Vísir, 03. feb. 2010 14:18

BM Vallá fćr heimild til greiđslustöđvunar

mynd
Í dag, miðvikudaginn 3. febrúar, var BM VALLÁ hf. veitt heimild til greiðslustöðvunar svo unnt verði að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Undanfarið ár hefur starfsfólkið unnið hörðum höndum að endurskipulagningu félagsins með víðtækum sparnaðar- og hagræðingaraðgerðum í góðri samvinnu við helstu lánadrottna félagsins.

Í tilkynningu segir að áætlanir um fjárhagslega endurskipulagningu BM VALLÁ hafa verið kynntar helstu lánveitendum félagsins. Að höfðu samráði við þá var talið rétt að óska formlegrar greiðslustöðvunar með aðstoðarmanni svo ljúka mætti verkinu á hlutlægan og skipulegan hátt.

Frá miðju ári 2008 hefur orðið gríðarlegur samdráttur í verklegum framkvæmdum hér á landi sem endurspeglast í minnkandi umsvifum félagsins. Árið 2007 var samanlögð velta BM VALLÁ tæplega 10 milljarðar króna og starfsmenn liðlega 500.

Í lok ársins 2009 var starfmannafjöldinn kominn niður í 232 og heildarvelta fyrirtækisins var tæplega 5 milljarðar. Veltan í krónum skrapp saman um helming milli áranna. Þá hefur gengisfall krónunnar tvöfaldað langtímaskuldir félagsins og orsakað miklar verðhækkanir á hráefnum og aðföngum sem hafa haft veruleg áhrif á reksturinn.

Á einstökum framleiðslusviðum fyrirtækisins varð magnsamdráttur sem nam frá 40-70%. Mestur samdráttur var í nýframkvæmdum en minni í sérstökum verkefnum svo sem við Bolungarvíkurgöng og jarðgöngin í Héðinsfirði. Þá reyndist sala á framleiðsluvörum til viðgerða og viðhalds fasteigna halda vel sjó. Sama er að segja um sölu á vörum fyrir garða og umhverfið.

Eftir mikinn samdrátt undanfarinna missera sjást nú loks fyrstu merki um viðsnúning. Áætlanir félagsins fyrir árið 2010 gera ráð fyrir að botni verði náð á fyrsta ársfjórðungi og að velta ársins verði á bilinu 5.2 - 5.6 milljarðar króna og að afkoman á árinu verði vel viðunandi að lokinni endurskipulagningu.

Á síðustu tveim árum hefur BM VALLÁ notið velvildar og þolinmæði lánardrottna sinna, stórra sem smárra og kann bestu þakkir fyrir það. Þá má ekki gleyma mikillar og góðrar vildar þúsunda viðskiptavina sem sumir hverjir hafa átt viðskipti við félagið frá upphafi. Þetta hefur skipt sköpum í þeim lífróðri sem staðið hefur linnulaust frá því á árinu 2008.

BM VALLÁ hf. rekur starfsemi sína á 11 stöðum á landinu. Helstu framleiðsluvörur fyrirtækisins eru steinsteypa, völsun þakstáls og áls, húshlutaeiningar úr steinsteypu, stáli og límtré, hellur og steinar og fleiri vörur til garða og umhverfis, þurrblöndur til múrverks og margt fleira. Þá starfrækir félagið hönnunardeild fyrir byggingalausnir auk deildar sem sérhæfir sig í dúklagningu þaka, og rekstur stoð- og þjónustudeilda svo sem véla- og bifreiðaverkstæðis rafmagn-, blikk- og járnsmíðaverkstæðis svo nokkuð sé nefnt.

Aðstoðarmaður félagsins í greiðslustöðvunarferlinu er Óskar Sigurðsson hrl .



Fleiri fréttir

Viđskipti innlent 19. mar. 2010 18:47

Glitnir lánađi Byr og Byr lánađi FL Group sömu upphćđ

Glitnir lánađi Byr Sparisjóđi ţrjá milljarđa króna á sama tíma og sjóđurinn lánađi FL Grou...  

