Fjölgar jafnt en ekki nógu þétt

Fréttablaðið Fastir pennar 29. janúar 2010 06:00
Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir skrifar:

Þessar vikur eru flokkar og stjórnmálasamtök að stilla upp listum sínum til sveitarstjóranrkosninga. Aðferðirnar eru mismunandi en einhver útfærsla prófkjörs eða forvals algengast.

Nú eru aðeins 36% kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum konur og í síðustu kosningum leiddu konur 22% framboðslista á landinu. Í sveitarstjórnum minni sveitarfélaga er hlutur kvenna enn rýrari en í þeim sem stærri eru og ömurleg er sú staðreynd að enn eru til sveitarstjórnir á Íslandi, fimm talsins, sem eingöngu eru skipaðar körlum. Af 76 sveitarstjórnum á landinu eru konur í meirihluta í 11 sem er einni sveitarstjórn meira en á kjörtímabilinu á undan.

Hlutur kvenna í sveitarstjórnum hefur vissulega vaxið jafnt undanfarna áratugi en alls ekki nógu þétt. Því verða allir að leggjast á eitt til að jafna hlut kynjanna í sveitarstjórnum landsins. Þarna reynir á þátttakendur í prófkjörum því röðun á framboðslista skiptir höfuðmáli.

Í forvalsreglum Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor er ákvæði þess efnis að ef hallar á konur í niðurstöðum forvals á sex fyrstu sætum lista, skuli uppröðun leiðrétt með fléttulista. Því miður tíðkast þessi beinskeytta aðferð óvíða.

Viðhorf til kynjakvóta og fléttulista eru mismunandi en það hlýtur þó að teljast algert lágmark að framboð setji sér markmið varðandi kynjaskiptingu á framboðslistum og tryggi það að karl og kona skipi fyrsta og annað sæti.

Jafnréttisstofa og samgöngu- og sveitarstjórnarrráðuneytið hafa gefið út ritlinginn Eflum lýðræðið - konur í sveitarstjórn og er honum ætlað að hvetja konur til að bjóða sig fram til starfa í sveitarstjórnum. Þar bendir Kristján Möller samgönguráðherra og ráðherra sveitarstjórnarmála meðal annars á að í yfirlýsingu Evrópuráðsins um jafnrétti kynjanna segi að markmiðið sé jöfn staða kynja sem leiði til aukins réttlætis og styrki þar með lýðræði. Hann ítrekar að þetta markmið sé skýrt í stefnuyfirlýsingu þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr sem leggur áherslu á mikilvægi lýðræðis og jafnréttis.

Ráðherrann ítrekar einnig að þessi markmið endurspeglist í störfum hans sem ráðherra sveitarstjórnarmála. Markmið ráðherrans mun vera að hlutfall kynjanna í sveitarstjórnum landsins verði sem næst því að vera jafnt eftir kosningar í vor. Svo og að engin sveitarstjórn verði eingöngu skipuð fulltrúum annars kynsins.

Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á að samstarf beggja kynja í tengslum við stjórnun er til muna farsælli en stjórnun þar sem viðhorf karla ráða að mestu ríkjum, hvort heldur sem er í fyrirtækjum, stofnunum eða á vettvangi stjórnmálanna. Rekstur verður betri og sköpun meiri þar sem bæði kynin koma að.

Allt veltur á því hvernig til tekst með röðun á listana því sveitarfélögin í landinu hafa hreinlega ekki efni á að njóta ekki krafta kvenna til jafns við karla næstu fjögur árin.




Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Fjölgar jafnt en ekki nógu þétt