Vísir, 24. nóv. 2009 09:48

Áhyggjur af því að álbóla sé að myndast á málmmörkuðum

mynd
Álverðið á markaðinum í London var komið í 2.057 dollara á tonnið m.v. þriggja mánaða framvirka samninga í morgun. Sérfræðingar hafa nú töluverðar áhyggjur af því að álbóla sé að myndast á málmmörkuðum heimsins. Birgðastöðvar með ál liggja nú inni með nægilegt magn af málminum til þess að smíða 69.000 nýjar Boeing 747 júmbó þotur.

Fjallað er um málið á Bloomberg fréttaveitunni en þar er m.a. rætt við Peter Sorrentino sem stjórnar meðal annarra eignasjóðum upp á 13,8 milljarða dollara hjá Huntington Asset Advisors í Cincinnati. „Ég fæ ekki séð afhverju álverðið er orðið svona hátt," segir Sorrentino. „Það er nóg af birgðum til staðar og eftirspurnin er enn róleg. Tengslin milli verðsins og raunveruleikans hafa rofnað."

Barclays Capital spáir því að álbirgðir umfram eftirspurn í heiminum muni aukast um 29% á næsta ári eða um 1,63 milljónir tonna þar sem mesta árshækkun á áli síðan árið 1994 muni hvetja álfélög til að framleiða meira. Meðal þess sem er framundan á næsta ári er opnun stærsta álvers heimsins, Emirates Aluminium Co. Í Abu Dhabi, Í apríl og álver sem að hluta til er í eigu Norsk Hydro mun opna í Qatar í næsta mánuði.

Hækkun á heimsmarkaðsverði á áli um 33% það sem af er árinu ásamt því að hrávöruvísitalan S&P GSCI vísitalan hefur hækkað um 48% á skömmum tíma valda því að áhyggjur eru um að álbóla sé hafin.

Hópur 24 sérfræðinga sem Bloomberg leitaði álits hjá telur að álverðið á næsta ári mun verða 1.885 dollarar á tonnið á markaðinum í London (LME) að meðaltali. Þetta er nokkru lægra en sami hópur spáði í haust þegar hann taldi að verðið yrði í kringum 1.915 dollarar.

LME álítur nú að álbirgðir heimsins nemi 4,6 milljónum tonna og hafi þær tvöfaldast á þessu ári. Þetta er meira magn en nemur ársframleiðslu áls í ríkjum Vestur-Evrópu.

Þegar álverðið hrundi í fyrra í kjölfar fjármálakreppunnar brugðust margir álframleiðendur við ástandinu með því að loka álverum. Í mars á þessu ári hafði framleiðslugetan þannig minnkað um 19% m.v. við árið 2008 eða um 7,3 milljónir tonna.

„Niðurskurðurinn hefur reynst tímabundinn," segir Michael Widmer forstöðumaður málmdeildar Bank of America. „Í ljósi þeirrar framleiðsluaukningar sem þegar hefur verið tilkynnt höfum við áhyggjur af því að innviðir álmarkaðarins muni áfram verða veikir."

Kína mun að öllum líkindum taka við hluta af því umframmagni sem fyrirsjáanlegt er á álmarkaðinum en hagvöxtur þar í landi er enn öflugur og búist er við að hann verði 9,5% á næsta ári. Jorge Vazquez aðstoðarforstjóri fyrir áldeild Harbor Intelligence í Laredo, Texas, telur að eftirspurnin muni nema 380.000 tonnum umfram framboð á næsta ári og að álverðið verði að jafnaði 2.700 dollarar á tonnið á næsta ári.

Vazquez var með næsthæsta verðið í fyrrgreindri spá sérfræðinga Bloomberg en hann sagði í apríl s.l. að verðið myndi ná 1.984 dollurum á tonnið fyrir áramótin.





Fleiri fréttir

Viðskipti erlent 09. feb. 2010 10:44

Íslandsvinurinn Kiefer Sutherland svikinn af nautgripasala

Íslandsvinurinn og stórstjarnan Kiefer Sutherland situr eftir með sárt ennið eftir að hafa...  

