Karlakvöld NFS: Gott að fá frið frá kerlingunum

Vísir FS 04. febrúar 2010 15:28
Gylfi Ægisson hélt karlmannlegri athygli.
Gylfi Ægisson hélt karlmannlegri athygli.
Birgir Ólafsson skrifar:
Það var sannkallað karlakvöld sl. miðvikudag, þegar rúmlega hundrað karlmenni í NFS hittust til að bera Gylfa nokkurn Ægisson augum.

Karlakvöldið var haldið á sal skólans og var að sjálfsögðu frítt inn fyrir alvöru karlmenn í NFS. Karlarnir hittust um kl. 20 og gæddu sér á karlmannlegum pizzum og kjúklingavængjum.

,,Mikið er gott að fá smáfrið frá kerlingunum,” sagði Gylfi Ægisson, en hann mætti og tók nokkur lög fyrir karlana og sagði svæsnar sögur af því hvernig karlarnir körluðust í gamla daga.

Trausti Arngrímsson, karlnemi, tók undir með Gylfa - ,,Já, það var helvíti gott að komast loksins frá kerlingunni minni. Þetta er fyrsti frídagurinn síðan í desember.”

Þar að auki var horft á uppistand um yfirburði karlmanna í öllu því sem þeir taka sér fyrir hendur.

Fleiri fréttir - FS

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Skoðun

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ríkisvæðing er mesta hættan

Þorsteinn Pálsson
Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfirborðsmennsku í ...

Skoðun

Panikk í pólitík

Panikk í pólitík

Ólafur Þ. Stephensen
Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í gær, sýna að mi...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Skólalíf / FS / Karlakvöld NFS: Gott að fá frið frá kerlingunum