Vísir, 28. nóv. 2009 19:30

Lítið eftir af símapeningunum

Sex og hálfur milljarður, af 67, er eftir af símapeningunum.. Sú upphæð liggur í Seðlabankanum og verður greidd til ríkissjóðs að ári.

Það var á sumarmánuðum árið 2005 að ríkið seldi Símann til fyrirtækisins Skipta, sem nú er í eigu Existu. Söluandvirðið var tæpir 67 milljarðar króna. Þetta var þá hæsta greiðsla sem innt hafði verið af hendi í allri sögu landsins.

Rúmir 32 milljarðar voru í erlendri mynt og fóru beint í að greiða niður erlendar skuldir. Afgangurinn var lagður í Seðlabankann í formi lána og gefin voru út fjögur skuldabréf sem greidd skyldu út fyrsta júlí, árin 2007, 2008, 2009 og 2010. Vextirnir áttu að hrannast upp og búist var við að 43 milljarðar yrðu til reiðu til uppbyggingar og fjárfestinga fram til ársins 2012.

Það voru mörg og dýr verkefni sem símapeningarnir áttu að fara í, en lagabreyting á síðasta ár sneri þeim áætlunum á hvolf.

En í hvað fóru peningarnir sem greiddir voru út árin 2007, 2008 og 2009. Upphaflega voru 18 milljarðar eyrnamerktir hátæknisjúkrahúsi, en rúmar 700 milljónir hafa þegar ratað þangað. 15 milljarðar áttu að fara í samgöngur eins og Sundabraut en til Vegagerðar hefur innan við helmingur farið. Landhelgisgæslan fékk sína þrjá milljarða til að kaupa varðskipi og flugvél. Fjarskipasjóður tvo og hálfan milljarð sem og Nýsköpunarsjóður, og Geðfatlaðir hafa þegið milljarð. Til Stofnunar íslenskra fræða við hlið Þjóðarbókhlöðunnar átti milljarður að renna en 100 milljónir hafa ratað í verkefnið, samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaráðuneytinu.

Eftir liggja 6,5 milljarðar í Seðlabankanum sem þýðir að um 20 milljarðar af símapeningunum hafa runnið í ríkissjóð og farið í almennan rekstur hins opinbera.

En voru símapeningarnir í raun í hendi? Stór hluti kaupverðsins var tekinn að láni og eftirstöðvarnar nema nú hátt í 50 milljörðum króna. Stærsti hluti lánsins er í höndum Arion banka og Glitnis.

Rekstur Skipta gengur með ágætum miðað við árferði en það sama verður ekki sagt um móðurfélag Bakkavararbræðra, Existu.

Það þarf ekki mikinn spámann til að ímynda sér að ríkisbankarnir gætu áður en langt um líður tekið yfir 100% eignahlut Existu í Skiptum. Þá væri Síminn aftur kominn í eigu ríkisins og hringnum lokað.





Fleiri fréttir

Viðskipti innlent 09. feb. 2010 19:49

Hörður Arnarson með 74 milljónir í laun hjá Marel

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, var með 74 milljónir króna, eða 420 þúsund evru...  

Meira

Viðskipti innlent 09. feb. 2010 18:45

Smáragarður þarf að greiða tíu milljarða í afborganir

Smáragarður, fasteignafélag Jóns Helga Guðmundssonar í Byko, þarf að greiða tæpa tíu millj...  

Meira

Viðskipti innlent 09. feb. 2010 17:38

Sennilegt að Íslandspóstur hafi misnotað markaðsráðandi stöðu

Sennilegt er að Íslandspóstur hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína í samskiptum sínum v...  

Meira

Viðskipti innlent 09. feb. 2010 17:10

GAMMA GBI hækkaði um 0,2%

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,2% í dag í 12,8 milljarða viðskiptum. GAMMAi:...  

Meira

Viðskipti innlent 09. feb. 2010 14:21

Alcoa Fjarðaál flutti út vörur fyrir um 74 milljarða

Útflutningur Alcoa Fjarðaáls á síðasta ári nam tæplega 600 milljónum bandaríkjadala, sem j...  

Meira

Viðskipti innlent 09. feb. 2010 14:14

Fjórir Prius innkallaðir á Íslandi

Innkalla þurfti fjórar bifreiðar af Toyota Prius gerð hér á Íslandi en alls þarf Toyota a...  

Meira

Viðskipti innlent 09. feb. 2010 12:36

SA: Umhverfisráðherra að geðjast þröngum flokkshagsmunum

Samtök atvinnulífsins (SA) gagnrýna Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra harðlega á he...  

Meira

Viðskipti innlent 09. feb. 2010 11:19

Landsframleiðslan á mann enn há á Íslandi

Greining Íslandsbanka fjallar í dag um breytingar á landsframleiðslunni á Íslandi í kreppu...  

Meira

Viðskipti innlent 09. feb. 2010 11:04

Magma Energy stofnar íslenskt dótturfélag

Kanadíska jarðhitafyrirtækið Magma Energy Corporation, sem á 40,94% hlut í HS Orku í gegnu...  

Meira

Viðskipti innlent 09. feb. 2010 10:55

Leigusamningum fjölgaði um tæp 52% milli mánaða

Heildarfjöldi leigusamninga á landinu var 898 í janúar 2010 og fækkar þeim um 0,8% frá jan...  

Meira

Viðskipti innlent 09. feb. 2010 10:18

Forstjóri Marels eykur við hlut sinn í félaginu

Theodoor Hoen forstjóri Marels hefur aukið við hlut sinn í félaginu. Í tilkynningu til kau...  

Meira

Viðskipti innlent 09. feb. 2010 10:06

Krónan ætti að geta styrkst gagnvart evrunni

Líklegt er að evran haldi áfram að gefa eftir gagnvart helstu gjaldmiðlum. Krónan ætti ein...  

Meira

Viðskipti innlent 09. feb. 2010 09:33

Íslandssjóðir hf. sektaðir fyrir villandi upplýsingar

Fjármálaeftirlitið hefur sektað Íslandssjóði hf. um eina milljón kr. fyrir villandi upplýs...  

Meira

Viðskipti innlent 09. feb. 2010 09:26

Arev og Auður Capital sektuð fyrir orðið „fjárfestingasjóður"

Fjármálaeftirlitið hefur sektað Arev verðbréfafyrirtæki hf, og Auði Capital um hálfa millj...  

Meira

Viðskipti innlent 09. feb. 2010 09:20

MP Sjóðir sektaðir um milljón fyrir villandi auglýsingu

Fjármálaeftirlitið hefur sektað MP Sjóði hf. um eina milljón kr. fyrir að hafa birt villan...  

Meira

Leit á Vísi

Viðskipti


Nýtt á Vísi

Markaðurinn

Markaðurinn

Viðskiptaorðabók

Fréttaskýringar Nærmynd

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni