Fréttablaðið, 01. feb. 2010 06:00

Summa lastanna

mynd

Jón Kaldal skrifar:

Í fjármálaráðuneytinu er að störfum starfshópur um heildarendurskoðun á áfengislöggjöfinni. Frumvarp byggt á vinnu hópsins verður að öllum líkindum lagt fyrir haustþingið. Meðal þess sem mun vera í skoðun er að lækka áfengiskaupaaldurinn um tvö ár og að heimila takmarkaðar áfengisauglýsingar.

Hvort tveggja er framfaraskref frá núverandi lögum. Öllu síðra að starfshópurinn mun ekki vera með í skoðun að leggja til að einkaréttur ríkisins á sölu bjórs og léttvíns verði afnuminn, eins og hefur þó verið vilji meirihluta þjóðarinnar samkvæmt skoðanakönnunum um töluvert skeið.

Ástæðan fyrir að fólk getur ekki gripið með sér bjórkippu eða rauðvínsflösku um leið og það gerir helgarinnkaupin í matvöruverslunum eru meintir hagsmunir heildarinnar. Áfengir drykkir þykja slík heilsuvá að takmarka þarf að þeim aðgengi og verðleggja hátt. Sérstaklega þarf að gæta þess að halda ungmennum frá því að komast í nálægð við áfengið, og telja fulltrúar ríkisins það betur til þess fallið en aðrir.

Engin ástæða er til að deila um að vín getur verið mikill skaðvaldur, þó að auðvitað séu það fyrst og fremst fyllibytturnar sem koma óorði á brennivínið, svo einn sígildur frasi sé settur á flot.

Hitt er allt annað mál hvort það að refsa öllum fjöldanum fyrir misnotkun fárra, með því að selja allt áfengi aðeins í sérstökum verslunum ríkisins, hafi áhrif til hins betra á drykkjusiði þjóðarinnar. Ýmislegt bendir til þess að sú aðferðafræði þjóni engum tilgangi.

Í því samhengi er mjög athyglisvert að bera saman reynslu Pennsylvaníu við önnur ríki Bandaríkjanna. Í þessu gamla kvekararíki er svo til nákvæmlega sama fyrirkomulag á sölu áfengis og á Íslandi. Ríkið rekur allar vínbúðir og aðgengið er takmarkað. Lögin eru meira að segja svo ströng að þeir sem koma með áfengi með sér frá nærliggjandi ríkjum eiga yfir höfði sér allt að 90 daga í fangelsi.

Hvergi í Bandaríkjunum, að Utah meðtöldu, eru jafnströng áfengislög og aðgengið að víni jafn takmarkað og í Pennsylvaníu. Þrátt fyrir þetta drekka íbúar þar svo til jafnmarga lítra að meðaltali á ári og aðrir Bandaríkjamenn. Og þeir eiga í sömu vandræðum vegna áfengisneyslu og íbúar annarra ríkja Bandaríkjanna. Öllu verri ef eitthvað er. Unglingadrykkjan er þannig yfir landsmeðaltalinu og sama gildir um dauðsföll í umferðinni af völdum ökumanna undir áhrifum. Þar eru Pennsylvaníuíbúar í 15. sæti af 51 ríki á meðan íbúar Illinois eru í 32. sæti, en þeir síðarnefndu geta keypt ótakmarkað af sterku, bjór og léttvíni í sínum matvöruverslunum.

Þessi tölfræði segir okkur ekki að íbúar Pennsylvaníu séu sérstaklega forhertir og að í Illinois búi betra fólk. Hún bendir einfaldlega til þess að summa lastanna leitar alltaf jafnvægis.

Ákveðið hlutfall fólks mun alltaf eiga erfitt með að umgangast vín og aðra vímugjafa sama hvort söluaðilinn er ríkisstarfsmaður eða kaupmaðurinn á horninu.



Fleiri fréttir

Fastir pennar 18. mar. 2010 06:00

Lýðræðissjóðir?

Þótt lífeyrissjóðir landsmanna hafi orðið fyrir miklu áfalli í hruninu og tapað stórlega á...  

Meira

Fastir pennar 18. mar. 2010 06:00

Skjögrandi á háum hælum

Ég lýsti því á þessum stað fyrir tæpu ári, þá var liðið hálft ári frá hruni, að Íslendinga...  

Meira

Fastir pennar 16. mar. 2010 06:00

Leggðu á djúpið

Í vikunni er þess minnst að Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur starfað í sex áratugi. Vonir ...  

Meira

Fastir pennar 15. mar. 2010 06:00

Opnið augun

Á Íslandi þrífst skipulögð glæpastarfsemi. Það er staðreynd, sem ekki þarf lengur að deila...  

Meira

Fastir pennar 13. mar. 2010 11:13

Grikklandsfárið

Grikkland er á hausnum. Það eru ekki nýjar fréttir. Grikkland hefur oft áður verið á hausn...  

Meira

Fastir pennar 13. mar. 2010 06:00

Hver stingur hausnum út?

Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um icesave velta menn því helst fyrir sér hvenær Ögmundur Jó...  

Meira

Fastir pennar 12. mar. 2010 06:00

Góðum verkum haldið á lofti

Oft er því haldið fram að í hraða nútímasamfélagsins gefist lítill tími til að huga að náu...  

Meira

Fastir pennar 12. mar. 2010 06:00

Misjöfnun

Þegar nýr erfingi dönsku krúnunnar var að í þann mund að koma í heiminn, fyrir nokkrum áru...  

Meira

Fastir pennar 11. mar. 2010 06:00

Óvissuferð

Átök verða styrkist krónan ekki um fjórðung til fimmtung. Þetta voru skilaboð Alþýðusamban...  

Meira

Fastir pennar 11. mar. 2010 06:00

Í minningu Valtýs

Tveir stjórnmálamenn áttu mestan þátt í að ryðja Íslandi braut inn í nútímann, og fór þó h...  

Meira

Fastir pennar 11. mar. 2010 06:00

Íslenska krónan: Er sveigjanleikinn of dýru verði keyptur?

Í þeirri miklu fjármálakreppu sem riðið hefur yfir heimsbyggðina síðustu misseri upplifði ...  

Meira

Fastir pennar 10. mar. 2010 06:00

Dæmt fyrir mansal í fyrsta sinn

Daginn sem konur tileinkuðu 8. mars baráttu sinni fyrir jafnrétti kynjanna í hundraðasta s...  

Meira

Fastir pennar 09. mar. 2010 06:00

Kosið um kvóta?

Ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu í gær, um að næsta þjóðarat...  

Meira

Fastir pennar 09. mar. 2010 06:00

Þarfur og óþarfur iðnaður

Það er skiljanlegt að á krepputímum sé uppi rík krafa um sparnað og hagræðingu í rekstri r...  

Meira

Fastir pennar 08. mar. 2010 06:00

Þrír kostir

Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave-lögin á laugardag koma ekki á óvart. Miðað við...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir

Vinsælast

Afréttarinn mikli

Afréttarinn mikli

Haustið 2008 reið stærsta fjármálakreppa allra tíma yfir á Íslandi. Á sama tíma ...


Nýtt á Vísi

Nærmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni

-- catnafn="Fastir pennar"--