Ár rekstrarmannanna runnið upp

Fréttablaðið Viðskipti innlent 30. desember 2009 06:00
Þeir Hilmar V. Pétursson og Jón Sigurðsson segja tafir á endurreisn efnahagslífsins sjálfskapaðan vanda. Stjórnmálamenn verði að læra að snúa bökum saman. Markaðurinn/Anton
Þeir Hilmar V. Pétursson og Jón Sigurðsson segja tafir á endurreisn efnahagslífsins sjálfskapaðan vanda. Stjórnmálamenn verði að læra að snúa bökum saman. Markaðurinn/Anton
Þetta hefur verið ár íslenskra framleiðslu­fyrirtækja eftir mörg erfið undanfarin ár. Svo tók einn dómnefndarmanna til orða í rökstuðningi sínum fyrir vali á manni ársins í íslensku viðskiptalífi.

Þegar talið var upp úr kössunum að þessu sinni reyndust menn viðskiptalífsins tveir: þeir Hilmar V. Pétursson, forstjóri netfyrirtækisins CCP, sem á og rekur fjölþátttökuleikinn EVE Online, og Jón Sigurðsson, forstjóri stoðtækjafyrirtækisins Össurar, sem hlýtur titilinn í annað sinn á jafn mörgum árum.

Árið var báðum fyrirtækjum gott. CCP hagnaðist um 6,2 milljónir dala á fyrstu sex mánuðum ársins og rauf við það milljarðakróna múr sprotafyrirtækja. Fyrirtækið er með nokkra fjölþátttökuleiki í smíðum, þar á meðal byltingarkennda skotleikinn Dust 514. Þá sló CCP enn eitt metið þegar áskrifendur urðu rúmlega 320 þúsund fyrr í þessum mánuði og urðu þá þremur þúsundum fleiri en íslenska þjóðin. Þegar hefur verið fjallað um Össur og verður það ekki gert hér.


vilja aðild að esb
Þeir Jón og Hilmar, sem hlutu jafn mörg stig, voru ekki að hittast í fyrsta sinn þegar þeir settust niður með blaðamanni Markaðarins. „Við höfum oft spjallað saman um rekstur fyrirtækja hér og framtíðarhorfur," segir Jón og rifjar upp þegar þeir, ásamt forráðamönnum Marels og samheitalyfjafyrirtækisins Actavis, funduðu með ráðherrum, þingmönnum og ýmsum öðrum í stjórnsýslunni á fyrstu fjórum mánuðum ársins um leiðir út úr kreppunni með langtímasjónarmið að leiðarljósi.

„Við vildum koma sjónarmiðum okkar áleiðis. Það er þetta klassíska, aðild að Evrópusambandinu (ESB) og upptaka evru," bætir Hilmar við. Önnur mál á dagskrá voru eðli bankastarfsemi hér í framtíðinni, afnám gjaldeyrishafta og samskipti við útlönd.

Þeir segja ráðamenn hafa tekið vel í aðild Íslands að ESB á fyrri hluta árs. Eftir því sem leið á árið hafi viðhorfið snúist við.

„Við reyndum að koma þessari umræðu upp úr þeim hjólförum sem hún var í. Undirtektirnar voru ótrúlega jákvæðar og í engu hlutfalli við það sem seinna varð," segir Jón. „Nú er engu líkara en við séum að fleka fjallkonuna."

Þeir eru sammála um að rekstrarhorfur alþjóðlegra fyrirtækja sem staðsett eru hér á landi séu mjög slæmar ef ekki verði mörkuð stefna til framtíðar.

Hilmar segir í raun aldrei hafa verið mögulegt að ræða um rekstrarhorfur fyrirtækja í því sveiflukennda ástandi sem hér hafi verið um áratuga skeið. „Ég hef oft líkt uppbyggingu í atvinnustarfsemi hér við það að búa í árfarvegi. Hann er frjósamur og góður. Þar er fullt af sprotum og mikil gróska. En svo fer að rigna. Þá kemur flóð og það ryður öllum sprotunum í burtu. Þegar grynnkar aftur í ánni er aftur talað um hvað farvegurinn er góður. Svona gerist þetta á um tíu ára fresti. Það er sama hvort krónan er fasttengd, undir höftum eða handstýrð. Það hafa verið reynd ýmis kerfi með krónur en ekkert virðist virka," segir hann og leggur áherslu á nauðsyn þess að finna varanlega lausn á gjaldmiðlamálum Íslendinga.