Meira

Viðskipti erlent 09. feb. 2010 08:42

Áhugi á að kaupa eina af stærri breskum eignum Kaupþings

Nokkrir fjárfestar hafa lýst áhuga á því að kaupa, Bay Restaurant Group (Bay), eina af stæ...  

Meira

Viðskipti erlent 09. feb. 2010 08:30

SAS öskrar á hjálp, tapaði 50 milljörðum í fyrra

„SAS öskrar á hjálp" er fyrirsögnin á einum af dönsku vefmiðlunum í morgun þar sem fjallað...  

Meira

Viðskipti erlent 08. feb. 2010 14:29

Næsta andlit Iceland verður venjulegur Breti

Verslunarkeðjan Iceland í Bretlandi hefur hleypt af stokkunum samkeppni meðal bresks almen...  

Meira

Viðskipti erlent 08. feb. 2010 13:49

Norræn deila um frekari fjárhagsaðstoð til SAS

Norsk stjórnvöld hafa glatað þolinmæði sinni gagnvart SAS flugfélaginu og munu ekki leggja...  

Meira

Viðskipti erlent 08. feb. 2010 11:24

Atvinnuleysið áfram minna en í öðrum OECD ríkjum

Atvinnuleysið í OECD ríkjunum var að meðaltali 8,8% í desember s.l. samkvæmt samræmdri mæl...  

Meira

Viðskipti erlent 08. feb. 2010 11:00

Tryggingarfélög hagnast vel á Facebook

Með tilkomu Facebook er það orðið mun léttara verk fyrir tryggingarfélög að upplýsa um try...  

Meira

Viðskipti erlent 08. feb. 2010 10:36

Hlutir í Færeyjabanka ekki hærri síðan 2008

Hlutir í Færeyjabanka hækkuðu um 4,5% í kauphöllinni í Kaupmannahöfn og hefur gengi þeirra...  

Meira

Viðskipti erlent 08. feb. 2010 08:51

Álverðið dottið niður fyrir 2.000 dollara í London

Heimsmarkaðsverð á áli hefur stöðugt lækkað undanfarnar vikur og er nú komið niður yfir 2....  

Meira

Viðskipti erlent 08. feb. 2010 08:32

Hlutabréfaútgáfa upp á 8 milljarða hjá West Ham

Skriður er kominn á hugmyndir þeirra David Sullivan og David Gold um að fá nýtt fjármagn i...  

Meira

Viðskipti erlent 08. feb. 2010 08:03

Toyota innkallar Prius

Japanski bílaframleiðandinn Toyota hyggst síðar í vikunni innkalla rúmlega 300 þúsund bifr...  

Meira

Viðskipti erlent 07. feb. 2010 10:47

Efnuðustu þjóðirnar fella niður allar skuldir Haiti

Efnuðustu þjóðir heims, G-7 hópurinn svokallaði, hafa ákveðið að fella niður allar skuldir...  

Meira

Viðskipti erlent 07. feb. 2010 10:00

Íslensk fiskhausaþurrkun skapar störf í Nova Scotia

Íslensk fiskhausaþurrkun mun skapa um 50 ný störf í Nova Scotia í Kanada á næstu fimm árum...  

Meira

Viðskipti erlent 07. feb. 2010 09:16

Lindsay Lohan verður fylgdarkona Lugner í ár

Lindsay Lohan verður fylgdarkona hins 77 ára gamla austurríska milljarðamæri...  

Meira

Viðskipti erlent 07. feb. 2010 08:33

Actavis og Teva leggja fram tilboð í Ratiopharm

Actavis og Teva eru bæði búin að leggja fram tilboð í þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiop...  

Meira

Leit á Vísi

Viðskipti


Nýtt á Vísi

Markaðurinn

Markaðurinn

Viðskiptaorðabók

Fréttaskýringar Nærmynd

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni