„Þetta er orðið þannig að maður er vakinn á morgnana og tilkynnt hvernig þetta hafi farið. Menn bíða því spenntir eftir þessu," segir Úlfar Eysteinsson, martreiðslumaður á Þremur Frökkum. Hann og Tómas Tómasson, oftast kenndur við Hamborgarabúlluna, eru orðnar hálfgerðar stýrivaxtahetjur. Þeir hafa ekki skert skegg sitt í næstum hálft ár og ætla sér ekki að gera það fyrr en stýrivextirnir eru komnir niður fyrir tíu prósent. Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað á fundi sínum í gærmorgun að lækka stýrivexti niður í ellefu prósent þannig að enn sér ekki fyrir endann á skeggvexti kokkanna. Þeir verða að minnsta kosti skeggprúðir þegar jólaösin gengur í garð. „Við gefumst ekkert upp," segir Úlfar.
Úlfar segir að nú sé það bara plan b. Skeggmótmælin verði því ögn meira áberandi en undanfarna mánuði. „Ég á að sjá um að redda hestvagninum og Tómas ætlar að útvega jólasveinabúninga á okkur og svo förum við í jólasveinaleik í fyrstu viku aðventunnar," segir Úlfar. Félagarnir ætla að fá Seðlabankann til að styrkja sig en þeir ætla að gefa öllum leikskólabörnum á höfuðborgarsvæðinu litla gjöf. Báðir segjast þeir eiga hauk í horni í Svörtuloftum. Úlfar vonast jafnframt til að aðrir menn taki sig til og fari að safna skeggi til að sýna samstöðu. „En þeir lækkuðu þó vextina aðeins, þeim er ekki alls varnað. Þetta hefði þó mátt vera meira." - fgg
Söngkonan Pink, 30 ára, eða Alecia Moore, valdi rauðvín í verslun í Kaliforníu í gærdag....
Leikarinn Bradley Cooper, 35 ára, vakti athygli á rauða dreglinum á frumsýningu kvikmyndar...
Leikkonan Sandra Bullock, 45 ára, var mynduð fyrir utan upptökuver spjallþáttarins Late Sh...
Leikkonan Jessica Biel, 27 ára, stal senunni á frumsýningu kvikmyndarinnar Valentine´s Day...
Á meðfylgjandi myndum má sjá leikkonuna Drew Barrymore, 35 ára, áberandi niðurlúta með sól...
American Idol stjarnan Jordin Sparks, 21 árs, passaði sig á að vefja utan um sig handklæði...
Leikkonan Jennifer Aniston, 40 ára, er stödd í Cabo San Lucas í Mexíkó þar sem hún flatmag...
Á meðfylgjandi myndum má sjá söngkonurnar Jennifer Lopez, 40 ára, og Rihönnu, 21 árs, snæð...
Ef meðfylgjandi myndir sem teknar voru baksviðs á frumsýningu THRILLER í Loftkastalanum er...
Á meðfylgjandi myndum má sjá söngkonuna Beyonce Knowles, 28 ára, missa jafnvægið í miðju s...
Óhætt er að segja að gríðarleg stemmning hafi verið baksviðs í söngvakeppni Sjónvarpsins á...
Robert Pattinson, aðalleikarinn í Twilight-myndunum, kvíðir fyrir því að leika í kynlífsse...
„Ég bjóst ekki við að fá svona mikla athygli út á þetta,“ segir Ása Steinarsdóttir, sem va...
Leikarinn Sam Worthington hefur tekið að sér aðalhlutverkið í sakamálamyndinni Texas Killi...
Elíza Newman – oftast kennd við Kolrössu krókríðandi, en í seinni tíð stundum við kvennakl...
Brad Pitt, 46 ára, og sonur hans, Maddox, 8 ára, voru myndaðir á LAX flugvelli í...