Hann bendir sömuleiðis á að myntsvæði heimsins hafi stækkað síðustu ár og orðið einfaldari. Það haldist í hendur við alþjóðavæðinguna og aukinn hraða í samskiptum og viðskiptum.


Péturskrónan á bíldudal
Hilmar bendir á að krónan hafi virkað vel í einangruðu samfélagi þar sem viðskipti við útlönd voru lítil sem engin.

Þeir Jón taka Péturskrónur sem dæmi. Sú króna var mynt sem athafna- og kaupmaðurinn Pétur Thorsteinsson á Bíldudal notaði í viðskiptum sínum við heimamenn í kringum síðustu aldamót. Þær hafi gegnt hlutverki sínu í samfélaginu sem þá var mjög einangrað. „Þetta hrundi auðvitað allt hjá honum þegar fólk gat farið yfir á Patreksfjörð," segir Jón og bendir á að sama máli gegni um íslensku krónuna. Hún sé óvirkur gjaldmiðill í alþjóðlegum viðskiptum.

„Krónan hefur nýst okkur jafn vel og svarthvíta sjónvarpið á sínum tíma. Það var gott en nú er bara komið litasjónvarp. Við getum haldið áfram og talað um hvað árfarvegurinn er frjór og góður og vonað að það fari ekki að rigna. Eða við gerum það sama og aðrar þjóðir í kringum okkur hafa komist að og taka þátt í alþjóðlegu samstarfi."


einkennileg andstaða
Þeir Jón og Hilmar furða sig á þeirri andstöðu sem orðin er gegn aðild Íslands að ESB. Framtíðarleið sem þeir telja farsæla til frambúðar. „Það er partur af samfélaginu sem virðist hafa stóra hagsmuni af því að beita sér gegn ESB og beitir öllum klækjum til að mála það sem vond útlendingasamtök sem vilji koma höndum yfir allt sem hér er. Það stenst enga skoðun," segir Hilmar og bendir á að þótt andstaðan kunni að þjóna sérhagsmunum þá gangi viðhorfið ekki upp. Íslensk fyrirtæki verði að tryggja sér fjármögnun sem að mestu leyti sé erlend. Það komi sér afar illa þegar gengi krónunnar sveiflist til og frá sem lauf í vindi.

Einu rökin fyrir krónunni telur hann vera þau hversu öflugt stjórntæki hún hafi reynst í gegnum tíðina. „Hún hefur verið tæki fyrir stjórnvöld til að stýra kaupmætti almennings án þess að hann upplifi það. En þetta er ekki svona lengur," segir hann og bendir á að almenningur sé að gera sér grein fyrir þessu. Skýrasta dæmið sé verð á appelsínusafa sem í erlendri mynt hefur lítið sem ekkert breyst milli ára. Öðru máli gegni um verð á appelsínusafa hér, sem sveiflist út um allar trissur.


Hættir að hugsa í krónum
Eftirtektarvert er að menn viðskiptalífsins að mati dómnefndar Markaðarins hugsa ekki í krónum. „Við hættum að nota krónur árið 2002 og hugsum alfarið í erlendri mynt," bendir Jón á en fyrirtækið gerir upp í Bandaríkjadölum. Sömu sögu er að segja af CCP, sem lagði krónuna niður sem starfsrækslumynt árið 2006 og hefur greitt starfsfólki laun í evrum frá því snemma á þessu ári. Starfsfólk Össurar fær laun sín enn greidd í krónum.

Þeir segja vandasamt að skipta út gjaldmiðli einhliða hjá fyrirtækjum hér enda sé krónan raunveruleiki starfsfólksins sem starfi hjá fyrirtækjunum hér.
„Við getum ekki ákveðið þetta fyrir starfsfólk okkar. Þótt færa megi rök fyrir því að skiptin séu skammtímaávinningur fyrir starfsfólkið þá er langtímaáhætta fólgin í því. Í raun vorum við að selja starfsfólkinu gengisáhættu. En við vildum bjóða upp á þetta og héldum námskeið fyrir fólkið. Þótt evran liti vel út þá varð starfsfólkið að breyta lífi sínu í samræmi við það," segir Hilmar.


