Innlent

Ógnaði dóttur sinni með hníf

Móðir sjö ára telpu hlaut nýverið skilorðsbundin dóm fyrir að hafa slegið hana með viðarfjöl og hótað að skera hana með hníf. Afar fátítt er að dómur falli í slíku máli hérlendis, en tilkynningum til barnaverndaryfirvalda, um að börn séu beitt líkamlegu ofbeldi af hálfu fullorðinna, fer þó fjölgandi.

Barnaverndaryfirvöld beina nú sjónum sínum í ríkari mæli að beitingu líkamlegs ofbeldis gegn börnum - öðru en kynferðisofbeldis - og hvort þörf sé á samræmdu verklagi barnaverndarnefnda. Það hefur enda sýnt sig að aukin meðvitund um málaflokkinn hefur skilað sér í fjölgun tilkynninga til yfirvalda - á fyrstu sex mánuðum þessa árs voru þær rúmlega 300 en á sama tímabili í fyrra 257. Árið 2006 hefur sérstaklega verið skoðað, en gögn voru ekki alltaf skýr.

„En þeim tilfellum sem hægt var að greina af gögnum hvað hafði átt sér stað þá höfðu flest börn verið slegin eða rassskellt með flötum lófa, en dæmi um að foreldrar kýldu börn með hnefa, tóku þau hálstaki, hrintu, spörkuðu og þvíumlíkt," segir Steinunn Bergmann, félagsráðgjafi hjá Barnaverndarstofu.

Í byrjun októbermánaðar, hlaut móðir sjö ára telpu skilorðsbundin dóm fyrir að hafa slegið dóttur sína með viðarfjöl úr rimlagardínu í hendur, líkama og höfuð, auk þess sem henni var hótað með hníf. Segir í dómnum að ofbeldið hafi haft djúpstæð áhrif á telpuna og skapað hjá henni mikið óöryggi.

Málið er óvenjulegt því líkamlegar refsingar gangvart börnum er almennt ekki viðurkennd uppeldisaðferð hér á landi, eins og víða annars staðar. Afar fá mál eru kærð til lögreglu og enn færri fara fyrir dóm. Dæmið hér að framan sýnir þó að ekki eru öll börn óhult.

„Það er mjög hætt við að vandinn sé dulinn og við vitum ekki um öll þau tilvik sem eiga sér stað," segir Steinunn.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×