Opið bréf til heilbrigðisráðherra

Fréttablaðið Aðsendar greinar 04. febrúar 2010 06:00
Opið bréf til heilbrigðisráðherra
Gísli Vilhjálmsson skrifar:
Um áramót, eða nánar tiltekið 21.12.2009, settir þú nýja reglugerð varðandi endurgreiðslu tannréttinga. Reglugerðin tók gildi 1.1.2010 og var sett án samráðs við tannréttingasérfræðinga sem eiga að sjá um skýrslugjöf til Sjúkratrygginga (SÍ).

Tilgangur reglugerðarinnar er augljós: Að skerða þá litlu fjárhæð sem í málaflokkinn fer með því að takmarka endurgreiðslur enn frekar en nú er gert. Tryggingayfirtannlækni SÍ er gefið ótakmarkað vald til að dæma um hvort læknisfræðilega sé þörf á meðferðinni eður ei. Sjúklingi er ekki heimilt að leita þjónustu án undangenginnar samþykktar stofnunarinnar og missir hann réttindi sín ef hann dirfist að leita þjónustu án samþykkis tryggingayfirtannlæknis. Tryggingayfirtannlækni, sem er sérfræðingur í tannholdssjúkdómum en ekki tannréttingum, er gefið vald til að ákvarða réttindi sjúklinga. Aðrir tannlæknar vinna ekki við SÍ og miðað við reynslu síðustu ára af Úrskurðarnefnd almannatrygginga hefur sú nefnd sýnt með úrskurðum sínum að hún leitar sjaldan álits annarra tannlækna á kærumálum. Tryggingayfirtannlækni er þá í raun með setningu reglugerðarinnar afhent einræðisvald. Þessi málaskipan er mikil afturför frá fyrra kerfi sem notað hefur verið árum saman og einkennist af skýrum, einföldum reglum og jöfnum rétti þeirra sem fara í tannréttingu. Með nýju reglunum er líka verið að gefa áliti tannréttingasérfræðinga sem verkið vinna langt nef.

Reglugerðinni er einnig ætlað að bæta hag barna með skarð í vör og góm. Tannréttingar þessara barna snúast ekki nema að litlu leyti um „tennur". Meðferðin snýst um að vinna með lýtalæknum og kjálkaskurðtannlæknum við að lagfæra góma og undirliggjandi andlitsbein þannig að hægt sé að lagfæra tennur og kjálka og koma þeim í eðlilegt horf. Meðferð þessara barna er flókið margslungið ferli sem erfitt er að lýsa stuttlega í blaðagrein. Í erfiðustu tilfellunum getur meðferðarferlið staðið frá 6-7 ára aldri og fram yfir tvítugt.

Reglugerð þín er þó ekki að flækja málið: Læknisferlið er sett í tvo flokka:
1. Opna skarð fyrir beinflutning. Hámarksendurgreiðsla 200 einingar eða kr. 138.600
2. Tannréttingarmeðferð með föstum tækjum(teinameðferð) í 3 ár að hámarki 800 einingar eða kr. 554.400. Samtals gerir þetta 693 þúsund krónur alls.

Þú fullyrtir í sjónvarpsviðtali að nú eigi að taka rösklega á þessu málefni og það eigi ekki að bitna á börnunum að fá þennan fæðingargalla í vöggugjöf. Þau eigi að fá aðgerðir að fullu greiddar. Ég sé það ekki á þessari endurgreiðsluskrá. Algengt verð á venjubundnum tannréttingum, þ.e. tannréttingum barna sem ekki eru með skarð í vör og góm, hjá tannréttingasérfræðingum um allt land er á bilinu 700-1100 þúsund krónur. Mig langar að vita hvar þú ætlar fyrir hönd þessara barna að kaupa 10-15 ára þjónustu fyrir tæpar 700 þúsund krónur. Ég get ekki séð annað en að enn og aftur eigi að slá ryki í augu forráðamanna þessara barna og þeir þurfi að greiða 60-70% af kostnaði við tannréttingar barna sinna. Reglugerð þín virðist ekki breyta neinu þar um, þú leiðréttir mig ef rangt er.

Tannréttingasérfræðingar hafa með glöðu geði sinnt upplýsingagjöf til SÍ um meðferð sjúklinga sinna svo þeir geti leitað réttar síns varðandi endurgreiðslur. Hefur þetta verið í formi staðfestingarvottorðs. Nú bregður svo við að þú ætlast til meira en upplýsingar um sjúklinga í reglugerð þinni og í raun með því að undirskrifa umsóknina um endurgreiðslu fyrir skjólstæðinga okkar þá erum við að samningsbinda okkur SÍ og lagðar eru á okkur nýjar kvaðir eins og að gefa föst verð í flókin ófyrirséð verkefni og binda verðskrá tilkynningarskyldu til SÍ með 3ja mánaða fyrirvara. Tannréttingasérfræðingar óska eftir eðlilegum óþvinguðum samskiptum við SÍ og heilbrigðisyfirvöld. Tannlæknar hafa ekki sóst eftir samningi við heilbrigðisyfirvöld, einfaldlega vegna þess að þau treysta sér ekki til að greiða raunkostnað við tannlækningar og hafa ekki gert í fjölda ára. Að „setja" tannréttingasérfræðinga á samning með valdboði er nýlunda sem greinilega á að reyna með því að neita sjúklingum um endurgreiðslu nema tannlæknirinn beygi sig undir valdboð þitt. Ég get ekki skrifað undir umsóknir á meðan slík þvingunarráðstöfun er við lýði og ég á von á að fleiri starfsfélagar mínir líti einnig þannig á málið.

