Góðgerðavikan í MR

Vísir MR 03. febrúar 2010 19:48
Í hádegishléi föstudags var haldin dance off-keppni við mikinn fögnuð nemenda.
Í hádegishléi föstudags var haldin dance off-keppni við mikinn fögnuð nemenda.
Jóhann Páll Jóhannsson skrifar:
Í síðustu viku fór hinn árlegi viðburður ,,Gleði til góðgerða" fram í Menntaskólanum í Reykjavík. Áður hefur gleðin einskorðast við einn dag þar sem nemendur skora hver á annan að taka upp á ýmsum furðulegheitum. Í ár ákvað hins vegar Góðgerðafélagið og stjórn Framtíðarinnar að helga alla vikuna góðgerðastarfsemi. Að þessu sinni rann peningurinn til Fjölskylduhjálpar og söfnuðu MR-ingar u.þ.b. 290.000 krónum!

Dagskráin var hin fjölbreyttasta og má þá nefna góðgerðabingó, armbeygjukeppni og dance-off. Jafnframt kom Blóðbíllinn í heimsókn og voru MR-ingar gjafmildir á blóð, enda gaf Vodafone Fjölskylduhjálp 1000 krónur á hvern blóðgjafa. Í vikunni fór fram Gettu betur-keppni milli MR og ML, og ákváðu nemendafélög MR að gefa samtals 1000 krónur fyrir hvert það stig sem liðið halaði inn. Keppninni lyktaði með stöðunni 38-14 MR í vil, og safnaði liðið því 38.000 krónum. Þar að auki má nefna að einn nemandi lofaði 20.000 krónum ef liðið sigraði með 20 stiga mun eða meiri, og gerði hann það með glöðu geði.

Þegar litið er til baka heppnaðist góðgerðavikan vonum framar. MR-ingar eru ánægðir með að hafa lagt fátækum fjölskyldum landsins lið.

Fleiri fréttir - MR

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Skoðun

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ríkisvæðing er mesta hættan

Þorsteinn Pálsson
Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfirborðsmennsku í ...

Skoðun

Panikk í pólitík

Panikk í pólitík

Ólafur Þ. Stephensen
Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í gær, sýna að mi...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Skólalíf / MR / / Góðgerðavikan í MR