Fréttablaðið, 27. jan. 2010 06:00

Traust býr til traust

mynd

Margrét Kristmannsdóttir skrifar:

Ein af eðlilegum afleiðingum hrunsins fyrir tæpum sextán mánuðum var að traustið þvarr. Nú skortir traust milli stjórnar og stjórnarandstöðu, skortir traust milli almennings og lykilstofnana þjóðfélagsins, skortir traust á atvinnulífið. Það skortir almennt traust milli manna.

Við sjáum það hins vegar í daglegu lífi þjóðarinnar hvað þetta vantraust reynist þjóðinni dýrt. Almennt vantraust á milli stjórnmálamanna sem eiga að leiða þjóðina í gegnum kreppuna hefur haldið þjóðinni í heljargreipum Icesave svo mánuðum skiptir. Það hefur aftur komið í veg fyrir að umhverfi atvinnulífsins komist í eðlilegt horf þannig að verðmætasköpun geti hafist með auknum hagvexti, fjölgun starfa og bættum lífskjörum. Skortur á trausti leiðir til þess að allar ákvarðanir taka lengri tíma, ef einhverjar ákvarðanir eru þá teknar yfirleitt. Vantraust er ávísun á ákvarðanafælni, sem aftur viðheldur status quo-ástandi. Það væri áhugavert ef hagfræðingar myndu reyna að leggja mat á það hvað þetta ástand hefur kostað þjóðina frá því í fyrrasumar í töpuðum tekjum - minni hagvexti, auknu atvinnuleysi og fleira. Trúlega myndi þjóðinni bregða við þeirri upphæð sem út úr því reikningsdæmi kæmi.

Mjög eðlileg viðbrögð við vantrausti eru að leggja aukna áherslu á allt eftirlit og herða reglur um flesta hluti. Þetta sjáum við á flestum sviðum þjóðlífsins í dag. Allt á að rannsaka, ferli skal bæta og valdsvið eftirlitsstofnanna er aukið. Áfram ríkir þó sama vantraustið. Því þó vissulega þurfi að tryggja með öllum ráðum að sagan endurtaki sig ekki þá býr aukið eftirlit ekki til aukið traust. Traust kemur aldrei utan frá því traust býr til traust - og vantraust býr til vantraust.

Traust hefst hjá „mér og þér" - að við fáum það á tilfinninguna að fólki sé treystandi. Hins vegar er fátt eins mikilvægt fyrir traust en að finna fyrir trausti. Þetta hafa nokkrir bændur upplifað undanfarin sumur, sem hafa komið fyrir grænmeti á völdum ferðamannastöðum þar sem ferðamönnunum sjálfum er treyst fyrir því að skilja eftir pening fyrir því grænmeti sem þeir taka. Og þetta einfalda kerfi virkar því það er rík mannleg hegðun að vilja launa traust með trausti.

Stóra spurningin er hins vegar hvort íslenska þjóðin sé komin nógu langt í hrunferlinu til að komast yfir vantraustið og byrja að treysta á ný? Þeirri spurningu verður hver og einn að svara fyrir sig.

Það er ömurlegt hlutskipti að treysta fáum - og skelfilegt hlutskipti að treysta engum nema sjálfum sér. Það er alltaf einhver áhætta samfara trausti, en það mun reynast þjóðinni ákaflega dýrt ef sú áhætta verður ekki tekin fljótlega.





Fleiri fréttir

Fastir pennar 13. mar. 2010 11:13

Grikklandsfárið

Grikkland er á hausnum. Það eru ekki nýjar fréttir. Grikkland hefur oft áður verið á hausn...  

Meira

Fastir pennar 13. mar. 2010 06:00

Hver stingur hausnum út?

Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um icesave velta menn því helst fyrir sér hvenær Ögmundur Jó...  

Meira

Fastir pennar 12. mar. 2010 06:00

Góðum verkum haldið á lofti

Oft er því haldið fram að í hraða nútímasamfélagsins gefist lítill tími til að huga að náu...  

Meira

Fastir pennar 12. mar. 2010 06:00

Misjöfnun

Þegar nýr erfingi dönsku krúnunnar var að í þann mund að koma í heiminn, fyrir nokkrum áru...  

Meira

Fastir pennar 11. mar. 2010 06:00

Í minningu Valtýs

Tveir stjórnmálamenn áttu mestan þátt í að ryðja Íslandi braut inn í nútímann, og fór þó h...  

Meira

Fastir pennar 11. mar. 2010 06:00

Íslenska krónan: Er sveigjanleikinn of dýru verði keyptur?

Í þeirri miklu fjármálakreppu sem riðið hefur yfir heimsbyggðina síðustu misseri upplifði ...  

Meira

Fastir pennar 11. mar. 2010 06:00

Óvissuferð

Átök verða styrkist krónan ekki um fjórðung til fimmtung. Þetta voru skilaboð Alþýðusamban...  

Meira

Fastir pennar 10. mar. 2010 06:00

Dæmt fyrir mansal í fyrsta sinn

Daginn sem konur tileinkuðu 8. mars baráttu sinni fyrir jafnrétti kynjanna í hundraðasta s...  

Meira

Fastir pennar 09. mar. 2010 06:00

Kosið um kvóta?

Ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu í gær, um að næsta þjóðarat...  

Meira

Fastir pennar 09. mar. 2010 06:00

Þarfur og óþarfur iðnaður

Það er skiljanlegt að á krepputímum sé uppi rík krafa um sparnað og hagræðingu í rekstri r...  

Meira

Fastir pennar 08. mar. 2010 06:00

Þrír kostir

Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave-lögin á laugardag koma ekki á óvart. Miðað við...  

Meira

Fastir pennar 06. mar. 2010 06:00

Tímamót í jafnréttismálum

Hlutfall kynja í stjórnum hlutafélaga og einkahlutafélaga var bundið í lög nú í vikunni. S...  

Meira

Fastir pennar 06. mar. 2010 06:00

Fleygurinn

Stærsta pólitíska málið sem komið hefur til kasta Alþingis í ár var rætt í vikunni. Umræða...  

Meira

Fastir pennar 05. mar. 2010 06:15

Þjóðaratkvæði um óskýra kosti

Enginn vafi leikur lengur á að Íslendingar ganga á morgun til þjóðaratkvæðagreiðslu um Ice...  

Meira

Fastir pennar 04. mar. 2010 06:00

Alvöru Ríkisútvarp

Víðar en á Íslandi er deilt um hvernig eigi að verja takmörkuðum peningum, sem skattgreiðe...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir

Vinsælast

„Fréttir“

„Fréttir“

Rétt fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna voru settar á flot alls konar vitleysis-sögur...


Nýtt á Vísi

Fréttaskýringar Nærmynd

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni