Vísir, 05. feb. 2010 12:09

Ráđherra eykur strandveiđikvótann um 2.000 tonn

mynd
Í frumvarpi um strandveiðar gerir ráð fyrir að heimild til strandveiða verði lögfest og fyrirkomulag veiðanna verði í meginatriðum það sama og í fyrra. Þannig er gert ráð fyrir að strandveiðar muni einkum takmarkast af þeim aflaheimildum sem ráðstafað er sérstaklega til veiðanna, eða allt að 6.000 lestum af óslægðum botnfiski í stað 3.995 lesta af þorski auk annarra tegunda líkt og var á síðasta ári.

Í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu er greint frá þeim breytingar sem gerðar eru frá sl. sumri. Sú helsta er að á hverju fiskveiðiári verði aflaheimildir sem nema allt að 6.000 lestum af óslægðum botnfiski til ráðstöfunar til veiða á handfæri, sem ekki reiknast til aflamarks eða krókaaflamarks þeirra fiskiskipa sem stunda veiðarnar.

Heimilt verði að stunda veiðarnar á tímabilinu frá 1. maí til 31. ágúst. Á síðasta ári hófust veiðarnar í lok júní og stóðu fram í ágúst. Í þessu frumvarpi er gert ráð fyrir að veiðitímabilið verði fjórir mánuðir. Með því að leggja til að veiðar geti hafist í maí er gert ráð fyrir að veiðar við sunnanvert landið verði auðveldari með tilliti til staðbundinnar fiskgengdar.

Hverri útgerð verði einungis heimilt að fá leyfi til strandveiða fyrir eitt fiskiskip. Takmörkun þessi er sett með tilvísun til þess markmiðs að sem flestum verði gert kleift að stunda strandveiðar. Af þessu leiðir að ekki er gert ráð fyrir að einn aðili geti gert út mörg veiðiskip á strandveiðum.

Frá og með fiskveiðiárinu 2010/2011 verði óheimilt að veita fiskiskipi leyfi til strandveiða, hafi aflamark umfram það aflamark sem flutt hefur verið til þess á sama fiskveiðiári verið flutt af því. Eftir útgáfu leyfis til strandveiða er skipum óheimilt að flytja frá sér aflamark þess árs umfram það sem flutt hefur verið til skips.

Ekki þykir ástæða til þess að veita útgerð stranveiðileyfi í framtíðinni sem velur að flytja frá sér aflamark umfram það aflamark sem flutt er til skips.

Ráðherra verði heimilt með reglugerð að banna strandveiðar á almennum frídögum. Síðastliðið sumar varð vart mikils áhuga á að heimila ekki veiðar á frídegi verslunarmanna, m.a. þar sem möguleikar til að landa afla á markað voru mismunandi. Er með þessu ákvæði frumvarpsins ráðherra veitt skýlaus heimild til að taka tillit til slíkra aðstæðna.

Á hverju fiskiskipi verði heimilt að draga 650 kg, í þorskígildum talið, af kvótabundnum tegundum í hverri veiðiferð. Þannig er afli hverrar veiðiferðar takmarkaður við 650 kg af kvótabundnum tegundum, í þorskígildum talið. Er þetta breyting frá fyrra ári þegar heimilt var að veiða 800 kg af kvótabundnum tegundum án viðmiðunar við þorskígildi. Um sambærilegt magn er að ræða þar sem þorskígildi eru nú látin ráða. Með þessu móti er jafnframt dregið úr hvata til brottkasts á öðrum tegundum en þorski.

Það er von sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóns Bjarnasonar, að frumvarpi þessu verði vel tekið, því fyrir liggur að strandveiðar hafa sannað gildi sitt.





Fleiri fréttir

Innlent 19. mar. 2010 19:53

Brotist inn í sjö bíla í nótt

Í nótt sem leiđ var brotist inn í 7 bifreiđar viđ Leynisbrún, Suđurvör og Stađarhraun í Gr...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 18:50

Grásleppuhrognaverđ slćr öll met

Aldrei í sögunni hefur fengist eins hátt verđ fyrir grásleppuhrogn og nú og hefur verđiđ h...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 18:44

Sendiherrar kosta 74 milljónir

Níu starfsmenn hjá utanríkisráđuneytinu starfa ţar međ sendiherratitil og ţiggja laun samk...  

Meira Myndskeiđ

Innlent 19. mar. 2010 17:36

Fiskimjöliđ var skrásett sem hvalmjöl

Vegna frétta um meintan ólöglegan útflutning á hvalaafurđum hefur sjávarútvegs- og landbún...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 17:02

Lést á Kanarí

Íslenskur karlmađur lést í vikunni af völdum áverka sem hann hlaut eftir ađ hann féll niđu...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 16:51

Fundi lauk án niđurstöđu

Fundi samninganefndar flugvirkja og viđsemjenda ţeirra hjá Ríkissáttasemjara lauk á fimmta...  

Meira Myndskeiđ

Innlent 19. mar. 2010 16:28

Engin yfirheyrđur vegna spellvirkjanna viđ Veđurstofuna

Engin hefur enn veriđ handtekinn eđa yfirheyrđur vegna spellvirkjanna sem unnin voru á fja...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 16:10

Nýtt hjúkrunarheimili vígt í Kópvogi

Nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu var vígt viđ Bođaţing í Kópavogi á dag. Rúm átta ár eru sí...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 16:33

Kristín skipuđ forstjóri Útlendingastofnunar

Kristín Völundardóttir, sýslumađur á Ísafirđi og lögreglustjóri Vestfjarđa, hefur veriđ sk...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 16:01

Óku of hratt um Vífilsstađaveg

Brot 38 ökumanna voru mynduđ á Vífilsstađavegi í Garđabć í gćr. Fylgst var međ ökutćkjum s...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 15:57

Skipulögđ leit ađ krabbameini tryggđ til nćstu ára

Ţjónustusamningur milli Krabbameinsfélags Íslands og Sjúkratrygginga Íslands um skipulagđa...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 15:39

Laugavegur opinn öllum nema bifreiđum um helgina

Hluta af Laugavegi og Skólavörđustíg ásamt Bankastrćti verđur breytt í göngugötur um helgi...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 15:18

Vinsamlegur fundur međ samgönguráđherra

„Ţetta var vinsamlegur fundur. Viđ rćddum viđ ráđherrann og upplýstum hann um stöđu mála. ...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 14:47

Lýst eftir 15 ára gamalli stúlku

Lögreglan á Suđurnesjum lýsir eftir Natalíu Rós Jósepsdóttur. Natalía strauk frá međferđar...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 14:37

BSRB: Hótanir stjórnvalda mjög alvarlegar

Stjórn BSRB lítur ţađ mjög alvarlegum augum ađ stjórnvöld skuli hafa haft uppi hótanir um ...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir


Nýtt á Vísi

Af ţeim flokkum sem eru á ţingi, hvađa tveggja flokka ríkisstjórn myndir ţú styđja?


Kjörkassinn

Nćrmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöđ 2 og Vísi


Ađgengisvirkni