Skessuhorn, 22. jan. 2009 11:03

Miklar sviptingar í fylgi flokka samkvæmt nýrri könnun

mynd

Stuðningur við ríkisstjórnina heldur áfram að dala samkvæmt nýrri könnun Markaðs- og miðlarannsókna ehf. og mælist nú 24,2% sem er 10% minna fylgi en í byrjun desember á síðasta ári. Þá nýtur Framsóknarflokkinn nú stuðnings 17% kjósenda sem er veruleg breyting frá síðustu könnun þegar rétt um 5% sögðust kjósa flokkinn, væri gengið til kosninga í nú. Framsóknarflokkurinn kaus sér nýja forystu á landsfundi helgina áður en könnunin var gerð og virðist afstaða kjósenda hafa breyst mikið í kjölfar breytinganna. Stuðningur við Samfylkinguna minnkar mikið í þessari könnun og fer úr 27,1% í 16,7%. Fylgi Sjálfstæðisflokksins heldur áfram að dala og mælist nú 24,3%. Vinstri grænir mælist enn stærsti flokkurinn, en 28,5% aðspurðra sögðust kjósa VG væri gengið til kosninga í dag. Fylgi Frjálslyndra mælist nærri óbreytt í 3% og fylgi Íslandshreyfingar 2,2%. Tæp 8% sögðust vilja kjósa aðra stjórnmálaflokka en buðu fram síðast.

 

 

Umtalsverður munur mælist á fylgi við Framsóknarflokkinn eftir búsetu. Þannig nýtur flokkurinn stuðnings 13% höfuðborgarbúa en fylgið mælist öllu meira á landsbyggðinni, eða 24%. Nokkur munur er jafnframt á fylgi annarra flokka eftir búsetu svarenda. Minnstur munur á fylgi eftir búsetu mælist hjá Vinstri grænum, en flokkurinn mælist með 28-29% fylgi hvort heldur sem er á höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðinni. Samfylkingin nýtur 17,9% fylgis á höfuðborgarsvæðinu, en 14,6% fylgi á landsbyggðinni. 25,7% kjósenda á höfuðborgarsvæðinu styðja Sjálfstæðisflokkinn en 22% á landsbyggðinni.

Könnunin var síma- og netkönnun, úrtakið var 18-67 ára handahófsúrtak úr þjóðskrá, fjöldi svarenda var 1749 og könnunin var framkvæmd 20.-21. janúar.

 

 



Sjá greinina á www.skessuhorn.is


Fleiri fréttir

Viðskipti erlent 18. mar. 2010 10:36

Teva bauð töluvert meir en Actavis í Ratiopharm

Stærsta samheitalyfjafyrirtæki heimsins, Teva frá Ísrael, bauð talsvert hærra verð en Acta...  

Meira

Viðskipti erlent 18. mar. 2010 10:19

Kaupþing reynir að selja verðmæta eign í London

Skilanefnd Kaupþings er nú að reyna að selja verðmæta eign í miðbæ London og hefur Berkele...  

Meira

Viðskipti erlent 18. mar. 2010 10:04

Actavis fær ekki að kaupa Ratiopharm

Reuters hefur það eftir heimildarmönnum að Actavis komi ekki lengur til greina sem kaupand...  

Meira

Viðskipti erlent 17. mar. 2010 14:03

Fjárfestagoðsögn: Evran deyr og tvær bólur bresta

Fjárfestagoðsögnin Jim Rogers er ekki að skafa af hlutunum í sýn sinni á framtíðina. Roger...  

Meira

Viðskipti erlent 17. mar. 2010 08:19

Actavis leggur fram lokatilboð í Ratiopharm

Actavis og Teva hafa verið beðin um að leggja fram lokatilboð sín í þýska samheitafyrirtæk...  

Meira

Viðskipti erlent 17. mar. 2010 06:44

Hrakfallasagan heldur áfram - Honda innkallar 410 þúsund bíla

Hrakfallasaga japanskra bílaframleiðenda heldur áfram því Honda hefur innkallað meira en 4...  

Meira

Viðskipti erlent 16. mar. 2010 10:42

Dánarbú Michael Jackson gerir risasamning við Sony

Dánarbú poppkóngsins Michael Jackson hefur fallist á stærsta útgáfusamning sögunnar við So...  

Meira

Viðskipti erlent 16. mar. 2010 08:34

Facebook kostar danska vinnuveitendur 250 milljarða

Danir nota hina vinsælu vefsíðu Facebook það mikið í vinnu sinni að það kostar danska vinn...  

Meira

Viðskipti erlent 15. mar. 2010 22:55

Nýr tískurisi: Calvin Klein kaupir Tommy Hilfiger

Tískurisinn Calvin Klein er orðinn að stærsta fatafyrirtæki veraldar eftir að eigandi þess...  

Meira

Viðskipti erlent 15. mar. 2010 13:16

Lögmenn hagnast um 80 milljarða á Lehman Brothers

Tiltektin eftir fall Lehman Brothers í Bandaríkjunum hefur gefið lögmönnum 642 milljónir d...  

Meira

Viðskipti erlent 15. mar. 2010 10:21

Stöðutakan gegn pundinu orðin margföld á við Soros

Stöðutaka hjá fjárfestum gegn pundinu er nú orðin áttföld á við stöðutökuna sem ofurfjárfe...  

Meira

Viðskipti erlent 15. mar. 2010 09:45

Endurskipulagningu lokið hjá French Connection

Endurskipulagningu tískuverslunarkeðjunnar French Connection er ný lokið en keðjan hefur s...  

Meira

Viðskipti erlent 15. mar. 2010 08:22

Century Aluminium fær meðbyr til að endurræsa álver

Frumvarp sem samþykkt var á þingi Vestur Virginíu í Bandaríkjunum gefur stjórn Century Alu...  

Meira

Viðskipti erlent 15. mar. 2010 07:00

Bensínlítrinn kominn yfir 11 krónur í Danmörku

Bensínlítrinn í Danmörku kostar nú ellefu danskar krónur. Það jafngildir 253 íslenskum kró...  

Meira

Viðskipti erlent 15. mar. 2010 03:13

Fylgja í fótspor Evrópubúa

Bandaríkin, AP Almennt er reiknað með að stýrivöxtum í Bandaríkjunum verði haldið óbreyttu...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir


Nýtt á Vísi

Ert þú ánægð(ur) með útspil ríkisstjórnarinnar til lausnar skuldavanda heimilanna?


Kjörkassinn

Nærmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni

-- catnafn="Skessuhorn"--