstæðum. Gamalt kínverskt máltæki segir: „Á veturna skaltu fara fyrr að sofa og rísa klukkustund seinna úr rekkju." Íbúar Tromsö gerðu þetta til skamms tíma; skólabörnin þurftu ekki að mæta í skólann fyrr en klukkan níu í svartasta skammdeginu og máttu fara fyrr heim á daginn. En hvað gera Íslendingar við sín börn í skammdeginu? Jú, rífa þau upp úr rúmunum um miðja nótt til þess að vera búin að koma þeim í skólann fyrir klukkan hálf sjö að sólartíma. Klukkan á Íslandi er nefnilega stillt eftir Greenwich, sem er 22° austar en Ísland, eða sem svarar einu og hálfu tímabelti. Innri klukka barnanna fer ekkert eftir því sem íslenskir stjórnmálamenn hafa ákveðið, hún stillir sig bara eftir sólartíma. Hádegi sem er klukkan 12 annars staðar í heiminum er klukkan hálf tvö á Íslandi.
Þetta fyrirkomulag, að láta Íslendinga vakna einum og hálfum tíma fyrr en þeim er eiginlegt, er gert með „hagsmuni atvinnulífsins" að leiðarljósi. Er ekki einfaldast að þeir fáu viðskiptajöfrar sem þurfa að vera í stöðugu símasambandi við skrifstofur í nágrannalöndum okkar vakni bara sjálfir fyrr á morgnana án þess að þurfa að gera það að vandamáli allrar þjóðarinnar? Nú er kominn tími til þess að hefja umræður um það hvort Íslendingar vilja lifa í takt við árstíðirnar, hvort þeir geti með einhverjum ráðum látið sér líða betur í skammdeginu og hvort það sé óþarfa álag að búa hér við svo skekkta klukku.
Höfundur er geðlæknir.



Fleiri fréttir

Aðsendar greinar 20. mar. 2010 06:00

Evrópukrísa ritstjórans

Ólafi Þ. Stephensen, nýjum ritstjóra Fréttablaðsins, tekst um margt vel upp á nýjum vinnus...  

Meira

Aðsendar greinar 20. mar. 2010 06:00

Um réttindi fatlaðra

Oddný Mjöll Arnardóttir og Þórdís Ingadóttir skrifa um fullgildingu Íslands á samningi Sam...  

Meira

Aðsendar greinar 20. mar. 2010 06:00

Lagaskrifstofa Alþingis

Vigdís Hauksdóttir skrifar um vandaða lagasetningu...  

Meira

Aðsendar greinar 20. mar. 2010 06:00

Á meðan við bíðum

Anna Sigríður Pálsdóttir, Arnfríður Guðmundsdóttir, Baldur Kristjánsson, Hjalti Hugason, P...  

Meira

Aðsendar greinar 19. mar. 2010 13:38

Aðildarumsókn að ESB vinnur gegn hagsmunum Íslands í Icesavedeilunni.

Einhverjum kann að finnast þessi fyllyrðing, sem fram kemur í fyrirsögn greinarinnar, vera...  

Meira

Aðsendar greinar 19. mar. 2010 06:00

Hagsmunir hverra?

Eignarhald á íslenskum fyrirtækjum er óvenjulegt um þessar mundir. Mörg eru undir forsjá r...  

Meira

Aðsendar greinar 19. mar. 2010 06:00

Hestadagar í Reykjavík

Óskar Bergsson skrifar hestamennsku...  

Meira

Aðsendar greinar 19. mar. 2010 06:00

Sjálfdæmi eða regla

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar um gegnsæi...  

Meira

Aðsendar greinar 19. mar. 2010 06:00

Í átt að heilbrigðara samfélagi

Jóhann Ingi Kolbeinsson skrifar um samkeppni...  

Meira

Aðsendar greinar 19. mar. 2010 06:00

Boðberar válegra tíðinda

Magnús Karl Magnússon, Guðmundur Þorgeirsson og Sigurður Guðmundsson skrifa um Herbalife...  

Meira

Aðsendar greinar 18. mar. 2010 09:27

Alex Jurshevski og þingmenn Íslands

Alex Jurshevski, skeleggi Kanadamaðurinn sem hræddi líftóruna úr...  

Meira

Aðsendar greinar 18. mar. 2010 06:00

Verkaskipting og samstarf FME og Seðlabankans

Gunnar Axel Axelsson skrifar um ábyrgð á fjármálastöðugleika og fall fjármálakerfisins...  

Meira

Aðsendar greinar 18. mar. 2010 06:00

Hvað kostar sanngirni?

Lára Magnúsardóttir skrifar um sanngirnisbætur...  

Meira

Aðsendar greinar 18. mar. 2010 06:00

Fíkniefnahundar í skólum

Árni Einarsson skrifar um forvarnir...  

Meira

Aðsendar greinar 18. mar. 2010 06:00

Vernd fyrir níðinga

Guðjón Sigurðsson skrifar um samfélagsmál...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir

Vinsælast

Gera það gott í góulok

Gera það gott í góulok

Hönnunarmarsinn er tekinn að hljóma úr fjarlægð og brátt skellur hann á; það var...


Nýtt á Vísi

Nærmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni