Veðmál forsetans

Fréttablaðið Fastir pennar 06. janúar 2010 06:15
Jón Kaldal
Jón Kaldal
Jón Kaldal skrifar:

Forseti Íslands varð í gær við ósk þeirra sem vildu að hann vísaði til þjóðaratkvæðagreiðslu breytingum á lögum um ábyrgð ríkissjóðs á skuldbindingum vegna Icesave-reikninga Landsbankans.

Forsetinn hefur mátt þola þunga gagnrýni vegna þessarar ákvörðunar. Að hluta réttmæta en um leið líka ósanngjarna.

Ábyrgðin á því að málið er komið í þennan farveg er alls ekki aðeins forsetans. Með því að vísa málinu til þjóðarinnar hefur hann brugðist við vilja tugþúsunda Íslendinga, sem skrifuðu nöfn sín á lista Indefence, og líka þeirra þrjátíu þingmanna sem greiddu atkvæði með tillögu Péturs Blöndals um að setja málið í þjóðaratkvæðagreiðslu, en sú tillaga var felld á Alþingi fyrir sléttum sjö dögum.

Gjörvallur þessi hópur ber ábyrgð með forsetanum á þeirri stöðu sem komin er upp í þeirri milliríkjadeilu sem Icesave-samningarnir áttu að leysa.

Sjálfur benti forsetinn á í viðtali fyrir tveimur árum að hann geti ekki einn ákveðið að breyta embættinu. „Það gerist í samskiptum og samleik við þjóðina; það er því vilji annarra en forsetans sem hefur úrslitaáhrif," sagði forsetinn við Mannlíf í árslok 2007.

Með ákvörðun um að beita 26. grein stjórnarskrárinnar í annað skipti á rúmum fimm árum, sýnir forsetinn að hann stendur við þessa sannfæringu sína.

Í yfirlýsingu sinni í gær vísaði forseti til þess að á lista Indefence sé mun hærra hlutfall kjósenda en rætt hefur verið um sem viðmið um þann fjölda sem þurfi til að knýja fram þjóðaratkvæði.

Þetta eru þung rök. Þegar mál koma upp sem kljúfa þjóðina er æskilegt að hún hafi sem mest um það að segja hvernig leiða eigi þau til lykta.
Í þessu tilfelli er málið hins vegar ekki svo einfalt. Þetta er ekki íslensk innansveitarkróníka ólíkt til dæmis fjölmiðlalögunum á sínum tíma. Ef þjóðin hefði fengið að kjósa um þau sumarið 2004 og þeim verið hafnað, hefðu fjölmiðlalögin einfaldlega verið úr sögunni. Sama má segja ef Kárahnjúkavirkjun hefði fallið í þjóðaratkvæði, svo annað djúpstætt deilumál sé nefnt til sögunnar. Þá væri ekkert Hálslón á öræfunum austan Vatnajökuls og Jökla rynni áfram óheft um botn Dimmugljúfra.
Icesave mun hins vegar ekki hverfa ef breytingalögin verða felld. Þessir ógæfureikningar Landsbankans eru ekki aðeins vandamál okkar Íslendinga.

Er þar komið að hinni réttmætu gagnrýni á embættisfærslu forseta. Þjóðaratkvæðagreiðsla lokar ekki þessu máli á nokkurn hátt. Þvert á móti bendir flest til þess að ákvörðun forsetans muni hafa í för með sér upplausn og óvissu.

En fyrir forsetann persónulega er þetta hins vegar veðmál sem hann getur ekki tapað. Ef tekst að knýja fram betri Icesave-samninga en Alþingi hefur þegar samþykkt, mun það hressa verulega upp á laskaða ímynd hans. Ef ekki er það þjóðin sem þarf að takast á við efnahagslegar afleiðingar, sem enn óljós hluti hennar og tæpur helmingur alþingismanna hefur kallað yfir sig.









Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / / Veðmál forsetans