Ađ keyra land í kaf

Fréttablađiđ Fastir pennar 28. janúar 2010 06:00
Ţorvaldur Gylfason.
Ţorvaldur Gylfason.
Ţorvaldur Gylfason skrifar:

Haítí á sér merka sögu. Landið var frönsk þrælanýlenda, ein ríkasta nýlenda Frakka, helzta djásn heimsveldisins, perla Karíbahafsins af sjónarhóli nýlenduherranna. Þrælarnir á Haítí sættu svo illri meðferð, að sum árin þurftu Frakkar að flytja 50.000 nýja þræla til Haítí í stað þeirra, sem höfðu látið lífið árið áður. Svo fór, að þrælarnir risu upp, innblásnir af frönsku stjórnarbyltingunni 1789, hröktu kúgarana af höndum sér og stofnuðu sjálfstætt ríki á eynni 1804. Bandaríkin voru þá eina sjálfstæða ríkið vestan hafs, en þau höfðu tekið sér sjálfstæði frá Bretum 1776. Bandaríkjamenn viðurkenndu þó ekki sjálfstæði Haítís fyrr en 1862, þegar suðurríkin höfðu sagt sig úr lögum við norðurríkin og borgarastyrjöldin, sem brauzt út 1861, hafði snúizt upp í stríð um þrælahald.

Að loknu stríði 1865 var þrælahaldið afnumið í Bandaríkjunum. Engar bætur komu fyrir þrælana, það var reglan, nema í Washington, þar sem þrælaeigendur fengu til málamynda 300 dollara fyrir hvern þræl. Þrælahaldarar fengu hvergi fullar bætur - það er markaðsverð - fyrir þrælana, sem þeim var gert með lögum að leysa úr haldi. Bretar afnámu þrælahald í nýlendum sínum 1833 og greiddu þrælahöldurum á Karíbahafseyjum skaðabætur úr ríkissjóði. Katar við Persaflóa bannaði þrælahald ekki fyrr en 1952, Sádi-Arabía og Jemen 1962, Sameinuðu furstadæmin 1963, Óman 1970 og Máritanía 1981, sumir segja 2007. Þrælahald er nú alls staðar bannað með lögum.




Fyrsta frjálsa blökkuríkiđ
En það var Haítí, sem reið á vaðið vestan hafs 1804, og afnam þrælahald. Frakkar viðurkenndu ekki sjálfstæði Haítís fyrr en 1825 og þá gegn því, að Haítí greiddi þeim miklar bætur vegna skaðans, sem franskir þrælahaldarar urðu fyrir, þegar þeir hrökkluðust frá landareignum sínum og þrælar þeirra voru leystir úr haldi. Ekki er ljóst, hvort bótakrafan var miðuð við markaðsverð á þrælum. Haítí gekk að þessum afarkostum, því að ella hefði franski flotinn tekið Haítí aftur með vopnavaldi. Landið mátti sæta ströngu viðskiptabanni. Tólf frönsk herskip með 150 fallbyssur umkringdu landið. Gömlu þrælahaldararnir heimtuðu innrás, en franska stjórnin kaus heldur að knýja Haítí til að greiða skaðabætur, sem námu andvirði allra útgjalda franska ríkisins eða fimmföldum útflutningstekjum Haítís á einu ári. Nokkrum árum áður, 1803, höfðu Frakkar selt Bandaríkjamönnum Lúísíana, 74 sinnum meira flæmi en Haítí að flatarmáli, á innan við helminginn af andvirði skaðabótanna.




Aldrei viđreisnar von

Skuldabyrðin var þung. Um aldamótin 1900 þurfti Haítí að verja 80 prósentum af útgjöldum ríkisins í afborganir og vexti af þessari gömlu skuld, sem eyjarskeggjum tókst að lokum að endurgreiða til fulls 1922, sumir segja 1947. Munurinn stafar af því, að hægt er að túlka skil á yngri lánum til að endurfjármagna gömlu kröfuna með ólíkum hætti.

