- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Stjórn KSí hyggst ekki aðhafast frekar í máli fjármálastjóra sambandsins en hann heimsótti strípibúllu í Sviss fyrir fjórum árum þar sem hann notaði greiðsluskort KSÍ. Fjármálastjórnin mun því starfa áfram hjá sambandinu. Stjórnin harmar tildrög málsins og biður þjóðina, knattspyrnuhreyfinguna og aðildarfélög sín afsökunar á því.
„Stjórn KSÍ hefur móttekið afsökunarbréf fjármálastjórans, dags. 17. nóvember 2009 þar sem hann harmar að nafn KSÍ hafi fengið neikvæða umfjöllun vegna málsins en jafnframt ítrekar hann sakleysi sitt hvað varðar notkun kortsins. Eftir að hafa rætt málavexti á fundi sínum þann 19. nóvember 2009 og í ljósi þess að starfsmaðurinn var áminntur á sínum tíma mun stjórnin ekki aðhafast frekar í máli hans," segir í tilkynningu frá stjórn KSÍ.
Þar segir jafnframt að samkvæmt lögum KSÍ ber því að vera leiðandi afl fyrir íslenska knattspyrnu og fulltrúum þess ber að koma fram af heiðarleika og sýna gott siðferði. „Í því tilfelli sem hér um ræðir missteig fjármálastjórinn sig og hlaut refsingu sem metin var hæfileg á þeim tíma. Það er staðföst skoðun KSÍ að gott siðferði sé mikilvægt veganesti í starfi íþróttahreyfingarinnar en það er ekki síður mikilvægt að þegar menn hafa misstigið sig og tekið út sinn dóm að horfa fram á veginn, fyrirgefa og læra af þeim mistökum sem gerð voru."
Þá kemur fram í tilkynningunni að stjórn sambandsins hefur ákveðið að skipa starfshóp með það að markmiði að nýjar siðareglur KSÍ taki gildi 1. janúar næstkomandi. „Stjórn KSÍ mun síðan standa fyrir kynningu á þeim reglum en markmiðið er ávallt að fulltrúar KSÍ séu til sóma á innlendum sem erlendum vettvangi."
Rúmar 9 milljónir og 300 ţúsund krónur hafa safnast í söfnunarátaki Krabbameinsfélagsins K...
Jóhann Hauksson, blađamađur á DV sem nýveriđ var útnefndur Blađamađur ársins 2009, hefur s...
Eldur kom upp í svokallađri Búkollu rétt fyrir hádegi í dag á Suđurstrandarvegi viđ Hlíđar...
Hundrađ og sextíu ţúsund krónur voru teknar út í tólf fćrslum á kreditkort í eigu VR sem e...
Stjórn SUF, Sambands ungra framsóknarmanna, fagnar ţví ađ umsókn Íslands um ađild ađ Evróp...
Nokkuđ annríki var hjá lögreglunni á Akranesi í nótt. Einn mađur var handtekinn á dansleik...
Fimm bílar voru skemmdir á Akranesi í nótt. Lögreglu grunar ađ sami ađili hafi veriđ ađ ve...
Einn var međ allar tölur réttar í Lottóinu í gćr og fékk sá tćpar 12 milljónir króna í vin...
Lokađ er í Bláfjöllum í dag. Skíđasvćđin í Tindastól, á Siglufirđi og á Dalvík eru opin fr...
Allt tiltćkt liđ slökkviliđs höfuđborgarsvćđisins var kallađ ađ íbúđablokk viđ Hraunbć um ...
Tónlistarmenn skiptu bróđurlega á milli sín Íslensku tónlistarverđlaununum 2009 sem veitt ...
Eyţór Arnalds bar sigur úr býtum í prófkjöri sjálfstćđismanna í Árborg sem fram fór í dag....
Einn Litháanna sem fengu 5 ára dóm fyrir ađild sína ađ mansalsmálinu svokallađa, lék í ţát...
Bođađ hefur veriđ til opinnar samkeppni um hönnun á nýju hjúkrunarheimili sem byggt verđur...
Dorrit Mossaieff forsetafrú var sú fyrsta sem byrjađi ađ prjóna í dag trefil sem á ađ verđ...
„Ég fékk hringingu frá honum Magnúsi Scheving, takk,“ segir Anna Vallý Baldursd...
Á lausaganga katta ađ vera bönnuđ í ţéttbýli?