Álitsgjafinn

Fréttablaðið Fastir pennar 05. febrúar 2010 06:00
Jón Kaldal
Jón Kaldal
Jón Kaldal skrifar:
Seðlabankastjóri Hollands, Nout Wellink, sagði í gær að íslensk stjórnvöld hefðu logið um ástand íslenska bankakerfisins skömmu fyrir fall þess. Vitnisburður Wellinks, sem féll frammi fyrir hollenskri rannsóknarnefnd, er athyglisvert innlegg í þá vinnu sem er í gangi hér á landi og miðar að því að varpa ljósi á aðdraganda falls bankanna.
Ályktanir hollenska seðlabankastjórans byggjast líklega á því að örfáum vikum eftir að Hollendingum var sagt að allt væri í himnalagi með íslensku bankana, hrundu þeir til grunna. Væntanlega leggur Wellink ekki trúnað á að nokkur stjórnvöld hafi getað verið svo illa að sér um eigið bankakerfi að þau hafi ekki áttað sig á að það var að hruni komið. Svör Íslendinga um góða heilsu bankanna hafi þar með ekki verið gefin af bestu samvisku.
Í vitnisburði sínum vísaði Wellink, orðum sínum til staðfestingar, til samtals sem hann átti við kollega sinn í Seðlabanka Íslands í september 2008. Sá hafi sagt að hann hefði varað íslensk stjórnvöld við bágri stöðu bankanna hálfu ári fyrr, sem er um það bil í mars sama ár.
Þarna hlýtur að vera kominn Davíð Oddsson, fyrrverandi formaður bankastjórnar Seðlabankans. Davíð hefur einmitt haldið því sjálfur fram að hann hafi margsinnis varað við því að viðskiptabankarnir væru á leið í þrot og með þeim íslenskt efnahagslíf. Því miður fyrir seðlabankastjórann fyrrverandi eru þó nákvæmlega engar skjalfestar heimildir til um þessar viðvaranir. Eina heimildin eru orð Davíðs sjálfs eftir að bankarnir voru komnir á höfuðið og allt var farið til fjandans.
Á hinn bóginn eru til fjölmörg opinber dæmi um fullyrðingar seðlabankastjórans fyrrverandi þess efnis að undirstöður íslensks fjármálalífs væru traustar. Eitt er til dæmis lokaorðin í áliti Seðlabanka Íslands úr ritinu Fjármálastöðugleiki, sem kom út 9. maí 2008 og Davíð Oddsson skrifaði undir sem formaður bankastjórnar:
„Á heildina litið er niðurstaða Seðlabankans enn sú að fjármálakerfið sé í meginatriðum traust. Íslenska bankakerfið uppfyllir kröfur sem gerðar eru til þess og stenst álagspróf sem Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn hafa gert."
Fimm mánuðum eftir að þetta álit birtist voru allir helstu bankar landsins fallnir.
Annað dæmi er frá mars árið 2008. Þá sagði seðlabankastjórinn fyrrverandi í viðtali við sjónvarpsstöðina Channel 4 að engar líkur væru á því að íslensku bankarnir færu í þrot og þó svo ólíklega færi gæti íslenska ríkið auðveldlega „gleypt" skuldbindingar þeirra við erlenda innstæðueigendur. Tilefni spurningar breska fréttamannsins voru áhyggjur af háum upphæðum sem landar hans áttu á Icesave-reikningum Landsbankans.
Þegar öllu er á botninn hvolft skiptir hins vegar engu hver sagði hvað hvenær. Það eina sem skiptir máli er hver gerði hvað hvenær. Það er ekki hlutverk Seðlabanka Íslands að vera álitsgjafi á kantinum. Seðlabankinn er í lykilhlutverki við að tryggja fjármálastöðugleika í landinu og beita til þess þeim stjórntækjum sem hann hefur yfir að ráða. Við það verkefni réðu ekki fyrrverandi bankastjórar Seðlabankans. Þeir áttu að gæta hagsmuna almennings en gerðu það ekki.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Álitsgjafinn