Meira

Viđskipti innlent 19. mar. 2010 18:35

Kaupţing rannsakar 20 aflandsfélög vegna tugmilljarđa viđskipta

Skilanefnd Kaupţings hefur tekiđ rúmlega 20 félög og félagasamstćđur í ţekktum skattaskjól...  

Meira

Viđskipti innlent 19. mar. 2010 15:21

Planck stofnunin býđur stjórnvöldum lausn á Icesave

Planck stofnunin í Hollandi (Planck Foundation) hefur bođiđ íslenskum stjórnvöldum áćtlun ...  

Meira

Viđskipti innlent 19. mar. 2010 17:23

Úrvalsvísitalan hćkkađi um 0,35 prósent

Gengi hlutabréfa í Fćreyjabanka hćkkađi um 1,58 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylg...  

Meira

Viđskipti innlent 19. mar. 2010 16:02

Áfram mikil velta á skuldabréfamarkađi

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hćkkađi um 0,2% í dag í 16,8 milljarđa kr. viđskiptum. GAM...  

Meira

Viđskipti innlent 19. mar. 2010 15:42

Eyrir Invest tapađi fjórđum milljörđum króna

Fjárfestingarfélagiđ Eyrir Invest tapađi rúmum 23,6 milljónum evra í fyrra. Ţetta jafngild...  

Meira

Viđskipti innlent 19. mar. 2010 15:32

Endurskipulagning Farice framlengd til 1. apríl

Samkomulag ţađ sem Eignarhaldsfélagiđ Farice ehf. og kröfuhafar ţess gerđu í desember 2009...  

Meira

Viđskipti innlent 19. mar. 2010 15:13

Íslandsbanki setur Hafnarslóđ í söluferli

Fyrirtćkjaráđgjöf Íslandsbanka hf. hefur veriđ faliđ ađ annast formlegt ferli sem lýtur ađ...  

Meira

Viđskipti innlent 19. mar. 2010 14:18

Orkuveita Reykjavíkur tapađi 2,5 milljörđum í fyrra

Rekstrarhagnađur Orkuveitu Reykjavíkur (OR) fyrir fjármagnsliđi, skatta og afskriftir, EBI...  

Meira

Viđskipti innlent 19. mar. 2010 13:50

Hagnađur Landsvirkjunar nam 24,4 milljörđum í fyrra

Hagnađur Landsvirkjunnar á síđasta ári nam 193 milljónum dollara sem svarar til um 24,4 mi...  

Meira

Viđskipti innlent 19. mar. 2010 12:06

Innflutningur á byggingarefnum hefur hrapađ

Minnkandi umsvif byggingariđnađarins koma glögglega í ljós ţegar tölur Hagstofunnar um inn...  

Meira

Viđskipti innlent 19. mar. 2010 09:49

MIT Global Startup Workshop haldin á Íslandi

Dagana 24. - 26. mars nk. fer fram á Íslandi ein virtasta frumkvöđlaráđstefna í heiminum, ...  

Meira

Viđskipti innlent 19. mar. 2010 09:11

Vísitala byggingarkostnađar hćkkar lítilega

Vísitala byggingarkostnađar reiknuđ um miđjan mars 2010 er 101,1 stig sem er hćkkun um 0,3...  

Meira

Viđskipti innlent 19. mar. 2010 08:04

Greining: Verđbólgan verđur 8,9% í mars

Greining MP Banka reiknar međ ţví ađ ársverđbólgan fari í 8,9% í marsmánuđi og aukist ţví ...  

Meira

Viđskipti innlent 19. mar. 2010 03:13

Upplýsingar veittar um Landsvirkjun

Lagt verđur til viđ forsćtisráđherra fyrir lok nćsta mánađar ađ opinber fyrirtćki svo sem ...  

Meira

Leit á Vísi

Viđskipti


Nýtt á Vísi

Markađurinn

Markađurinn

Viđskiptaorđabók

Nćrmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöđ 2 og Vísi


Ađgengisvirkni