Verð á bókum hækkar um 10 til 15 prósent 19. október 2009 05:00 Að sögn bókaútgefenda hækkaði bókaverð ekki í fyrra þrátt fyrir uppsafnaða hækkunarþörf. Ekki hafi verið komist hjá verðhækkunum í ár. Fréttablaðið/valli
Forlagið er stærsta bókaútgáfan á Íslandi og gefur um 200 titla út á árinu. Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins, segir að þrátt fyrir að bókaverð hjá þeim hækki á milli ára sé sú hækkun minni en almenn verðlagsþróun á Íslandi. „Í fyrra hækkaði verðið ekki neitt, þrátt fyrir uppsafnaða hækkunarþörf og aukinn kostnað,“ segir Egill. „Hjá Forlaginu gerum við ekki ráð fyrir að verðið hækki um meira en tíu til fimmtán prósent á milli ára, sem er undir almennum verðhækkum. Mér sýnist að heildsöluverð á skáldsögum geti því orðið rúmar 5000 krónur.“ Forlagið gefur út færri titla í ár en í fyrra en Egill á þó ekki endilega von á samdrætti í bóksölu. „Það sem af er ári hefur markaðurinn verið afskaplega góður. Bókin er tísku, ef svo má segja, eins og nýafstaðinn lagermarkaður Forlagsins er til vitnis um. Þar seldum við fleiri bækur en nokkru sinni í sex ára sögu markaðarins. Við erum því bjartsýn fyrir jólin í ár.“ Guðrún Vilmundardóttir hjá Bjarti-Veröld býst við að verðhækkanir á þeirra bókum verði einnig á bilinu tíu til fimmtán prósent. „Bókaverð hefur ekki fylgt almennri verðlagsþróun undanfarin ár heldur nánast staðið í stað,“ segir hún. „Bókin hefur því orðið hlutfallslega ódýrari með hverju árinu. Með gengishruninu snarhækkaði hins vegar kostnaðurinn, aðallega pappírsverðið. Þær hækkanir hefðu að einhverju leyti átt að koma inn í verðið í fyrra en við ákváðum að halda aftur af verðhækkunum eins lengi og við gætum.“ Kostnaðarhækkunin verði hins vegar ekki flúin lengur. „Við fylgjum ekki almennri verðþróun heldur er þetta allra nauðsynlegasta hækkun á verði. Bókaútgefendur eru ekki að fá sömu framlegð og fyrir tíu árum.“ Sem dæmi um algengt verð á skáldsögu fyrir þessi jól nefnir Guðrún Harm englanna eftir Jón Kalman Stefánsson; leiðbeinandi verð á henni er 5.680 krónur. Þrátt fyrir samdráttarskeið ætlar Bjartur ekki að rifa seglin í útgáfunni og koma ívið fleiri titlar út á vegum útgáfunnar í ár en í fyrra. „Bóksala hefur gengið vel undanfarið ár og við förum því kokhraust í jólavertíðina í ár.“ bergsteinn@frettabladid.is Egill örn jóhannsson
Tengdar fréttir Opið bréf til heilbrigðisráðherra Mikið hefur verið fundað í Heilbrigðisráðuneytinu um starfsemi Kragasjúkrahúsanna frá því haustið 2008. Til að gera langa sögu stutta ákvað nefnd á vegum Guðlaugs Þ. Þórðarsonar fyrrum heilbrigðisráðherra að loka skurðdeild St. Jósefsspítala Hafnarfirði, flytja átti hluta starfseminnar til Keflavíkur. Mikil mótmæli urðu við þeirri ákvörðun. 15. október 2009 06:00 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira
Opið bréf til heilbrigðisráðherra Mikið hefur verið fundað í Heilbrigðisráðuneytinu um starfsemi Kragasjúkrahúsanna frá því haustið 2008. Til að gera langa sögu stutta ákvað nefnd á vegum Guðlaugs Þ. Þórðarsonar fyrrum heilbrigðisráðherra að loka skurðdeild St. Jósefsspítala Hafnarfirði, flytja átti hluta starfseminnar til Keflavíkur. Mikil mótmæli urðu við þeirri ákvörðun. 15. október 2009 06:00