Fréttablađiđ, 17. nóv. 2009 06:00

Vill innlenda orkugjafa

mynd
Iđnađarráđherra tók viđ Athafnateygju númer eitt viđ setningu Alţjóđlegu athafnavikunnar í gćr. Hún ćtlar ađ rekja smiđshögg á áćtlun sem leiđir til ţess ađ bílar hér noti innlent eldsneyti. Mynd/GVA

„Með athafnateygjunni ætla ég að reka smiðshöggið á áætlun um orkuskipti, að í stað innflutts eldsneytis verði notuð innlend framleiðsla á bílaflotann," segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. Hún setti Alþjóðlegu athafnavikuna í Norræna húsinu í gær og tók á sama tíma við fyrstu Athafna­teygjunni svokölluðu.

Athafnateygjurnar eru 172 talsins og hafa fyrstu handhafar þeirra nú þegar fengið þær afhentar. Í þeim hópi eru bæjarstjórar landsins, stjórnmálamenn, athafna- og fjölmiðlafólk. Þeir sem teygjuna fá þurfa að koma stórum sem smáum verkefnum í framkvæmd og láta teygjuna síðan ganga áfram til annarra. Tilgangurinn með Athafnateygjunni er að mæla hversu miklu þjóðin kemur í framkvæmd á einni viku.

Katrín segir áætlun um orkuskipti umfangsmikið verkefni. Horfa verði til margra þátta, svo sem á sviði nýsköpunar og framleiðslu innlendra orkugjafa. Þá verði að huga að aðgengi þeirra og skipuleggja skattkerfið í kringum það. Hún segist vonast til að úr málinu rætist innan tíðar.
Að smiðhögginu loknu ætlar ráðherra að afhenda Þorsteini Inga Sigfússyni, forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar, teygjuna og fellur það í hans hlut að koma verkum sínum í framkvæmd.

„Það er eiginlega aðeins til að hvetja þau hjá Nýsköpunarmiðstöð áfram til góðra verka. Þau hafa lyft þvílíku grettistaki," segir Katrín og bætir við að kraftaverk hafi átt sér stað í íslenskum hátækni- og sprotageira. Bæði séu þar að verða til á fimmta hundrað störf auk þess að stefni í að velta í leikjaiðnaði einum verði tíu milljarðar króna í ár. „Þetta er stórkostlegur árangur," segir hún.

Katrín bindur miklar vonir við nýtt stjórnarfrumvarp sem felur í sér endurgreiðslu fyrirtækja vegna rannsóknar- og þróunarvinnu auk frumvarps um fjárfestingu í nýsköpunarfyrirtækjum.

Gangi það í gegn mun Rannís votta fyrirtækin sem mögulegt verður að fjárfesta í. „Ég held að flest þeirra muni uppfylla skilyrðin," segir Katrín og bætir við að gangi frumvarpið í gegnum Alþingi sé það skref fram á við og sambærilegt við umhverfi sprotafyrirtækja í öðrum löndum. jonab@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Innlent 20. mar. 2010 04:00

OR vill aprílopnun

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samţykkti í gćr fyrir sitt leyti tillögu Ţorleifs Gunnlaugsso...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 04:00

Fá enn fjarnám ţótt ráđuneyti vilji skera

Bćđi Fjölbrautaskólinn í Ármúla og Verzlunarskóli Íslands halda áfram ađ kenna grunnskólan...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 03:13

Formanni vikiđ vegna frambođs

Formanni umhverfis­nefndar Flóahrepps var fyrirvaralaust vikiđ frá störfum á fundi sveitar...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 03:13

Orkuverđ hćkkar á nćsta ári

Afar líklegt er ađ neytendur ţurfi ađ greiđa meira fyrir ţjónustu Orkuveitu Reykjavíkur á ...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 03:13

Rćtt um ađ verđtryggja framlögin

Fulltrúar stjórnmálaflokkanna hafa rćtt um ađ verđtryggja ţćr 300.000 krónur sem flokkarni...  

Meira

Innlent 20. mar. 2010 03:13

Beittu slökkvitćki og níu kílóa sleggju

Tveir brćđur um fertugt hafa veriđ ákćrđir fyrir hrottalega líkamsárás í Breiđholtinu í nó...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 22:00

Magnús Scheving bauđ Sahil á Latabćjarsýninguna á Íslandi

Íţróttaálfurinn sjálfur, Magnús Scheving, hefur faliđ blađafulltrúa sínum í Bretlandi ađ b...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 19:53

Brotist inn í sjö bíla í nótt

Í nótt sem leiđ var brotist inn í 7 bifreiđar viđ Leynisbrún, Suđurvör og Stađarhraun í Gr...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 18:50

Grásleppuhrognaverđ slćr öll met

Aldrei í sögunni hefur fengist eins hátt verđ fyrir grásleppuhrogn og nú og hefur verđiđ h...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 18:44

Sendiherrar kosta 74 milljónir

Níu starfsmenn hjá utanríkisráđuneytinu starfa ţar međ sendiherratitil og ţiggja laun samk...  

Meira Myndskeiđ

Innlent 19. mar. 2010 17:36

Fiskimjöliđ var skrásett sem hvalmjöl

Vegna frétta um meintan ólöglegan útflutning á hvalaafurđum hefur sjávarútvegs- og landbún...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 17:02

Lést á Kanarí

Íslenskur karlmađur lést í vikunni af völdum áverka sem hann hlaut eftir ađ hann féll niđu...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 16:51

Fundi lauk án niđurstöđu

Fundi samninganefndar flugvirkja og viđsemjenda ţeirra hjá Ríkissáttasemjara lauk á fimmta...  

Meira Myndskeiđ

Innlent 19. mar. 2010 16:28

Engin yfirheyrđur vegna spellvirkjanna viđ Veđurstofuna

Engin hefur enn veriđ handtekinn eđa yfirheyrđur vegna spellvirkjanna sem unnin voru á fja...  

Meira

Innlent 19. mar. 2010 16:10

Nýtt hjúkrunarheimili vígt í Kópvogi

Nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu var vígt viđ Bođaţing í Kópavogi á dag. Rúm átta ár eru sí...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir


Nýtt á Vísi

Af ţeim flokkum sem eru á ţingi, hvađa tveggja flokka ríkisstjórn myndir ţú styđja?


Kjörkassinn

Nćrmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöđ 2 og Vísi


Ađgengisvirkni