Heimatilbúinn vandi
Menn viðskiptalífsins í ár segja einkennilegt ástand ríkja hér á landi. Mjög hafi verið þrengt að fyrirtækjum eftir hrun bankageirans fyrir rúmu ári og virðist sem fólk líti á það helsi sem á það hafi verið lagt sem sjálfsagðan hlut. „Nokkrum vikum eftir að gjaldeyrishöft voru sett á í fyrra snerist öll umræðan um það hvernig hægt væri að herða þau. Vandamálið var þá að höftin láku en ekki að þau höfðu verið sett á. Það er undarlegt hvað við getum aðlagast hratt þessu vonlausa kerfi," segir Jón og bætir við að hefði Össur ekki fengið undanþágu frá gjaldeyrishöftunum og skilaskyldu á gjaldeyri hefði fyrirtækið flutt höfuðstöðvarnar til útlanda. „Erlendir fjárfestar sættu sig ekki við að hér sé skilaskylda. Við hefðum flutt í umhverfi þar sem fjárfestar þekkja reglurnar, svo sem til Bandaríkjanna eða landa ESB."

Þá gagnrýna þeir harðlega þær tafir sem orðið hafa á endurreisn efnahagslífsins. Þeir skrifa það á reynsluleysi og því sem næst barnaskap stjórnmálamanna. „Þessi litla þjóð sem stendur frammi fyrir þessum mikla vanda má ekki við svona löguðu. Umræðan má ekki fara í tittlingaskít og hártoganir," segir Jón. Hilmar tekur við keflinu. „Kerfið hefur verið lamað í ár. Það hefði verið auðvelt að díla við hrunið. Grunnhagkerfi landsins beið ekki tjón og enginn dó. En síðan komu meðulin; gjaldeyrishöft og málþóf um Icesave. Þetta er okkar vandamál og það er algjörlega sjálfskapað."

Fleiri fréttir - Viðskipti innlent

Viðskipti innlent 08. feb. 2012 13:52

Gagnaverið Verne Global opnar í dag

Gagnaver Verne Global opnar í dag að Ásbrú í Reykjanesbæ. Það eru nú liðin tæp fjögur ár s...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 13:21

Búast við stýrivaxtahækkun næst

Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að hækka s...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 11:31

Einn stjórnenda IBM heldur fyrirlestur í HR

Einn af leiðtogum IBM, Sandy Carter, heldur fyrirlestur í Háskóla Reykjavíkur í hádeginu í...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 11:00

Fréttaviðtal: Greina orsakir til að læra af þeim

Danski hagfræðingurinn Jesper Rangvid var staddur hér á landi nýverið þar sem hann var ges...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 11:00

Hefja samstarf um greiðslufallstryggingar

Arion banki hóf nýlega samstarf við tryggingafélagið Euler Hermes um að bjóða viðskiptamön...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 11:00

Gæti falið í sér milljarða ávinning fyrir sjóðina

Lífeyrissjóðirnir munu fara fram á að dómskvaddir matsmenn verði fengnir til að leggja mat...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 11:00

Óformlegar viðræður um fjármögnun og verð

Formlegar söluviðræður við einn af bjóðendum í 77% hlut þrotabúa Landsbankans og Glitnis í...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 11:00

Gamla Sjóvá skilar litlu til kröfuhafa

Kröfuhafar SJ Eignarhaldsfélag, sem áður hét Sjóvá, hafa samþykkt nauðasamning félagsins. ...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 11:00

Mikil gróska í bjórframleiðslu á Íslandi

Bjórmenning á Íslandi hefur tekið stakkaskiptum á síðustu árum. Fjöldi og fjölbreytileiki ...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 11:00

Telur að hagur heimilanna muni vænkast

Hagkerfið á Íslandi er að taka við sér. Hagvöxtur er að aukast, atvinnuleysið fer hægt min...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 10:55

Veltan á fasteignamarkaði jókst um 74% milli ára

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 10:51

Meiri óvissa um verðbólgu

Meiri óvissa er um verðbólgu núna en áður var, segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Han...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 10:47

Seðlabankinn spáir 2,5% hagvexti í ár

Á þessu ári er spáð 2,5% hagvexti, einkum fyrir tilstuðlan aukinnar fjárfestingar. Framlag...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 10:19

Lán heimila niður um 196 milljarða árið 2011 - 33 milljarðar í frosti

Lán heimila höfðu í lok árs 2011 verið færð niður um rúma 196 milljarða króna frá stofnun ...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 09:23

Creditinfo veitir fyrirtækjum viðurkenningu

Creditinfo mun veita fimm íslenskum fyrirtækjum viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 09:02

Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 08:52

Mikil fjölgun íslenskra ferðamanna í Danmörku

Ferðum Íslendinga til Danmerkur fjölgaði um nærri fimmtung á síðasta ári ef mið er tekið a...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 06:40

Rífandi gangur hjá Icelandair í ársbyrjun

Fjöldi farþega hjá Icelandair jókst um 13% í janúar miðað við sama mánuð í fyrra.. Í tilky...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 06:39

Gullforði Seðlabankans jókst um tæpa 1,4 milljarða

Verðmæti gullforða Seðlabankans jókst um tæplega 1,4 milljarða króna í janúar. Þetta kemur...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 06:36

Bensínverðið rýfur 250 króna múrinn

Skeljungur hækkaði bensínverð um fimm krónur á lítrann í gærkvöldi og kostar hann nú tæple...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 18:40

Stjórnendur Iceland Foods ekki spenntir fyrir eignastýringarsjóðum

Lykilstjórnendur Iceland Foods hafa ekki áhuga á að vinna hjá fyrirtækinu verði það í eigu...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 22:39

Hugsmiðjan með tvær bestu vefsíðurnar

Tvær bestu vefsíður síðasta árs að mati fagfólks í greininni komu úr smiðju sama aðila, ve...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 14:47

Búast við að staða heimilanna batni

ASÍ gerir ráð fyrir að hagvöxtur á nýliðnu ári hafi verið 3,1% eða nokkuð meiri en búist v...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 14:05

Enn hækkar gengi bréfa í Icelandair

Gengi bréfa í Icelandair Group í kauphöllinni heldur áfram að hækka en gengið hefur hækka...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 13:45

Útsvarið í toppi á þrettán stöðum af fimmtán

Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið af fimmtán stærstu sveitarfélögum landsins sem hækk...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 13:13

Leigumarkaðurinn tók stökk í janúar

Um 69% fleiri leigusamningum um íbúðarhúsnæði var þinglýst í janúar síðastliðnum miðað við...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 12:32

Nýr markaðsupplýsingavefur á Vísi

Ítarlegar markaðsupplýsingar eru nú aðgengilegar á viðskiptavef Vísis í samstarfi við Keld...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 11:41

Tölvan Watson gerir næstum allt nema að skera upp sjúklinga

Snjallasta vél heims tekur rými á við 10 ísskápa og hefur vinnsluminni fyrir 200 milljónir...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 09:49

Tap sjóðanna gæti orðið mun meira

Tap íslenskra lífeyrissjóða vegna gjaldmiðlavarnarsamninga gæti orðið rúmlega 70 milljarða...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 07:00

Í höndum stjórnar OR að veita umboð

Aðkoma lífeyrissjóðanna að fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar kemur til af því að Orkuveitan ...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 06:45

Eignir lífeyrissjóðanna komnar í tæplega 2.100 milljarða

Hrein eign lífeyrissjóða nam tæpum 2.100 milljörðum kr. í lok desember s.l. og hafði hæk...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 06:44

Sala á áfengi hefur dregist töluvert saman á tveimur árum

Sala á áfengi er 2,3% minni í janúar í ár miðað við sama tímabil í fyrra. Í lítrum talið e...  

Meira
Viðskipti innlent 06. feb. 2012 19:07

Lífeyrissjóðirnir töpuðu 74 milljörðum vegna fyrirtækja Björgólfsfeðga

Íslenskir lífeyrissjóðir töpuðu alls 74 milljörðum króna vegna félaga í eigu Björgólfsfeðg...  

Meira
Viðskipti innlent 06. feb. 2012 14:55

Tap lífeyrissjóðanna nærri meðaltali

Tap íslensku lífeyrissjóðanna er nálægt meðaltali þess sem varð hjá lífeyrissjóðum OECD-rí...  

