Dýr og volgur

Fréttablaðið Fastir pennar 29. janúar 2010 06:00
Pawel Bartoszek.
Pawel Bartoszek.
Pawel Bartoszek skrifar:

Þegar lög um bann við smásölu áfengis kl. 20 á kvöldin voru afnumin í Danmörku á einn stuðningsmaður breytinganna að hafa sagt: „Hvers vegna á hafa það bannað að selja áfengi einmitt á þeim tíma sem menn þurfa mest á því að halda?" Á Íslandi er þessu þveröfugt farið. Sama hvar menn standa í flokki, virðast allir sammála um að því torfundnara og dýrara sem áfengi er því betra.

Íslendingar feta auðvitað engan meðalveg með áfengislöggjöf sinni. Af íbúum OECD ríkja búa einungis um það bil 10 prósent á svæðum þar sem ríkið fer með einhvers konar einokun á áfengissölu. Aðeins á Íslandi, í Svíþjóð, Utah og á nokkrum stöðum í Kanada er einokunin nær alger, á flestum hinna staðanna má engu að síður kaupa bjór í matvörumörkuðum og víða léttvín einnig. Sé litið til áfengiskaupaaldurs á þessum svæðum er það einungis Utah-fylki sem getur státað af hærra aldursmarki til áfengiskaupa en þar, líkt og annars staðar í Bandaríkjunum, er aldurinn 21 ár. Áfengisskattar á Íslandi eru síðan í algjörum sérflokki. Hérlend áfengisstefna er því, þegar á heildina er litið, ein sú allra íhaldssamasta meðal vestrænna ríkja, en einungis 2 prósent Vesturlandabúa búa við strangari löggjöf um þessi mál. Það er því nánast ótrúlegt að tekist hefur að snúa umræðunni á þann veg að öfgarnar séu þeirra sem vilji færa stefnuna örfá skref inn á miðjuna, en ekki þeirra sem standa vörð um sannkallaða jaðarpólitík.

Menn eru kallaðir öfgamenn og klæddir í stuttbuxur af andstæðingum sínum fyrir þá afar hófsömu skoðun að ríkiseinokun sé ekki forsenda ábyrgrar smásölu áfengis. Menn eru sagðir vera popúlistar og vega að barnæsku landsins fyrir það eitt að telja ekki rétt að banna ákveðnum hluta fullorðins fólks að neyta löglegrar vöru. Stærsti sigur orðræðunnar er að tekist hefur að sannfæra stóran hluta frjálslyndra Íslendinga um að skoðanir þeirra séu í raun afar barnalegar eða í besta falli ótímabærar.

Stuðningsmenn breytinga halda sig því til hlés á meðan andstæðingarnir sitja ekki á skoðunum sínum. Í vikunni mátti heyra fréttir af því að starfshópur á vegum fjármálaráðherra muni leggja til enn frekari hækkanir á áfengisverði, enda sé enn talsvert „svigrúm" til þess að mati nefndarmanna.

Nefndarmenn eiga raunar dálítið hrós fyrir að hafa tekist að láta jafnóvísindalega og merkingarlausa fullyrðingu hljóma jafnfaglega og raun ber vitni. Hvenær ætti þetta svigrúm til frekari hækkana áfengi í raun að vera uppurið? Hvenær mun ekki vera hægt að rökstyðja, með vísan til aukinna tekna ríkissjóðs og „lýðheilsusjónarmiða", að áfengisgjaldið sé hækkað? Bara um nokkrar krónur til viðbótar.

En það eru sem betur fer ekki aðeins vondar fréttir sem berast frá umræddum starfshópi. Í fréttum vikunnar mátti einnig heyra að hugsanlega stæði til að endurskoða áfengiskaupaaldur í samræmi við önnur réttindi. Þýði þetta lækkun áfengiskaupaaldurs niður í 18 ár eru það jákvæðar fréttir en auðvitað ber að forðast of mikla bjartsýni.

Varla er til það góða framfaramál sem íhaldsmenn allra flokka geta ekki stöðvað eða svæft í meðförum þingsins.

Á öðrum vígstöðvum er ekki margs nýs að vænta. Standa á vörð um einokunarhlutverk ÁTVR, og raunar áformað að „styrkja stöðu ÁTVR".
Pistlahöfundi liggur raunar mikil forvitni á að vita hvernig unnt sé að styrkja enn frekar stöðu opinbers einokunarrisa sem verslar með vörur sem flest fólk kaupir sama hvað. Þau tíðindi að ekki standi til að leyfa sölu á bjór og léttvínum í matvöruverslunum geta hins vegar ekki kallast sérstök vonbrigði í ljósi þess hvernig valdahlutföll á Alþingi eru nú um stundir. Vonbrigðin eru þau að á þeim hartnær tveimur áratugum sem hægrimenn sátu við völd hafi þeir ekki haft dug til að stíga þetta sjálfsagða skref. Hefði það verið gert væri að minnsta kosti hægt að vísa í einn jákvæðan og varanlegan ávinning af valdatíð Sjálfstæðisflokksins.

Setningin „áður en Davíð Oddsson komst til valda, þurfti að sýna flugmiða til að kaupa gjaldeyri" hefur nefnilega glatað sínum fyrri gljáa.




Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Inga Rósa Þórðardóttir / Dýr og volgur