Ingibjörg Hinriksdóttir, stjórnarmaður í Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ), telur að ekki hafi verið tekið rétt á málum fjármálastjóra sambandsins, en milljónir voru teknar af korti sambandsins sem hann var með á nektarstað í Sviss. Ingibjörg telur að málið hefði átt að vera opinbert frá fyrstu stundu.
„Mér finnst þetta mál ömurlegt í heild sinni og mér var verulega brugðið þegar ég heyrði fyrst af því í fjölmiðlum á fimmtudag. Ég þekkti Pálma [fjármálastjórann] ekki af öðru en að vera æruverðugur og heiðarlegur maður. Sú leið sem var farin var ekki sú sem ég hefði kosið fyrst. Ég hefði kosið að stjórnin hefði verið kölluð saman og upplýst og málið rætt."
Ingibjörg segir að málið sé KSÍ ekki til sóma og það skaði knattspyrnu á Íslandi. Setja verði siðareglur fyrir sambandið. „Það hefði mátt vera ákvörðun fyrrum framkvæmdastjóra og núverandi formanns að setja slíkar siðareglur. Það tækifæri nýtti hann því miður ekki. Ég held að það sé rangt að fara í felur með svona mál. Það er heiðarlegast að hafa allt uppi á borðinu."
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir að stjórnin muni fara yfir erindi menntamálaráðherra, en líkt og Fréttablaðið greindi frá í gær, hefur Katrín Jakobsdóttir krafist skýringa frá sambandinu. Málið verði rætt í stjórn sambandsins 19. nóvember. Hann hafi ekki enn kynnt sér dóminn sem féll í Sviss en hann muni gera það.
Ingibjörg hafði ekki heyrt af stjórnarfundinum þegar Fréttablaðið náði tali af henni. „Mér finnst málið nú komið í ógöngur og veit ekki hvaða skref eru best í því. Við í stjórninni þurfum að taka þau skref í sameiningu."
kolbeinn@frettabladid.is
Samningar eru í burđarliđnum um risastóra kísilverksmiđju í Ţorlákshöfn. Fjárfestingin nćm...
Átján ára piltur hefur játađ ađ hafa framiđ rán í matvöruverslun í Hlíđunum um kvöldmatarl...
Hérađsdómur dćmdi í dag karlmann í ţriggja ára fangelsi fyrir nauđgun og sifjaspell auk fj...
Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu leitar nú eigenda nokkurra hluta sem sýnt ţykir ađ séu stol...
Actavis hefur ákveđiđ ađ styrkja hjálparstarfiđ í kjölfar jarđskjálftans í Haítí um meira ...
Karl um fertugt hefur veriđ úrskurđađur í gćsluvarđhald til 19. febrúar ađ kröfu lögreglun...
Í fyrramáliđ, miđvikudaginn 10. febrúar, verđur stýribúnađur umferđarljósa á gatnamótum Nj...
Hérađsdómur sektađi í dag ökumann sjúkrabíls fyrir brot á umferđarlögum ţegar hann ók í fo...
Karlmađur var í dag dćmdur í tveggja ára óskilorđisbundiđ fangelsi fyrir ađ leggja eld ađ ...
Eyrarrósin, sérstök viđurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggđinni, ...
Árni Páll Árnason gagnrýndi harđlega starfsemi fyrirtćkja sem veita smálán gegnum netiđ í ...
Samstarf vélhjólaklúbbsins MC Iceland, áđur Fáfnis og erlendra deilda Hells Angels glćpasa...
Fulltrúi Samfylkingar í leikskólaráđi Reykjavíkurborgar furđar sig á ađ meirihlutinn hyggi...
Rannsóknarnefnd Alţingis hefur sent út andmćlabréf til ţeirra einstaklinga í stjórnkerfinu...
Halldór Halldórsson, formađur Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur ađ Svandís Svavarsdó...
Nemendur viđ Fjölbrautarskólann í Breiđholti eru ósáttir viđ ákvörđun skólameist...
Hversu ánćgđ(ur) ertu međ óflokksbundnu ráđherrana í ríkisstjórninni, Rögnu og Gylfa?