Meira
Viðskipti innlent 06. feb. 2012 13:33

Iceland Express í samstarf við Hinsegin daga

Iceland Express og Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride undirrituðu í dag samstarf...  

Meira
Viðskipti innlent 06. feb. 2012 14:46

Búast við 20 milljarða tekjum hjá Icelandair Group

Greiningardeild Arion banka býst við því að tekjur Icelandair Group á fjórða ársfjórðungi ...  

Meira
Viðskipti innlent 06. feb. 2012 12:49

Ingvar Helgason horfinn

Erna Gísladóttir og Jón Þór Gunnarsson, sem um síðustu áramót tóku við rekstri bílaumboðsi...  

Meira
Viðskipti innlent 06. feb. 2012 12:40

Högnuðust um 472 milljarða á móti 480 milljarða tapi

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að þrátt fyrir um 480 milljarða tap lífeyrissjóðann...  

Meira
Viðskipti innlent 06. feb. 2012 11:16

Áfram dauft yfir fasteignamarkaðinum í borginni

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 70. Þetta eru töluv...  

Meira
Viðskipti innlent 06. feb. 2012 10:01

Um 94% landsmanna telja fyrirtæki skapa góð lífskjör

Ný skoðanakönnun sýnir að 94% landsmanna telja íslensk fyrirtæki skipta öllu eða miklu mál...  

Meira
Viðskipti innlent 06. feb. 2012 09:23

Icelandair selur SmartLynx í Lettlandi

Fyrir síðustu áramót gekk Icelandair frá samningi við stjórnendur SmartLynx um kaup á öllu...  

Meira
Viðskipti innlent 06. feb. 2012 07:41

Tvöfalda útflutning á skyri til Bandaríkjanna

Mjólkursamsalan stefnir að því að tvöfalda útflutning á skyri til Bandaríkjanna....  

Meira
Viðskipti innlent 06. feb. 2012 07:05

Tekjurnar af Contraband orðnar 8,7 milljarðar

Ekkert lát er á velgengni Contraband nýjustu myndar Baltasar Kormáks í Bandaríkjunum....  

Meira
Viðskipti innlent 06. feb. 2012 03:13

Lífeyrissjóðir fjármagni virkjun

ViðskiptiNáist samningar milli Orkuveitu Reykjavíkur (OR), lífeyr...  

Meira
Viðskipti innlent 05. feb. 2012 18:37

Lífeyrissjóðirnir lánuðu Glitni 11 milljarða

Þrettán lífeyrissjóðir veittu Glitni nærri ellefu milljarða króna lán í mars 2008 þegar vi...  

Meira
Viðskipti innlent 04. feb. 2012 18:44

LV hafnar vangaveltum um lögbrot

Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hafnar afdráttarlaust þeim vangaveltum sem fram koma í...  

Meira
Viðskipti innlent 04. feb. 2012 12:15

Gefið í skyn að Lífeyrissjóður verslunarmanna hafi brotið lög

Rannsóknarnefnd lífeyrissjóðanna gefur í skyn að Lífeyrissjóður verslunarmanna hafi brotið...  

Meira
Viðskipti innlent 04. feb. 2012 03:13

Kynning rannsóknarnefndar aðgengileg á Vísi

Inn á viðskiptavef Vísis er nú hægt að sjá kynningu rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyri...  

Meira
Viðskipti innlent 03. feb. 2012 18:43

Töpuðu 1,5 milljónum á hvert mannsbarn

Lífeyrissjóðirnir töpuðu 480 milljörðum króna á bankahruninu. Rúmlega helmingur er vegna f...  

Meira
Viðskipti innlent 03. feb. 2012 16:52

Icelandair skoðar skráningu í Noregi

Icelandair ætlar að kanna skráningu félagsins í aðra kauphöll til viðbótar við núverandi s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Aukablad
  • Allt

Skoðun

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Róbert R Spanó
Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn sem hópur í samf...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir

Skoðun

Sameiginleg skylda

Sameiginleg skylda

Ólafur Þ. Stephensen
Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki samkvæmt lögum...
Þú ert hér: Forsíða / Viðskipti / Viðskipti innlent / / Ár rekstrarmannanna runnið upp