Ég vil hvetja þig til að skoða og breyta umræddri reglugerð á ný með tilliti til þess að hægt verði að vinna eftir henni og hún nái þeim tilgangi að þjóna þeim sem mesta aðstoð þurfa. Hlustaðu á skjólstæðinga þína og þá sem vinna eiga verkin, en ekki falla ofan í embættismannagryfjuna sem forverar þínir komust aldrei upp úr.

Höfundur er tannréttingasérfræðingur og er með fjölda barna með skarð í vör og góm í meðferð.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Nýtt er orðið til

Í hinni helgu bók, Biblíunni, segir á einum stað: „…hið liðna varð að engu, ný...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Til Landspítalamanna

Félagar mínir á Landspítalanum, Jóhannes Gunnarsson og Björn Zoëga, svöruðu nýlega grein u...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Að fórna góðum árangri

Starfsemi sérdeildar fyrir einhverfa í Hamraskóla hefur byggst upp frá árinu 1996 og átti ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 06:00

Ætlar þú að þrýsta á hnappinn?

Fyrir Alþingi liggur rammaáætlun um nýtingu vatnsafls til raforkuframleiðslu í landinu. Ma...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 11:28

Að viðurkenna vandann

Ég hef áður lýst því hvernig 5 afborganir af litlu láni sem ég var að semja um við Arionba...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Fögnum fjölbreytileikanum - einnig meðal lögmanna

Jón Egilsson hæstaréttarlögmaður hefur verið dæmdur til greiðslu sektar til ríkissjóðs á g...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Ég óska þeim öllum til hamingju

Ég vil óska þeim öllum til hamingju sem láta sig velferð dýra varða. Frá og með fyrsta deg...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Landsbyggðin og Landspítalinn

Í skýrslu nefndar um uppbyggingu Landspítala – háskólasjúkrahúss (LSH) við Hringbrau...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Ég ætla að lesa

Það er mér mikils virði að fá að vera þátttakandi í vinnunni sem fram undan er við að glæð...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Erum við undirbúin fyrir hamfarir?

Þórir Guðmundsson, sviðsstjóri hjálparsviðs Rauða kross Íslands, skrifaði grein í Fréttabl...  

Meira
Aðsendar greinar 02. feb. 2012 06:00

Orkunýting og ferðaþjónusta

Víða getur ferðaþjónusta og orkuvinnsla farið vel saman.“ Svo segir m.a. í umsögn Sa...  

Meira
Aðsendar greinar 01. feb. 2012 06:00

Kirkjan þarf séra Gunnar Sigurjónsson

Eftir samræður mínar við fólk á förnum vegi síðustu vikuna um val á nýjum biskup fyrir Ísl...  

Meira
Aðsendar greinar 01. feb. 2012 06:00

Magnafsláttur skilar sér til viðskiptavina Bónus

Á árinu 1988, ári fyrir stofnun Bónus, fóru um 22% af ráðstöfunartekjum heimilanna til kau...  

Meira
Aðsendar greinar 01. feb. 2012 06:00

Moska, mannréttindi og kristin trú

Fyrir 14 árum bjó ég um tíma í landi þar sem fjöldi trúarbragða er sýnilegur á kröftugan o...  

Meira
Aðsendar greinar 01. feb. 2012 06:00

Barnasáttmáli SÞ er lykill að stuðningi við börn sem eru þolendur mansals

Ef til vill hljómar þetta eins og klisja, en er þó staðreynd sem aldrei má gleymast. Þetta...  

Meira
Aðsendar greinar 01. feb. 2012 06:00

Betra samfélag

Í dag eru rétt þrjú ár liðin frá því minnihlutastjórn Samfylkingarinnar og VG tók við völd...  

Meira
Aðsendar greinar 31. jan. 2012 13:38

Versti dagur Samfylkingarinnar

Það hefur ekki alltaf verið auðvelt að vera stuðningsmaður Samfylkingarinnar síðustu fimm ...  

Meira
Aðsendar greinar 31. jan. 2012 10:00

Við sníðum norræna velferðarsamfélagið að framtíðinni

Í dag hefst ársfundur SAMAK (samtaka norrænna jafnaðarmanna og verkalýðshreyfinga) í Stokk...  

Meira
Aðsendar greinar 31. jan. 2012 06:00

Okkur blæðir!

Ég ætla að vekja máls að nýju á þeirri staðreynd að samtengd rafræn sjúkraskrá á landsvísu...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Aukablad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / / Opið bréf til heilbrigðisráðherra