Árni Freyr Snorrason skrifar:
Janúar hefur verið sneisafullur af frábæru félagslífi í Menntaskólanum í Reykjavík. Gettu betur hófst og Halldór, Elías og Ólafur stóðu sig frábærlega og lönduðu tveimur góðum sigrum. Næsta viðureign er í byrjun mars og þá mætum við Kvennaskólanum.
Skólafélagið vs. Framtíðin vika var haldin í fyrsta sinn og endaði hún með sigri Skólafélagsins. Hún var sneisafull af viðburðum, ræðukeppni, helíumblöðrur og grínhópurinn Mið-Ísland mættu svo dæmi séu nefnd. Að henni lokinni hófst söngvika Skólafélagsins sem endaði á söngkeppni í Loftkastalanum. Guðbjörg Hilmarsdóttir bar sigur úr býtum með lagið Dancing eftir Elisu.
Góðgerðarvika Framtíðarinnar fylgdi í kjölfarið, en aldrei áður í MR hefur verið haldin heil vika tileinkuð góðgerðarmálum. Allur ágóði rennur til Fjölskylduhjálpar.
Það er margt fleira á döfinni til að trufla MR-inga frá námi, en í næstu viku er árshátíð Framtíðarinnar og frumsýning leikfélags MR, Herranótt verður í lok þessa mánaðar.