Vill að fjölmiðlar fái stuðning frá ríkinu 25. nóvember 2009 06:00 dagblöð Með nýju fjölmiðlalögunum verður löggjöf um prent- og ljósvakamiðla sameinuð. Stofnuð verður fjölmiðlastofa sem hefur eftirlit með fjölmiðlum. Frumvarpið fer fyrir Alþingi á næstu dögum.fréttablaðið/anton
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, telur að ríkisvaldið eigi að styðja við fjölmiðla til að tryggja innviði þeirra og lýðræðislega umræðu. Slíkt sé alþekkt á Norðurlöndunum. Hún saknar ákvæðis þar um í frumvarpi um fjölmiðlalög sem lagt verður fyrir Alþingi á næstu vikum. „Í frumvarpinu er ekki tekin afstaða til þessarar spurningar. Við erum eina þjóðin á Norðurlöndum þar sem enginn stuðningur er við aðra fjölmiðla en ríkisútvarp. Mér finnst að við eigum að skoða allar leiðir til að efla fjölmiðla og tryggja fjölbreytni og fjölræði þar. Við stöndum uppi með fjölmiðla á brauðfótum og mikil óánægja er með ástandið þar. Ég held að við þurfum að taka afstöðu til þessarar spurningar til að ná árangri.“ Þóra segist ánægð með ýmislegt í frumvarpinu; ábyrgðarreglur séu samræmdar á milli prent- og ljósvakamiðla og ákvæði séu um gagnsæi eignarhalds og vernd heimildarmanna. Ákvæði um sjálfstæði ritstjórna gangi hins vegar allt of skammt og selji mönnum sjálfdæmi. „Þá finnst mér hlutverk fjölmiðlastofu óljóst og sakna þess að engin jafnréttisákvæði séu í frumvarpinu þrátt fyrir að augljóslega sé pottur þar brotinn. Eftir alla þá umræðu sem hefur verið í samfélaginu um fjölmiðlalög má segja að þetta séu vonbrigði.“ Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir að með frumvarpinu verði tilskipun Evrópusambandsins um fjölmiðla innleidd. Hlutverk fjölmiðlastofu verði að fylgjast með að fjölmiðlar fari að settum reglum, til að mynda varðandi áfengisauglýsingar og fleira í þeim dúr. Þá hafi hún ákveðnu eftirlitshlutverki að gegna, til dæmis varðandi eignarhald fjölmiðla. Frumvarpið hefur verið til kynningar á vef menntamálaráðuneytisins og hafa gefist tækifæri til athugasemda. Það verður lagt fram á Alþingi á næstu dögum og segir Katrín að menntamálanefnd muni hafa góðan tíma til að fara yfir málin. Stjórn Blaðamannafélagsins mun álykta um frumvarpið þegar það verður lagt fyrir þingnefnd. Starfshópur sem er með málefni Ríkisútvarpsins til endurskoðunar lýkur vinnu sinni fyrir mánaðamót. Katrín segir efnivið þeirrar vinnu verða notaðan til að endurnýja þjónustusamning og einnig til skoðunar á lagaumhverfi Ríkisútvarpsins. kolbeinn@frettabladid.is þóra kristín ásgeirsdóttir
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira