Auđvitađ verđur Íraksrannsókn

Fréttablađiđ Fastir pennar 03. febrúar 2010 06:00
Björn Ţór Sigbjörnsson
Björn Ţór Sigbjörnsson
Björn Ţór Sigbjörnsson skrifar:

Enn er stuðningur Íslands við innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak árið 2003 í brennidepli. Opinber rannsókn á málinu í Bretlandi vekur þá umræðu af nokkurra missera blundi. Virðast vinnubrögð breskra til fyrirmyndar; allt er gert fyrir opnum tjöldum og öllum sem skipta máli er gert að gera grein fyrir máli sínu.

Alveg frá því að upplýst var í Bandaríkjunum í mars 2003 að Íslendingar væru í stuðningsliði innrásarherjanna og legðu þeim til aðstöðu til hernaðaraðgerðanna hér á Íslandi hafa vinnubrögð íslensku ráðamannanna í málinu þótt vafasöm. Þau vinnubrögð voru þó í fullu samræmi við það sem viðgekkst og því eðlileg að því leyti til. Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson höfðu nefnilega þann hátt á að taka ákvarðanir - stórar og smáar - upp á eigin spýtur. Þeir létu ekki fyrirbæri á borð við þingflokka, þingnefndir, Alþingi og ríkisstjórn flækjast fyrir sér.

Ákvörðun tvímenningana um stuðninginn þurfti ekki að koma á óvart. Afstaða þeirra hafði margsinnis komið fram opinberlega. Þeir sögðu að koma bæri Saddam Hussein frá völdum með góðu eða illu og að Keflavíkurflugvöllur stæði árásarherjunum opinn til afnota.

Þetta umdeilda mál hefur annað veifið fengið talsverða umfjöllun. Fókusinn hefur jafnan verið á lista, sem Bandaríkjamenn gáfu út, yfir þær þjóðir sem blessuðu innrásina eða tóku þátt í henni með einhverjum hætti. „Listi viljugra þjóða," var hann kallaður. Endalaust var talað um listann eins og hann væri vandamálið, ekki stuðningurinn sjálfur. Sjálfsagt áttu sérfræðingar í umræðustjórnun þar einhvern hlut að máli.

Staðfastir Íslendingar hafa reynt að láta eins og stuðningur Íslands hafi ekki skipt neinu máli. Ráðist hefði verið inn í Írak hvort sem Ísland hefði stutt þær aðgerðir eða ekki. Í slíkum orðum fellst yfirlæti gagnvart þeim sem láta sér annt um orðspor lands og þjóðar og stendur ekki á sama um hvað stjórnvöld á hverjum tíma aðhafast.

Því er líka haldið fram að þetta hafi nú verið allt í lagi af því að Íslendingar tóku ekki þátt í sjálfri innrásinni. Af því að við héldum ekki um gikkinn. Þjóð sem ekki á her kemst ekki nær því að taka þátt í innrás en að lýsa yfir fullkomnum stuðningi við slíkar aðgerðir og bjóða fram aðstöðu til að auðvelda þær eða jafnvel gera þær mögulegar.

Fyrir liggur álit býsna virtra lögmanna um að ákvörðun Davíðs og Halldórs hafi ekki verið lögbrot. Það er nú gott. En hvað sem því líður er mikilvægt að málið verði gert almennilega upp, líkt og Bretar eru nú að gera. Verður ekki betur séð en að Alþingi sé á góðri leið með að ákveða það þrátt fyrir smá stæla í varaformanni Sjálfstæðisflokksins í Fréttablaðinu í gær.

Róið er að því öllum árum að búa svo um hnútana í stjórnsýslunni og á fjármálamarkaði að bankakerfið hrynji ekki aftur. Það gæti nefnilega gerst að óábyrgir menn veljist á ný til ábyrgðarstarfa í bönkunum. Að sama skapi er mikilvægt að girða fyrir að einn eða tveir menn geti tekið ákvarðanir á borð við þá að styðja - og greiða fyrir - innrás í önnur ríki. Eðlilegt er að setja lög og reglur sem koma í veg fyrir slíkt í framhaldi íslensku Íraksrannsóknarinnar.





Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niđurstöđur skođanakönnunar Fréttablađsins og Stöđvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvćđing er mesta hćttan

Ögmundi Jónassyni tókst međ haldbćrum rökum í Kastljóssţćtti í vikunni ađ sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar ţjóđir eiga fleiri eđa aflmeiri bíla miđađ viđ fólksfjölda en Íslendingar. Ţađ á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gćti ţótt mikil eftirsjá ađ öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og ţar um landiđ...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigđ kćrasta vill tilbreytingu

Öll erum viđ međ okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfrćđing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstađa um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaafliđ Samstađa, undir forystu Lilju Mósesdóttur alţingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Ţađ er undur stutt síđan máliđ sýndist afgreitt. Ţetta međ markađina og ríkiđ. Markađir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orđiđ í forsjármálum barna á 20 árum. Áriđ 1992 varđ fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóđirnir platađir

Forsvarsmenn lífeyrissjóđa keppast nú um ađ túlka niđurstöđu nefndar sem gerđi úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hćstaréttar

Lög eiga ađ tryggja sanngjarna málsmeđferđ, réttlćti í samskiptum fólks og velferđ. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Ţriđjungur ţingheims, ţingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapađ af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóđina hefur leitt í ljós ađ á tveimur árum kringum bankahruniđ tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga ţarf ađ fćrum leiđum

Skuldavandi heimila á ađ stórum hluta rót sína í ţví furđulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstćđrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóđanna inniheldur harđa gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbrćđralag

Kópavogur hefur dregiđ ađ sér nokkra athygli vegna viđrćđna um myndun nýs meirihluta í bćj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viđbúin nýjum hćttum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í nćsta nágrenni viđ Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ćtlađ samţykki

Nokkrir ţingmenn vilja breyta lögum á ţann hátt ađ líffćri verđi tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverđ umrćđa fór fram um EES-samninginn á Alţingi fyrr í vikunni. Tilefniđ va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiđari leiđ til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grćdd í Íslendinga ár hvert. Vegna ţessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárađ uppgjör

Ţingmenn úr ađ minnsta kosti ţremur flokkum, auk óháđra, munu í vikunni leggja fram á Alţi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldiđ

Sagnfrćđingar tala um ađ stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstćđisstjórnmál af hólmi áriđ 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnađur krónu

Samkeppniseftirlitiđ birti í síđustu viku skýrslu sína um verđţróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Auđvitađ verđur Íraksrannsókn