Endurfjármögnun reyndist dýr. Mestu skipti þó, að Haítí átti sér aldrei viðreisnar von sem sjálfstætt ríki með svo þunga skuldabyrði á bakinu. Landið varð illræmt þjófabæli, þar sem gerspillt yfirstétt mergsaug og svívirti sauðsvartan almúgann eins og Graham Greene lýsir vel í bók sinni Trúðarnir í íslenzkri þýðingu Magnúsar Kjartanssonar ritstjóra og ráðherra. Landið er í þvílíkri niðurníðslu, að þar er varla lengur að finna stingandi strá, þótt Dóminíska lýðveldið hinum megin á sömu eyju sé iðjagrænt. Haítí hefur lengi verið fátækasta landið í vesturálfu. Þrjú börn af hverjum fjórum fæðast án aðstoðar læknis eða ljósmóður. Nýfætt barn getur vænzt þess að verða sextugt. Aðeins helmingur barna gengur í skóla og enn lægra hlutfall unglinga. Ólæsi er útbreitt. Kaupmáttur landsframleiðslu á mann á Haítí 2008 var einn fertugasti af kaupmætti á mann í Bandaríkjunum í næsta nágrenni. Landsskjálftinn um daginn breikkar bilið.

Ofríki Frakka keyrði Haítí í kaf. Skaðabótakrafa þeirra var óréttmæt. Reglan var sú, að ekki kæmu bætur fyrir afnám þrælahalds. Ríkisstjórn Haítís hefur hugleitt að höfða mál gegn Frökkum til að krefja þá um endurgreiðslu skaðabótanna. Endurgreiðslukrafan myndi nema um fjórfaldri landsframleiðslu Haítís. Haítí hefur fengið talsverðan afslátt af erlendum skuldum, þar eð gerspilltir einræðisherrar, einkum François Duvalier (Papa Doc), stofnuðu til skuldanna og stálu lánsfénu.
Haítí hefði getað vegnað vel. Milljónum Haítímanna, sem búa í öðrum löndum, vegnar jafnan vel. Haítí á marga heimsfræga listmálara. Málverk þeirra eru eftirsótt um allan heim og seljast nú háu verði. Einn þeirra heitir Abner Dubic. Ég keypti mynd af honum í Port au Prince fyrir 30 árum.



Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niđurstöđur skođanakönnunar Fréttablađsins og Stöđvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvćđing er mesta hćttan

Ögmundi Jónassyni tókst međ haldbćrum rökum í Kastljóssţćtti í vikunni ađ sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar ţjóđir eiga fleiri eđa aflmeiri bíla miđađ viđ fólksfjölda en Íslendingar. Ţađ á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gćti ţótt mikil eftirsjá ađ öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og ţar um landiđ...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigđ kćrasta vill tilbreytingu

Öll erum viđ međ okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfrćđing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstađa um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaafliđ Samstađa, undir forystu Lilju Mósesdóttur alţingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Ţađ er undur stutt síđan máliđ sýndist afgreitt. Ţetta međ markađina og ríkiđ. Markađir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orđiđ í forsjármálum barna á 20 árum. Áriđ 1992 varđ fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóđirnir platađir

Forsvarsmenn lífeyrissjóđa keppast nú um ađ túlka niđurstöđu nefndar sem gerđi úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hćstaréttar

Lög eiga ađ tryggja sanngjarna málsmeđferđ, réttlćti í samskiptum fólks og velferđ. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Ţriđjungur ţingheims, ţingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapađ af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóđina hefur leitt í ljós ađ á tveimur árum kringum bankahruniđ tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga ţarf ađ fćrum leiđum

Skuldavandi heimila á ađ stórum hluta rót sína í ţví furđulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstćđrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóđanna inniheldur harđa gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbrćđralag

Kópavogur hefur dregiđ ađ sér nokkra athygli vegna viđrćđna um myndun nýs meirihluta í bćj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viđbúin nýjum hćttum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í nćsta nágrenni viđ Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ćtlađ samţykki

Nokkrir ţingmenn vilja breyta lögum á ţann hátt ađ líffćri verđi tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverđ umrćđa fór fram um EES-samninginn á Alţingi fyrr í vikunni. Tilefniđ va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiđari leiđ til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grćdd í Íslendinga ár hvert. Vegna ţessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárađ uppgjör

Ţingmenn úr ađ minnsta kosti ţremur flokkum, auk óháđra, munu í vikunni leggja fram á Alţi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldiđ

Sagnfrćđingar tala um ađ stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstćđisstjórnmál af hólmi áriđ 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnađur krónu

Samkeppniseftirlitiđ birti í síđustu viku skýrslu sína um verđţróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir

Kvöldfréttir

Horfa í Beinni
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Ađ keyra land í kaf