Innlent

Engin þjóðarsátt um forsetann

Tæplega þriðjungur aðspurðra í könnun fréttastofu Stöðvar 2 vill að forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, segi af sér embætti.

Í könnun Rannsóknarmiðstöðvar Háskólans á Bifröst sem unnin var fyrir fréttstofu Stöðvar 2 var fólk meðal annars spurt hversu sammála eða ósammála það væri því hvort að Ólafur Ragnar ætti að segja af sér embætti.

Voru tæplega 62 prósent því ósammála á móti 29 prósentum sem voru sammála því að forsetinn segði af sér. Þetta þýðir að tæplega þriðjungur vill að Ólafur Ragnar Grímsson yfirgefi Bessastaði. 10 prósent aðspurðra sögðust hvorki vera sammála því né ósammála að forsetinn ætti að segja af sér.

Meirihluti þeirra sem sögðust vera sammála því að forsetinn segði af sér býr á höfuðborgarsvæðinu, en rúmlega þriðjungur höfuðborgarbúa vill forsetann frá. Greint eftir aldri voru það frekar karlmenn sem sögðust sammála því að Ólafur Ragnar yfirgæfi Bessastaði, eða 30 prósent en 27 prósent kvenna. Af þeim sem sögðust sammála því að forsetinn segði af sér voru flestir á aldrinum 45-54 ára, en 38 prósent aðspurðra í þessum aldurshóp sögðust sammála því.

Ólafur Ragnar Grímsson virðist njóta trausts meðal eldri borgara því aðeins 12 prósent svarenda á aldrinum 65-75 ára sögðust vilja að hann segði af sér.

Tekið var 1350 manna úrtak úr þjóðskrá meðal einstaklinga á aldrinum 18-75 ára af landinu öllu. Könnunin var gerð dagana 26. október til 3. nóvember og svöruðu 859 einstaklingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×