Fleiri mótmæla Icesave en fjölmiðlafrumvarpinu 14. desember 2009 17:09 Icesave.
Alls hafa 33890 manns skrifað undir áskorun Indefence til forseta Íslands um synjun staðfestingar á Icesave lögum samkvæmt tilkynningu frá samtökunum. Þetta eru fleiri einstaklingar en skrifuðu undir áskorun til forsetans um að synja lögum um fjölmiðla staðfestingar árið 2006. Hópurinn er ánægður með árangurinn en undirskriftasöfnunin hefur gengið vonum framar að þeirra mati þrátt fyrir meintar árásir óprúttinna aðila. Á einum degi, þann 11. desember, voru yfir 100 ógildar undirskriftir skráðar á vefinn á stuttum tíma. Í yfirlýsingu frá Indefence hópnum segir: „Þessar ógildu undirskriftir komu frá mörgum IP tölum, en þ.á.m. voru IP tölur Hagstofunnar, Stjórnarráðsins, RÚV og Fréttablaðsins. InDefence hópurinn telur ekki að þessir aðilar standi á bak við árásina á undirskriftasöfnunina, enda var lítill hluti ógildra undirskrifta frá þeim. Hins vegar undraðist hópurinn þá tilviljun að viðkomandi undirskriftir hafi borist á þeim tíma sem árásin stóð yfir. Við viljum taka fram að í tilviki Fréttablaðsins var aðeins um eina ógilda undirskrift að ræða og það hefur komið skýring á henni frá blaðamanni sem var með rangri undirskrift að prufa kerfið. InDefence hópurinn tekur þá skýringu fullkomlega gilda." Þá kemur einnig fram að áður en listinn verður afhentur verði hann sannprófaður og samkeyrður við þjóðskrá. Allar rangar skráningar verða þá fjarlægðar. Einnig verður sérstaklega greint frá því hve stór hluti undirskriftanna er frá fólki yngra en 18 ára.
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Innlent Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Innlent Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Innlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Innlent Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Fleiri fréttir „Reynum allt til að missa þetta ekki í sömu stærð“ Skíðin fundust óskemmd í umferðinni Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Vill meiri og betri löggæslu í Mýrdalshreppi Mikil aðsókn í neyðarskýli Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Hádegisfréttir Bylgjunnar Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Sjá meira